Átta sækja um embætti forstjóra Veðurstofunnar Átta sóttu um embætti forstjóra Veðurstofu Íslands sem umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið auglýsti laust til umsóknar í síðasta mánuði. Innlent 19. desember 2023 13:11
Þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð að leiðarljósi Katrín Jakobsdóttir foræstisráðherra segir ríkisstjórnina að sjálfsögðu hafa rætt eldgosið á Reykjanesskaga á reglubundnum fundi sínum í ráðherrabústaðnum í morgun. Hún sé þess þakklát að varúðarsjónarmið hafi verið höfð í hávegum og enginn hafi verið í Grindavík þegar eldgos hófst. Innlent 19. desember 2023 12:38
Lúðvík skipaður forstjóri Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða Willum Þór Þórsson heilbrigðisráðherra hefur skipað Lúðvík Þorgeirsson í embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Vestfjarða til næstu fimm ára, frá 1. mars 2024. Lúðvík hefur síðustu ár starfað sem rekstrarstjóri hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu. Hann tekur við stöðunni af Gylfa Ólafssyni. Innlent 19. desember 2023 11:55
Rósum prýdd mótmæli á Austurvelli Á dögunum efndu Samtök aðstandenda og fíknisjúkra til mótmæla á Austurvelli. Með mótmælunum vildu samtökin koma skýrum skilaboðum til stjórnvalda um erfiða stöðu fólks sem glímir við vímuefnavanda. Skoðun 19. desember 2023 08:00
Stjórnendur ekki ákveðið hvort Bláa lónið þiggi ríkisstyrk Gestafjöldi í Bláa lóninu í gær og dag er um helmingur þess sem hann er í eðlilegu árferði segir framkvæmdastjóri þar eftir að það opnaði í gær. Hún segir starfsmenn hafa æft rýmingu meðan lónið var lokað. Stjórnendur hafi ekki ákveðið hvort þeir ætli að þiggja ríkisstyrk vegna lokunarinnar. Innlent 18. desember 2023 20:00
Frost í viðræðum flugumferðarstjóra og SA Ekki hefur verið fundað formlega í deilu flugumferðarstjóra og Samtaka atvinnulífsins í dag. Innviðaráðherra segir deiluaðila verða að sýn ábyrgð og leysa deiluna við samningaborðið en útilokar ekki stjórnvöld grípi inn í með lagasetningu. Sáttasemjari segir að litið sé til þess að gera skammtímasamning. Innlent 18. desember 2023 19:21
Eigendur skrái kílómetrastöðu í janúar Alþingi samþykkti um helgina frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um kílómetragjald á rafmagns, vetnis-og tengiltvinnbíla í flokki fólks- og sendibíla. Fyrsta skráning eigenda á kílómetrastöðu á að fara fram fyrir 20. janúar næstkomandi. Innlent 18. desember 2023 17:48
Segir fjárlögin ekki endurspegla veruleikann í íslensku samfélagi Dagana fyrir þinghlé voru afgreidd mörg stór mál sem varða losunarheimildir, gistináttaskatt, húsnæðismál Grindvíkinga og kílómetragjald fyrir eigendur rafknúinna ökutækja, lög um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir svo fátt eitt sé nefnt. Þá voru fjárlögin samþykkt með halla sem nemur 51 milljarði króna sem Hönnu Katrínu Friðriksson, þingflokksformanni Viðreisnar þykir allt of mikill. Innlent 18. desember 2023 15:48
Kostar 3.000 krónur að vera of seinn að sækja krakkann Sveitarfélagið Árborg hefur sent út tilkynningu til foreldra leikskólabarna vegna rúmlega helmingshækkunar á leikskólagjaldi er lúta að frávikum umsamins dvalartíma. Kostar hvert korter nú 1.911 krónur en hækkar upp í 3.000 krónur eftir áramót. Innlent 18. desember 2023 14:53
Þolimæði stjórnvalda að þrotum komin Þolinmæði stjórnvalda gagnvart verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er við það að bresta. Innviðaráðherra ætlast til að deiluaðilar setjist að samningaborðinu og leysi deiluna. Aðgerðir flugumferðarstjóra hafa nú þegar haft bein áhrif á ferðatilhögun hátt í þrjátíu þúsund farþega íslensku flugfélaganna. Innlent 18. desember 2023 11:48
„Við viljum fá lista yfir glæpi okkar“ Sveitarstjórn Strandabyggðar á Vestfjörðum telur sig ekki hafa forsendur til að hlutast til um mál þar sem eiginkona sveitarstjórans sakar fyrrverandi sveitarstjórnarmann um að hafa dregið sér tugi milljóna á síðasta kjörtímabili. Innviðaráðuneytið beindi þeim tilmælum til sveitarstjórnarinnar að svara bréfum vegna málsins. Innlent 18. desember 2023 09:11
Hvað ætlar Samfylkingin að verða, ef hún verður stór? Með nokkurra vikna millibili hér í haust og vetrarbyrjun tilkynnti Samfylkingin í tvígang hvernig hún ætlaði að bjarga málunum. Fyrst átti að bjarga heilbrigðiskerfinu frá glötun og fjármagna þá aðgerð með því að hækka fjármagnstekjuskatt, hækka veiðigjöldin, taka til baka lækkun bankaskatts og loka svokölluðu ehf-gati. Skoðun 18. desember 2023 08:00
