Lít út fyrir að hafa lent í bardaga á móti báðum Klitschko-bræðrunum í einu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. desember 2011 23:45 Sebastian Kehl. Mynd/Nordic Photos/Bongarts
Sebastian Kehl, fyrirliði Dortmund, fékk slæmt spark í andlitið í Meistaradeildarleiknum á móti Marseille í gærkvöldi og var borinn útaf eftir aðeins rúmlega hálftíma leik. Stephane Mbia, leikmaður Marseille, fékk gula spjaldið fyrir sparkið en Kehl endaði upp á spítala. „Fyrst koma góðu fréttirnar. Það er ekkert brotið og augað er í lagi," sagði Sebastian Kehl á fésabókarsíðunni sinni. „Nú koma hinsvegar slæmu fréttirnar. Ég lít út fyrir að hafa lent í bardaga á móti báðum Klitschko-bræðrunum í einu," skrifar Sebastian Kehl. Leikmenn Dortmund hafa verið afar óheppnir í vetur þegar kemur að andlitsmeiðslum því þetta eru þriðju slík meiðsli á stuttum tíma. Miðjumaðurinn Sven Bender kjálkabrotnaði á tveimur stöðum í leik á móti Arsenal fyrir tveimur vikum og varnarmaðurinn Neven Subotic kinnbeinsbrotnaði í byrjun nóvember. Sebastian Kehl er 31 árs varnartengiliður og hefur spilað með Dortmund frá árinu 2001. Hann lyfti Þýskalandsskildinum eftir sigur liðsins í þýsku deildinni síðasta vor.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni Sjá meira