Viljum sýna að við getum staðið undir þessari pressu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar frá Brüssel skrifar 12. nóvember 2014 06:30 Landsliðsþjálfarinn Lars Lagerbäck ætlar að gefa nokkrum tækifæri á að sanna sig í kvöld. vísir/AFP
Þrátt fyrir smávægileg skakkaföll í íslenska landsliðshópnum eru flestir klárir í slaginn fyrir vináttulandsleikinn gegn Belgíu í Brussel í kvöld. Belgar, fjórða sterkasta knattspyrnulið heims samkvæmt styrkleikalista Alþjóðaknattspyrnusambandsins, hafa á að skipa góðu liði sem er að búa sig undir mikilvægan leik gegn Wales í undankeppni EM 2016 á sunnudag. „Leikmennirnir sem spila eru allir hjá sterkum félagsliðum í Evrópu sem flest spila í Meistaradeildinni. Þetta verður virkilega góð og erfið prófraun fyrir okkur,“ sagði Lars Lagerbäck, annar þjálfara íslenska landsliðsins, við Fréttablaðið í gær. Hann reiknar með að leikmenn sem hafa staðið fyrir utan byrjunarliðið í leikjum Íslands í undankeppni EM 2016 til þessa fái tækifærið en var enn óviss um hverjir gætu tekið þátt í leiknum. „Ólafur Ingi [Skúlason] náði sér í pest og Sölvi hefur verið í vandræðum með bakið. Báðum leið þó betur í dag en við munum meta ástand þeirra endanlega á leikdag,“ sagði Lagerbäck. Ólíklegt er að Kári Árnason spili með vegna támeiðsla sem kunnugt er en hann gat þó æft með liðinu í gær, líkt og Emil Hallfreðsson sem hvíldi á æfingunni á mánudag. „Það verða nokkrar breytingar á liðinu og einhverjir koma beint inn í byrjunarliðið og aðrir spila í 45 eða 60 mínútur. Ég veit ekki hvort við notum allar sex skiptingar sem okkur standa til boða þótt það sé líklegt,“ sagði þjálfarinn sem ætlar að nota fleiri en einn markvörð í leiknum.Strákarnir æfa í Belgíu í gær.vísir/afpBreyttir tímar í landsliðinu Aron Einar Gunnarsson landsliðsfyrirliði segir að þeir leikmenn sem fái tækifærið í kvöld séu ólmir í að sýna sig og sanna. „Það eru breyttir tímar í landsliðinu og meiri breidd en hefur verið áður. Ef þessir leikmenn sem koma inn núna nýta tækifærið verða þeir Lars og Heimir með hausverk fyrir leikinn á sunnudag,“ segir Aron Einar sem þrátt fyrir ungan aldur hefur verið lengi í landsliðinu. „Ég hef verið í þessu síðan ég var átján ára og gengið í gegnum ýmislegt. Áhuginn á landsliðinu hefur verið að stigmagnast og aldrei verið meiri en nú. Það er virkilega skemmtilegt að taka þátt í því,“ segir Aron en von er á að minnsta kosti sex hundruð stuðningsmönnum Íslands á leikinn í Tékklandi. Fleiri óskuðu þó eftir miðum á leikinn en fengu ekki. „Það er bara ótrúlegt og við kunnum virkilega vel að meta þennan góðan stuðning. Ég man þegar umræðan í kringum landsliðið var á þann veg að oft var verið að leita að ástæðu til að sýna að við værum ekki að standa okkur vel. En nú er þetta allt öðru vísi og allt undir okkur sjálfum komið. Við viljum sýna að við erum með breitt bak og getum tekið við þessari pressu sem við höfum sjálfir sett á okkur.“Mikilvægi þjálfaranna Gríðarlega mikill áhugi er á íslenska landsliðinu hér í Belgíu og fjölmiðlafólk víða að sem hefur sýnt því áhuga í aðdraganda þessa leiks. Fulltrúar fjölmiðla frá Bretlandi, Þýskalandi og Frakklandi auk heimamanna voru viðstaddir blaðamannafund KSÍ á hóteli liðsins í Brussel í gær og spurðu þjálfara Íslands um ástæður velgengni landsliðsins. Meðal þeirra svara sem Heimir Hallgrímsson nefndi var það hlutverk sem þjálfarar gegna. „Allir þjálfarar á Íslandi hafa fengið menntun sem knattspyrnuþjálfarar og verður að hrósa íslenska knattspyrnusambandinu fyrir hvernig staðið hefur verið að þeim málum. Allir krakkar á Íslandi sem æfa knattspyrnu eru með þjálfara með réttindi og það er ein helsta ástæða fyrir því að okkur hefur tekist að senda svo marga knattspyrnumenn í atvinnumennsku, sem gagnast landsliðinu okkar mjög.“
