Newcastle mistókst að endurheimta þriðja sætið Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 4. febrúar 2023 19:28 Newcastle og West Ham skiptu sigunum á milli sín í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Richard Sellers/Getty Images Newcastle og West Ham skiptu stigunum á milli sín er liðin gerðu 1-1 jafntefli í seinasta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Segja má að leikurinn hafi byrjað af miklum krafti því strax á fyrstu mínútu leiksins var Joe Willock búinn að koma boltanum í netið fyrir heimamenn í Newcastle. Eftir stutta skoðun myndbandsdómara kom þó í ljós að boltinn hafði farið út af vellinum í aðdraganda marksins og það fékk því ekki að standa. Aðeins 97 sekúndum eftir að Joe Willock kom boltanum í netið fyrir Newcastle gerði Callum Wilson slíkt hið sama fyrir liðið eftir stoðsendingu frá Sean Longstaff. Í þetta skipti sá myndbandsdómarinn ekkert athugavert við markið og staðan því orðin 1-0, Newcastle í vil. Eftir þessa fjörugu byrjun róaðist leikurinn, en Lucas Paqueta jafnaði metin fyrir gestina á 37. mínútu og staðan var því 1-1 þegar liðin gengu til búningsherbergja. Ekki tókst liðunum að bæta við mörkum í síðari hálfleik og niðurstaðan varð því 1-1 jafntefli. Newcastle situr nú í fjórða sæti deildarinnar með 40 stig eftir 21 leik, tveimur stigum á eftir Manchester United sem vann sigur gegn Crystal Palace fyrr í dag, en sigur hefði komið Newcastle aftur upp í þriðja sæti deildarinnar. West Ham situr hins vegar í 16. sæti með 19 stig, einu stigi fyrir ofan fallsvæðið.
Enski boltinn Mest lesið Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Enski boltinn Uppgjörið: Fram - Afturelding 36-33 | Fram í bikarúrslit eftir framlengingu Handbolti Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Fótbolti Komnir með þrettán stiga forskot Enski boltinn Elísabet byrjar á tveimur töpum Fótbolti Orri með fjögur gegn strákunum hans Guðmundar Handbolti „Okkur langar virkilega að vinna titla hérna“ Sport Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Enski boltinn Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Fótbolti Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Enski boltinn Fleiri fréttir Ten Hag segir leikmenn í dag of viðkvæma Elísabet byrjar á tveimur töpum Orri og félagar þurfa að koma til baka á Santiago Bernabéu Komnir með þrettán stiga forskot Markalaust í Skírisskógi en Everton heldur áfram að safna stigum Fimm mörk, rautt spjald og kærkominn sigur United Haaland sneri aftur og var hetjan Atli Sigurjóns framlengir við KR Darwin Núnez langt frá efstu mönnum í klúðruðum dauðafærum Labbar inn í stjórn UEFA án kosningar og fær fyrir 23 milljónir á ári Tannvesen á Mbappé sem spilar ekki í kvöld Ronaldo sýndi óvænta óeigingirni Ótrúlegir taktar á æfingu hjá Pablo Punyed Yngri bróðir Benoný Breka yfirgefur líka KR „Fyrr skal ég dauður liggja“ Slot í bann og stýrir Liverpool ekki í kvöld Allt annað en sáttur með Frey FH-ingar æfðu á grasi í febrúar Síðhærði Færeyingurinn snýr aftur norður Kemur meiddur til Víkings en þó á miklu betri stað Lögreglumaður var fótboltabulla í felum Kveðst viss um eftirsjá Gylfa: „Hefðum unnið mótið í fyrra með hann“ „Þær eru skíthræddar við okkur í lokin“ „Síðasti þriðjungur var erfiður fyrir okkur“ Ótrúleg markasúpa í Katalóníu Uppgjörið: Frakkland - Ísland 3-2 | Frakkar númeri of stórir Inter í undanúrslit Chelsea skrapaði botninn með Southampton Fjórar breytingar hjá Íslandi: Löng bið Andreu á enda og tímamót hjá Glódísi Dramatík þegar Noregur komst á blað í Þjóðadeildinni Sjá meira