Ekkert lið í Pepsi Max deildinni með færri stig en FH frá 20. maí Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 2. júlí 2021 14:31 Matthías Vilhjálmsson og félagar í FH eru á hraðri leið niður töfluna og enda í fallbaráttu með sama áframhaldi. Vísir/Bára FH-ingar voru á toppnum eftir sigur á HK í fjórðu umferð Pepsi Max deildar karla í fótbolta. Síðan hafa þeir aðeins náð í samtals tvö stig á 45 dögum. Ekkert lið hefur fengið færri stig á þessum tíma. FH hefur ekki náð að fagna sigri í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Það þýðir að liðið hefur spilað sjö leiki í röð í Pepsi Max deildinni án þess að vinna leik. Það er því ekkert skrýtið að Ólafur þjálfari sé farinn að tala um að liðið sitt sé að dragast niður í fallbaráttuna í deildinni. Síðasti sigur FH kom í Kórnum 17. maí síðastliðinn þegar Hafnarfjarðarliðið vann 3-1 sigur á HK. Einu stig FH-inga síðan þá komu í jafnteflisleikjum á móti Stjörnunni 16. júní og á móti KA 27. júní. Leikirnir á móti KR (0-2), Leikni (1-2), Víkingi (0-2), Breiðabliki (0-4) og Val (0-2) hafa allir tapast. FH vann sigur á 2. deildarliði Njarðvíkur í bikarleik á dögunum en þegar kemur að deildinni þá hefur liðið ekki unnið í meira en einn og hálfan mánuð. FH vann þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum og sat í toppætinu eftir leiki fjórðu umferðar 17. maí. KA, Víkingur og Valur voru reyndar öll með tíu stig eins og FH en FH liðið var með bestu markatöluna. FH var með 11 mörk í fjórum leikjum en hefur síðan aðeins skorað þrjú mörk samanlagt í sjö leikjum og hefur á sama tíma fengið á sig fjórtán mörk. Valsmenn eru á toppnum í deildinni og hafa fengið fimmtán fleiri stig en FH á þessu tíma. Valsliðið hefur reyndar leikið einum leik fleira en FH en munurinn á stigasöfnun liðanna er samt ótrúlegur. Stig í húsi hjá Pepsi Max deildarliðum karla frá 20. maí síðastliðnum: 1. Valur 17 stig 2. Breiðablik 15 stig 3. KR 11 stig 3. Stjarnan 11 stig 5. Fylkir 9 stig 5. Víkingur R. 9 stig 7. KA 7 stig 7. Keflavík 7 stig 9. Leiknir R. 6 stig 10. HK 4 stig 10. ÍA 4 stig 12. FH 2 stig Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur. Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Handbolti „Þetta er mjög ljúft“ Handbolti Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims Fótbolti Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Fótbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Handbolti Hummels kom Rómverjum til bjargar Fótbolti Hófu titilvörnina með öruggum sigri Handbolti Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira
FH hefur ekki náð að fagna sigri í fyrstu tveimur deildarleikjum sínum undir stjórn Ólafs Jóhannessonar. Það þýðir að liðið hefur spilað sjö leiki í röð í Pepsi Max deildinni án þess að vinna leik. Það er því ekkert skrýtið að Ólafur þjálfari sé farinn að tala um að liðið sitt sé að dragast niður í fallbaráttuna í deildinni. Síðasti sigur FH kom í Kórnum 17. maí síðastliðinn þegar Hafnarfjarðarliðið vann 3-1 sigur á HK. Einu stig FH-inga síðan þá komu í jafnteflisleikjum á móti Stjörnunni 16. júní og á móti KA 27. júní. Leikirnir á móti KR (0-2), Leikni (1-2), Víkingi (0-2), Breiðabliki (0-4) og Val (0-2) hafa allir tapast. FH vann sigur á 