Íslenski boltinn Tengdar fréttir Kompany spilar ekki gegn Íslandi Fyrirliði Manchester City að glíma við meiðsli í kálfa. 11. nóvember 2014 10:00 Jón Daði íhugar samningstilboð frá Viking Gekk betur að spila með landsliðinu en félagsliðinu sínu í Noregi. 11. nóvember 2014 18:15 Ógnarsterkt byrjunarlið hjá Belgum gegn Íslandi Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belga, tilkynnti nú í hádeginu byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. 11. nóvember 2014 12:23 Gummi Ben lýsir leik Tékklands og Íslands á Bylgjunni Útvarpslýsingar Gumma Ben slógu í gegn fyrr á árinu og nú verður framhald á. 11. nóvember 2014 09:03 Kennslustund Bales nýttist landsliðinu okkar vel Íslenska landsliðið hefur haldið hreinu í 422 mínútur eða í níu síðustu hálfleikjum sem liðið hefur spilað. Á sama tíma hefur íslenska liðið skorað tíu mörk í röð án þess að mótherjarnir hafi svarað. 11. nóvember 2014 08:00 Jóhann Berg: Dapurt ef ég hefði ekki samglaðst Jóhann Berg Guðmundsson er aftur kominn í íslenska landsliðið eftir meiðsli. 11. nóvember 2014 17:45 Hólmar Örn: Áttum að setjast niður í dag Var rokinn af stað í Noregi aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann fékk símtalið frá KSÍ. 11. nóvember 2014 09:30 Kári: Líklega heppinn að deyja ekki í þessum leik Kári Árnason, leikmaður Rotherham í Englandi, reiknar ekki með öðru en að verða klár í slaginn þegar Ísland mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 á sunnudagskvöld. Hann verður þó ekki með er strákarnir mæta Belgíu í vináttulandsleik ytra annað kvöld. 11. nóvember 2014 06:00 Ólafur Ingi veiktist í nótt Er tæpur fyrir leikinn gegn Belgíu á morgun sem og Sölvi Geir Ottesen. 11. nóvember 2014 14:49 Dembele: Læt Gylfa finna fyrir mér Moussa Dembele segir það hafa verið leitt að sjá eftir Gylfa Þór Sigurðssyni frá Tottenham. 11. nóvember 2014 19:15 Viðar: Heitu pottarnir seljast eins og heitar lummur Sló í gegn í norsku úrvalsdeildinni í vetur en veit ekki hvað tekur við. 11. nóvember 2014 08:38 Mest lesið Kennir kynlífi með kærastanum um að hún féll á lyfjaprófi Sport Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ Körfubolti Íslandsmethafinn segir enga virðingu borna fyrir íþróttafólkinu: „Út í hött“ Sport Missti tönnina, tók hana upp og fór í bikarúrslit Handbolti Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Íslenski boltinn Ólympíufari dæmdur í 21 árs fangelsi fyrir barnaníð Sport Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Körfubolti Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Fótbolti Sektin hans Messi er leyndarmál Fótbolti Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Fótbolti Fleiri fréttir „Þú ert að tengja þetta við Rashford“ Kjartan Kári verður áfram hjá FH eftir að hafa hafnað Val Liverpool rak stjóra kvennaliðsins Magnús Orri tekur við formannsstólnum af Páli Vilja banna fullorðnum leikmönnum að nota barnalegghlífar Tekinn af velli eftir að hann fékk morðhótanir úr stúkunni Sektin hans Messi er leyndarmál Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ Sjá meira
Kompany spilar ekki gegn Íslandi Fyrirliði Manchester City að glíma við meiðsli í kálfa. 11. nóvember 2014 10:00
Jón Daði íhugar samningstilboð frá Viking Gekk betur að spila með landsliðinu en félagsliðinu sínu í Noregi. 11. nóvember 2014 18:15
Ógnarsterkt byrjunarlið hjá Belgum gegn Íslandi Marc Wilmots, landsliðsþjálfari Belga, tilkynnti nú í hádeginu byrjunarlið sitt fyrir leikinn gegn Íslandi á morgun. 11. nóvember 2014 12:23
Gummi Ben lýsir leik Tékklands og Íslands á Bylgjunni Útvarpslýsingar Gumma Ben slógu í gegn fyrr á árinu og nú verður framhald á. 11. nóvember 2014 09:03
Kennslustund Bales nýttist landsliðinu okkar vel Íslenska landsliðið hefur haldið hreinu í 422 mínútur eða í níu síðustu hálfleikjum sem liðið hefur spilað. Á sama tíma hefur íslenska liðið skorað tíu mörk í röð án þess að mótherjarnir hafi svarað. 11. nóvember 2014 08:00
Jóhann Berg: Dapurt ef ég hefði ekki samglaðst Jóhann Berg Guðmundsson er aftur kominn í íslenska landsliðið eftir meiðsli. 11. nóvember 2014 17:45
Hólmar Örn: Áttum að setjast niður í dag Var rokinn af stað í Noregi aðeins nokkrum klukkustundum eftir að hann fékk símtalið frá KSÍ. 11. nóvember 2014 09:30
Kári: Líklega heppinn að deyja ekki í þessum leik Kári Árnason, leikmaður Rotherham í Englandi, reiknar ekki með öðru en að verða klár í slaginn þegar Ísland mætir Tékklandi í undankeppni EM 2016 á sunnudagskvöld. Hann verður þó ekki með er strákarnir mæta Belgíu í vináttulandsleik ytra annað kvöld. 11. nóvember 2014 06:00
Ólafur Ingi veiktist í nótt Er tæpur fyrir leikinn gegn Belgíu á morgun sem og Sölvi Geir Ottesen. 11. nóvember 2014 14:49
Dembele: Læt Gylfa finna fyrir mér Moussa Dembele segir það hafa verið leitt að sjá eftir Gylfa Þór Sigurðssyni frá Tottenham. 11. nóvember 2014 19:15
Viðar: Heitu pottarnir seljast eins og heitar lummur Sló í gegn í norsku úrvalsdeildinni í vetur en veit ekki hvað tekur við. 11. nóvember 2014 08:38