Ferguson: Nani verður með Manchester United á morgun Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. mars 2011 17:45 Nani er mikilvægur fyrir Manchester United. Mynd/Nordic Photos/Getty
Nani og Michael Carrick verða báðir í hópnum hjá Manchester United fyrir leikinn á móti Marseille í Meistaradeildinni á morgun og kemur það mörgum mikið á óvart að Nani sé búinn að ná sér eftir að hafa fengið stóran skurð á fótinn eftir ljóta tæklingu frá Liverpool-manninum Jamie Carragher. Það var búist við að Nani myndi missa af mörgum leikjum og kæmi líklega ekki aftur fyrr en í apríl en Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, sagði frá því á blaðamannafundi í kvöld að Nani myndi spila í leiknum. „Nani og Michael Carrick æfðu báðir á sunnudag og mánudag og þeir munu taka þátt í leiknum á morgun," sagði Sir Alex Ferguson. Michael Carrick hefur verið að glíma við nárameiðsli. Ferguson gladdist líka yfir því að Antonio Valencia sé búinn að ná sér af sínum meiðslum og þá eru meiðsli fyrirliðans Nemanja Vidic frá því um helgina ekki talin vera alvarleg. Þetta lítur því mun betur út hjá United en fyrir nokkrum dögum. Manchester United og Marseille gerðu markalaust jafntefli í fyrri leiknum í Frakklandi en United hefur aldrei tapað fyrir frönsku liði á Old Trafford og getur komist fimmta árið í röð í átta liða úrslit Meistaradeildarinnar. „Við verðum að gera okkur grein fyrir því að þeir eru með reynslumikið og með öflugt lið. Þetta verður erfiður leikur en frábært andrúmsloft á Old Trafford mun hjálpa okkur eins og alltaf," sagði Ferguson.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Annar keppandi stal skíðum Fróða á HM Sport „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Enski boltinn Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Fleiri fréttir Valdi Laudrup besta fótboltamann sögunnar Ísfirðingar fá hávaxinn eistneskan framherja „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Sjá meira