Jákvæð teikn á lofti í íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi Vísindamenn skrifa skrifar 12. september 2014 07:00 Rannsóknaþing Vísinda- og tækniráðs (VT) var haldið föstudaginn 29. ágúst. Meginefni þingsins var umfjöllun um úttekt á íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi. Úttektin var framkvæmd af óháðum sérfræðingahóp frá framkvæmdastjórn Evrópusambandsins að beiðni íslenskra stjórnvalda. Það krefst hugrekkis af stjórnvöldum að opna dyrnar fyrir utanaðkomandi mati á þennan hátt og horfast í augu við veruleikann í íslensku nýsköpunarumhverfi. Með þessu hafa íslensk stjórnvöld stigið fyrsta skrefið í uppbyggingu trausts í kerfinu og sýnt vilja sinn til úrbóta á ótvíræðan hátt. Í raun má segja að samkeppnishæfi Íslands á alþjóðavettvangi sé í húfi og í skýrslunni er réttilega bent á að framtíðar samfélags- og hagvöxtur á Íslandi muni byggja á vísindum, tækni og nýsköpun. Jafnframt er ljóst að úttekt á vísinda- og nýsköpunarumhverfinu er þegar farin skila sér og birtist sú staðreynd í Stefnu og aðgerðaáætlun VT 2014-2016. Þetta er í fyrsta skipti sem ítarleg aðgerðaáætlun er lögð fram í kjölfarið á stefnu VT. Stjórnvöld hafa nú þegar sýnt frumkvæði og vilja sinn til að svara kalli úttektarinnar um að tími sé kominn til að axla ábyrgð á stefnumótun í vísindum, tækni og nýsköpun og að aðgerða sé þörf.Slær hárréttan tón Íslenskt vísinda- og nýsköpunarsamfélag tekur þessu viðhorfi stjórnvalda fagnandi. Á þinginu mátti berlega skynja samtalstón á milli vísindasamfélagsins og ráðamanna sem endurspeglaðist meðal annars í pallborðsumræðum um skýrsluna. Skýrslan er mjög opinská og hreinskilin og slær hárréttan tón sem lýsir þeim óróa og örvæntingu sem gætt hefur í íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi. Hún verður því mikilsverður grunnur að því uppbyggingarstarfi sem nú er fram undan. Skipta má niðurstöðu úttektarinnar í þrennt. Í fyrsta lagi bendir hópurinn á knýjandi þörf á pólitískri skuldbindingu og framkvæmdum. Þörf sé á viðhorfbreytingu hjá stjórnvöldum, þar sem tilhneiging sé til þess að líta á útgjöld til rannsókna og nýsköpunar sem kostnað frekar en fjárfestingu. Sérfræðihópurinn lagði að auki fram tillögur og áætlun um það hvernig gera megi kerfið skilvirkara og sveigjanlegra, meðal annars með því að sameina stofnanir og auka samvinnu á milli þeirra. Það var því sannarlega uppörvandi að heyra á orðum bæði forsætis- og menntamálaráðherra á fundinum að fram undan væri mikil sókn í fjárfestingum í íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi. Fyrsta skrefið er tekið í nýkynntum fjárlögum ársins 2015 með 800 milljóna króna aukningu á fjárframlögum til samkeppnissjóða VT. Samkvæmt Stefnu og aðgerðaráætlun VT er stefnt á tveggja milljarða króna aukningu til viðbótar árið 2016. Í öðru lagi hvatti hópurinn til þess að allir aðilar í íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi, háskólar, stofnanir, fyrirtæki og stjórnsýsla, tækju sameiginlega ábyrgð á breytingum sem stuðlað gætu að frekari samvinnu, sameiningu og eflingu kerfisins. Í þriðja lagi benti hópurinn á þann gríðarlega skort á gögnum sem snúa að því hversu skilvirk og árangursrík stefnumörkun í íslenska kerfinu sé í raun. Í úttektinni er hvatt til þess að árangur sá sem hlýst af stefnumótun verði stöðugt sannreyndur með gögnum og að koma þurfi upp upplýsingakerfi sem mæli árangur stefnumörkunar. Það yrði vissulega jákvæð þróun að koma slíku kerfi á fót. Þó eru ýmsar hættur sem ber að varast og þá sérstaklega að í slíku kerfi verði magn metið umfram gæði. Sú tilhneiging er þegar mjög sterk í íslenska kerfinu og því þarf að stokka matskerfi íslenskra stofnana upp frá grunni frekar en að byggja á því sem fyrir er.Sanngjarnari aðferð Við uppbyggingu á matskerfi á íslenskum vísindum hlýtur að vera farsælast að byggja á jafningjamati eins og tíðkast alþjóðlega þar sem metnaður er í fyrirrúmi við mat á árangri og skilvirkni í vísindum og nýsköpun. Vísindin eru síbreytileg og því ber að varast að setja fyrirfram ákveðna mælistiku á þau. Jafningjamat er vissulega erfiðara í framkvæmd en einföld talning á birtum greinum, skýrslum og fjölda útskrifaðra nemenda, en er jafnframt mun sanngjarnari og árangursríkari aðferð til þess að meta vísindastarf og hvetja til metnaðar. Jákvæð teikn eru á lofti í íslensku vísinda- og nýsköpunarumhverfi. Stjórnvöld hafa sýnt mikilsvert frumkvæði með ytri úttekt á kerfinu, ásamt því að leggja fram aðgerðaáætlun Vísinda- og tækniráðs og væntanleg framlög úr ríkissjóði. Það hefur almennt ríkt þverpólitísk samstaða um mikilvægi vísinda, tækni og nýsköpunar á Íslandi og erum við því bjartsýn á að fyrirhuguð aukning í samkeppnissjóðina á fjárlögum verði samþykkt af Alþingi. Höfundar eru stjórnarmenn í Vísindafélagi Íslendinga. