San Antonio fyrst í 40 sigurleiki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 30. janúar 2011 11:00 Manu Ginobili í leiknum í nótt. Mynd/AP
San Antonio Spurs komst fyrst liða í NBA-deildinni í 40 sigurleiki á tímabilinu er liðið hafði betur gegn Houston, 108-95. Liðið er vitaskuld með besta árangur allra liða í NBA-deildinni en San Antonio hefur aðeins tapað sjö leikjum til þessa. Meistarar Lakers hafa til að mynda „aðeins" unnið 33 leiki til þessa og efsta liðið í Austurdeildinni, Boston, hefur unnið 35. San Antonio hefur aldrei áður náð að vinna 40 leiki svo snemma á tímabilinu sem segir ýmislegt um styrkleika liðsins í dag. Manu Ginobili hefur verið frábær með liðinu í vetur og hann skoraði 22 stig í leiknum í nótt. Þetta var í átjánda sinn í röð sem að San Antonio vinnur á heimavelli. Richard Jefferson skoraði átján stig fyrir San Antonio sem spilar alla sína leiki á útivelli næstu þrjár vikurnar. Hjá Houston var Luis Scola stigahæstur með 23 stig auk þess sem hann tók tíu fráköst. Minnesota vann Toronto, 103-87. Kevin Love var með 21 stig og tólf fráköst fyrir Minnesota en Toronto tapaði sínum ellefta leik í röð í nótt. Memphis vann Washington, 107-93. Zach Randolph skoraði 24 stig og tók 20 fráköst fyrir Memphis. Darrell Arthur bætti vði 22 stigum. Milwaukee vann New Jersey, 91-81. Andrew Bogut skoraði átján stig og tók átján fráköst fyrir Milwaukee. Chicago vann Indiana, 110-89. Carlos Boozer skoraði 24 stig og tók tíu fráköst fyrir Chicago, Derrick Rose var með 20 stig og Luol Deng nítján. Dallas vann Atlanta, 102-91. Dirk Nowitzky var með nítján stig og Jason Terry átján stig og ellefu stoðsendingar fyrir Dallas. Sacramento vann New Orleans, 102-96. DeMarcus Cousins var með 25 stig, tólf fráköst og sjö stoðsendingar fyrir Sacramento. New Orleans var búið að vinna tíu leiki í röð fyrir leik liðanna í nótt. LA Clippers vann Charlotte, 103-88. Blake Griffin skoraði 24 stig og tók tíu fráköst fyrir Clippers.
NBA Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Sektins hans Messi er leyndarmál Fótbolti Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Fleiri fréttir „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Popovich kemur ekki til baka á þessu tímabili Loksins fékk Lakers að sjá Luka eins og við þekkjum hann Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Uppselt á körfuboltalandsleikinn á morgun Ruglaðist á Tramadol og Toradol og féll á lyfjaprófi Slagur um stól formanns KKÍ Sjá meira