„Ég sjálf er mjög viðkvæm fyrir því hvað ég býð skynfærunum mínum upp á“ Elísabet Hanna skrifar 29. júní 2022 11:31 Tónlistarkonan Ragnheiður Gröndal gaf út plötuna „The Unicorn Experience“ sem er búin til fyrir þá sem nota tónlist markvisst til að hafa áhrif á eigin líðan. Platan inniheldur fjögur lög sem saman mynda eina heild.
Allir í hlutverkum Myndlistarkonan Helma Þorsteinsdóttir málaði umslagsmyndina eftir hugmynd Röggu um kamelljón með einhyrningahorn. „Ég held að langflestir þurfi að leika alls konar hlutverk í lífinu og stöðugt vera að laga sig að hinu og þessu; t.d. dyntum í öðru fólki og ólíkum aðstæðum og það getur verið mjög krefjandi,“ segir Ragga um hugmyndina á bak við það og bætir við: „Kamelljónið skiptir litum í náttúrunni eftir þörfum og það finnst mér fallegt. Ég tileinka þetta verk öllum dýrum á jörðinni sem hafa ekki rödd en lífsbarátta þeirra er samt í mínum huga jafn merkileg og okkar mannanna. “ Blaðamaður fékk að heyra meira um vinnslu verksins: Hvernig var ferlið að gera plötuna? Ferlið var í kringum tvö til þrjú ár. Lögin voru samin haustið 2019 og fljótlega í kjölfarið fór ég að dútla í tölvunni við fyrstu demó. Þau voru svona eins og myndlistarmaður hefði skellt öllum litunum beint á strigann og gleymt sér alveg í gleðinni. Síðan kom covid og mestöll vinna datt upp fyrir hjá okkur tónlistarfólkinu. Þá bauð Rannís upp á styrki fyrir verkefnum og ég sótti um og fékk styrk. Þá var ekki aftur snúið. Eftir það voru teknir þó nokkrir hringir í ferlinu öllu og ýmsar útgáfur urðu til á lögunum. En við enduðum á því að taka kjarnann upp „læv“ í stúdíóinu okkar vorið 2021 og svo var unnið út frá þeim upptökum. Það er svo fyrir endalausa þolinmæði og þrautseigju samstarfsmanns míns og unnusta til ótal ára, Guðmundar Péturssonar að verkefnið náði að raungerast á endanum. Hvaðan kemur titillinn? Í dulspeki er talað um að einhyrningar beri með sér mjög fínlega tíðni og bjart ljós og standi fyrir veröld þar sem allt er hægt og þar sem er gaman að vera til. Þannig að ég er að bjóða fólki inn í hljóðheim einhyrninga í smástund. Lagatitlarnir koma frá einhyrningaspilastokki sem ég á og nota til þess að sækja mér góð ráð. Hvaðan sóttir þú innblástur? Í téðan einhyrningaspilastokk en ég var líka undir sterkum áhrifum frá tónlistarkonunum Ane Brun og India Arie, sérstaklega tveimur plötum sem ég var mikið að hlusta á með þeim á þessu tímabili. Svo eru Kate Bush og Wayne Shorter oft í huga mér þegar ég skapa og þeirra hugmyndafræði er brunnur sem ég sæki mikið í. Hvernig hefur platan áhrif á líðan hlustenda?Mín hugmynd er sú að hlustandi geti notað þessa tónlist til að gefa sjálfum sér smá pásu frá daglegu amstri. Verkið er 20 mínútur að lengd og það er tilvalið að gefa sér stund annað hvort með því hreinlega að leggjast niður eða setjast í þægilegan stól og leyfa tónlistinni að smjúga inn í taugakerfið. Ég get náttúrulega ekki talað fyrir mögulega hlustendur en minn ásetningur var að tónlistin myndi hafa jákvæð og heilandi áhrif á þann sem hlustar. En maður getur að sjálfsögðu aldrei sagt að einhver tónlist hafi sömu áhrif á alla því allir koma frá svo ólíkum stað og hafa mismunandi smekk. Ég gæti til dæmis triggerast við að heyra ákveðna tegund tónlistar meðan einhver annar fer í algjört bliss! Ég sjálf er mjög viðkvæm fyrir því hvað ég býð skynfærunum mínum upp á og þessi tónlist á allavega helst ekki að æsa fólk upp eða gera það stressað. Ég vona innilega að forvitnir og velviljaðir tónlistarelskendur fái mikið út úr því að hlusta. Mig langar að tónlistin sem ég skapa færi hlustendann nær sjálfum sér og gefi honum gleði og friðsæld. Hvað er framundan? Framundan eru tónleikar hér og þar um landið í sumar og svo syng ég alltaf mikið við útfarir og brúðkaup. Það er svona mitt starf alla jafna og mér finnst það mjög gefandi. Síðan er ég að taka þátt í stóru verkefni á Jazzhátíð Reykjavíkur og verð hljómborðsleikari á tónleikum með Birni Jörundi í júlí. Ef ég held útgáfutónleika fyrir „The Unicorn Experience“ þá mun ég bjóða áhorfendum að liggja eða sitja í mjög þægilegum stólum. Það er draumur hjá mér að halda tónleika sem eru blanda af jógatíma og tónlistarupplifun.
Tónlist Mest lesið Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ Lífið Ástin blómstraði í karókí Lífið Michelle Trachtenberg er látin Lífið Ása Steinars á von á barni Lífið „Ég tala ekki einu sinni um þetta við vini mína“ Lífið Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Lífið Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Lífið Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Lífið Ríkulegra heimili með einföldum ráðum Lífið Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Lífið Fleiri fréttir Ása Steinars á von á barni Ástin blómstraði í karókí Michelle Trachtenberg er látin Kjósa ekki Fiennes heldur Brody vegna misskilnings Öllu tjaldað til í sjö ára afmæli Chicago Halla og Bjössi í Mottumars sokkunum í fyrsta sinn Steinhissa en verður Dumbledore Fluttu með alla fjölskylduna til Tene: „Nenni ekki að vera í þessari typpakeppni“ „Hann kann að dansa, maður minn!“ Skuggavaldið: Samsæriskenningum aldrei verið beitt svona áður Segir hlutverkið hafa bjargað lífi sínu Stöðugt spurðir hvers vegna þeir ættleiddu ekki bara Rappar um vímu Sjóðheit stemning í eftirpartýi Flóna 38 ára hreinn sveinn: Er til leið út úr þessum vítahring? Ísraelar þekkja ásakanir um stuld af eigin raun Ómótstæðilegar Créme Brulée bollur með stökkum sykurhjúp Bubbi byrjaður á hugvíkkandi efnum Heillandi heimili í Hlíðunum Hótaði óprúttnum grínista hálsbroti Vilja að Íslandi verði vísað úr keppni ef ekki er fallist á kröfur þeirra Langar að verða menntamálaráðherra og breyta miklu í kjölfarið Mikil ást á klúbbnum Gellurnar fjölmenntu í afmæli Porra Vinur Patriks kom upp um hann Grammy-goðsögnin Roberta Flack látin Svona skiptust atkvæðin í Söngvakeppninni í heild sinni Gurrý selur slotið Blöskrar tíminn sem þingmenn verja í tappatuð og gallabuxur Allskonar trix til að spara mikla fjármuni Sjá meira