2. deildarliði Njarðvíkur í bikarleik á dögunum en þegar kemur að deildinni þá hefur liðið ekki unnið í meira en einn og hálfan mánuð. FH vann þrjá af fyrstu fjórum leikjum sínum og sat í toppætinu eftir leiki fjórðu umferðar 17. maí. KA, Víkingur og Valur voru reyndar öll með tíu stig eins og FH en FH liðið var með bestu markatöluna. FH var með 11 mörk í fjórum leikjum en hefur síðan aðeins skorað þrjú mörk samanlagt í sjö leikjum og hefur á sama tíma fengið á sig fjórtán mörk. Valsmenn eru á toppnum í deildinni og hafa fengið fimmtán fleiri stig en FH á þessu tíma. Valsliðið hefur reyndar leikið einum leik fleira en FH en munurinn á stigasöfnun liðanna er samt ótrúlegur. Stig í húsi hjá Pepsi Max deildarliðum karla frá 20. maí síðastliðnum: 1. Valur 17 stig 2. Breiðablik 15 stig 3. KR 11 stig 3. Stjarnan 11 stig 5. Fylkir 9 stig 5. Víkingur R. 9 stig 7. KA 7 stig 7. Keflavík 7 stig 9. Leiknir R. 6 stig 10. HK 4 stig 10. ÍA 4 stig 12. FH 2 stig Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Stig í húsi hjá Pepsi Max deildarliðum karla frá 20. maí síðastliðnum: 1. Valur 17 stig 2. Breiðablik 15 stig 3. KR 11 stig 3. Stjarnan 11 stig 5. Fylkir 9 stig 5. Víkingur R. 9 stig 7. KA 7 stig 7. Keflavík 7 stig 9. Leiknir R. 6 stig 10. HK 4 stig 10. ÍA 4 stig 12. FH 2 stig
Pepsi Max deild karla er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Pepsi Max deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði en einnig má kaupa útsendingar sem stakan viðburð á 990 krónur.
Pepsi Max-deild karla FH Mest lesið Baldur og Hrannar með samtals 25 mörk í sigri ÍR Handbolti „Þetta er mjög ljúft“ Handbolti Højlund með tvö mörk í fyrsta sigri Amorims Fótbolti Erfitt kvöld hjá Íslendingunum Fótbolti „Fagmannleg og heilsteypt frammistaða hjá okkur“ Fótbolti Orri og félagar óstöðvandi á heimavelli Handbolti Hummels kom Rómverjum til bjargar Fótbolti Hófu titilvörnina með öruggum sigri Handbolti Uppgjörið: Noah - Víkingur 0-0 | Víkingur sótti sterkt stig til Jerevan Fótbolti „Taktískt flott frammistaða í erfiðum leik“ Fótbolti Fleiri fréttir Elfar Árni heim í Völsung Jóhann semur og heldur Jóhanni í teyminu Eiður Aron áfram á Ísafirði Andri Rúnar í Stjörnuna Hræringar í Bestu: Daníel Hafsteins orðaður við Víking og Andri Rúnar í Garðabæ Tólf leikmenn komnir til KR Geir fer aftur í Vesturbæinn FH-ingar kynntu Birki og Braga Framarar sótt fjóra bita í næstu deild Óli Valur til Blika og sagður sá dýrasti á Íslandi Stefan ætlar að koma Keflavík í deild þeirra bestu Líta á tilboðið í Gylfa sem grín Valgeir til Breiðabliks Eyþór yfirgefur KR Allt lítur vel út hjá Pablo Punyed Ágúst Orri aftur heim í Breiðablik Systur sömdu á sama tíma Katrín áfram í Kópavogi Bjarni áfram hjá KA Þórdís Elva semur við Þróttara Ritstjóri 433.is tekinn við Dalvík/Reyni Birkir Valur yfirgefur HK Enn kvarnast úr liði Vestra Sameina kraftana tólf árum síðar: „Sami texti í samningnum“ Mikill rígur við „Appelsín-strákinn“ Rúrik Rúnari Páli treyst fyrir endurreisn Gróttu Hermann fer inn í hlýjuna: „Eitt af draumastörfunum sem þú færð“ Blysin kostuðu 200 þúsund en engin refsing vegna brettamálsins Skagamenn sökuðu mbl um „smellubeitu“ en fá samt sekt „Áran yfir Meistaravöllum er ólýsanleg“ Sjá meira