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Alþingi Mest lesið Hlíðarendi – hverfið mitt Freyr Snorrason Skoðun Lukka Sjálfstæðisflokksins Inga María Hlíðar Thorsteinson Skoðun Jens er rétti maðurinn í brúna! Anton Berg Sævarsson Skoðun Stuðningur fyrir börn í vanda getur verið lífsbjörg Stefán Guðbrandsson Skoðun Hver er betri sem formaður Sjálfstæðisflokksins? Þórir Garðarsson Skoðun Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair? Birgir Orri Ásgrímsson Skoðun Má skera börn? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza Kristján Þór Sigurðsson Skoðun Strandveiðar – nýliðun hægri vinstri Steindór Ingi Kjellberg Skoðun Raddir, kyn og kassar Linda Björk Markúsardóttir Skoðun Skoðun Skoðun Herleysið er okkar vörn Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar Skoðun Raddir, kyn og kassar Linda Björk Markúsardóttir skrifar Skoðun Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun Helga Gísladóttir skrifar Skoðun Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar Skoðun Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein Jörgen Ingimar Hansson skrifar Skoðun Rödd friðar á móti sterkum her Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Leiðtogi nýrra tíma Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar Skoðun Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair? Birgir Orri Ásgrímsson skrifar Skoðun Tollflokkun rifins osts: Rangfærslur og staðreyndir Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza Kristján Þór Sigurðsson skrifar Skoðun Wybory/Election/Kosningar Mateusz Gabríel K. Róbertsson skrifar Skoðun Hver er betri sem formaður Sjálfstæðisflokksins? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Hlíðarendi – hverfið mitt Freyr Snorrason skrifar Skoðun Rétturinn til að hafa réttindi Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Chamberlain eða Churchill leiðin? Ingibjörg Þóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun Magnús Karl sem næsta rektor Háskóla Íslands Sólveig Ásta Sigurðardóttir,Stefanía Benónísdóttir skrifar Skoðun Heilbrigðisyfirvöld með í samtali um hugvíkkandi meðferðir Sara María Júlíudóttir skrifar Skoðun Flug er almenningsssamgöngur Ari Trausti Guðmundsson skrifar Skoðun Barátta fyrir mannréttindum aldrei verið mikilvægari Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Löggjafinn brýtur á skólabörnum (grein 1) Valdís Ingibjörg Jónsdóttir skrifar Skoðun Strandveiðar – nýliðun hægri vinstri Steindór Ingi Kjellberg skrifar Skoðun Reykurinn sást löngu fyrir brunann! Davíð Bergmann skrifar Skoðun Angist og krabbamein Auður E. Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Jens er rétti maðurinn í brúna! Anton Berg Sævarsson skrifar Skoðun Stuðningur fyrir börn í vanda getur verið lífsbjörg Stefán Guðbrandsson skrifar Skoðun Lukka Sjálfstæðisflokksins Inga María Hlíðar Thorsteinson skrifar Skoðun Silja Bára, öruggur og faglegur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands Margrét Gíslínudóttir skrifar Skoðun Má skera börn? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Aðför að menntakerfinu Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Er íslenska þjóðin að eldast? Þorsteinn Þorsteinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Leiðtogi nýrra tíma Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar
Skoðun Magnús Karl sem næsta rektor Háskóla Íslands Sólveig Ásta Sigurðardóttir,Stefanía Benónísdóttir skrifar
Skoðun Heilbrigðisyfirvöld með í samtali um hugvíkkandi meðferðir Sara María Júlíudóttir skrifar
Skoðun Barátta fyrir mannréttindum aldrei verið mikilvægari Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Skoðun Silja Bára, öruggur og faglegur leiðtogi fyrir Háskóla Íslands Margrét Gíslínudóttir skrifar