Mikilvægt samkomulag ríkis og sveitarfélaga í málefnum fatlaðs fólks Mikilvæg niðurstaða er komin í kostnaðarskiptingu ríkis og sveitarfélaga vegna þjónustu við fatlað fólk, en fulltrúar stjórnvalda skrifuðu undir samning þess efnis fyrir helgi. Umfangsmikil greiningarvinna hefur farið fram á tilurð kostnaðarauka sveitarfélaga á undanförnum árum sem liggur að baki þessari niðurstöðu. Skoðun 18. desember 2023 07:00
Segja frumvarp gegn verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra tilbúið Frumvarp um lög gegn verkfallsaðgerðum flugumferðarstjóra er tilbúið í innviðaráðuneytinu og líkur á að það verði lagt fram í vikunni. Innlent 18. desember 2023 06:19
Þakklát íslensku þjóðinni Asil J. Suleiman Almassri sem missti fótinn og stóran hluta fjölskyldunnar í ísraelskum loftárásum á Gasasvæðinu hefur verið veittur íslenskur ríkisborgarréttur. Innlent 17. desember 2023 16:09
„Mjög svo“ ósáttur við ferðagjöld og vöruflutningagjöld milli landa Forseti Alþingis segir Alþingi hafa náð að klára þau mál sem áttu að klárast á síðasta þingfundi fyrir jól. Þingmaður Miðflokksins segist mjög ósáttur við afgreiðslu ríkisstjórnarinnar á máli um ný gjöld á flugferðir og vöruflutninga milli landa. Innlent 16. desember 2023 22:01
Samþykkt að Kristján Jóhannsson fái heiðurslaun listamanna Kristján Jóhannsson óperusöngvari mun á nýju ári bætast í hóp þeirra listamanna sem hljóta heiðurslaun. Alþingi samþykkti breytinguna á síðasta þingfundi fyrir jól sem fram fór í dag. Innlent 16. desember 2023 20:57
Tuttugu hlutu ríkisborgararétt á síðasta þingfundinum Alþingi veitti tuttugu manns ríkisborgararétt í dag, á síðasta þingfundi fyrir jól. Flestir þeirra koma frá Íran. Fimmtíu greiddu atkvæði með frumvarpinu og enginn gegn því. Innlent 16. desember 2023 19:46
Áfram eða afturábak? Hún er dálítið skrýtin tík þessi pólitík - að minnsta kosti í Hafnarfirði. Hér eru nokkur dæmi um samskipti jafnaðarmanna í bæjarstjórn við svonefndan meirihluta Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks. Þar sem þeir fyrrnefndu leggja til markviss skref til að auka velferð bæjarbúa, en þeir síðarnefndu þrjóskast við og vilja kyrr kjör. Skoðun 16. desember 2023 13:30
„Við munum að sjálfsögðu krefjast þess að sitja í þessum hópi“ Formaður ÖBÍ segir nýtt samkomulag ríkis og sveitarfélaga um breytingu í þjónustu sveitarfélaga við fatlaða í gær fagnaðarefni. Samkomulagið eigi að tryggja fötluðum lögbundna þjónustu frá sveitarfélögum sem hingað til hafi reynst erfitt. Innlent 16. desember 2023 12:27
Sex milljarða hækkun í málum fatlaðra Ríkið og sveitarfélögin skrifuðu undir samkomulag í dag um breytingu í þjónustu sveitarfélaga við fatlaða. Samkomulagið felur í sér flutning sex milljarða króna frá ríkinu fyrir málaflokkinn. Innlent 15. desember 2023 17:35
Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar sagt upp Öllum starfsmönnum Menntamálastofnunar var sagt upp í morgun. Alls störfuðu 46 hjá stofnuninni. Forstjóri stofnunarinnar, Þórdís Jóna Sigurðardóttir, segir þetta ekki hafa komið starfsmönnum á óvart. Meiri stuðningur við skólasamfélagið verði í nýrri stofnun. Innlent 15. desember 2023 13:29
Breytingar hjá Strætó snúast ekki um að rukka svindlara Að gefnu tilefni vil ég fjalla aðeins um yfirvofandi breytingar hjá Strætó. Þá er það fyrst og fremst tvennt. Skoðun 15. desember 2023 10:31
Hversu margir þurfa að deyja? Á þessu ári munu 80 einstaklingar yngri en 50 ára deyja af völdum fíknisjúkdóms. Hér er hvorki talið með fólk sem er yfir fimmtugt né fólk sem deyr úr sjúkdómnum án þess að hafa farið á Vog. Ef við tækjum þá hópa með væri fjöldinn vel yfir hundrað manns. Skoðun 15. desember 2023 10:00
Efnahagsstjórn Pírata Ég skal vera fyrstur til þess að viðurkenna að þegar fólk hugsar um efnahagsstjórn, þá hugsar það líklega ekki strax um Pírata. Það eru hins vegar fjölmargar ástæður fyrir því að fólk ætti að íhuga efnahagsstefnu Pírata í staðinn fyrir núverandi frasaefnahagsstjórn. Skoðun 15. desember 2023 09:01
Óútskýranleg mannvonska Í gær felldu ríkisstjórnarflokkarnir tillögu Flokks fólksins um 66.381 kr skatta og skerðingalausan jólabónus handa eldra fólki í sárri neyð. Sambærilegan jólabónus og greiddur er til öryrkja þriðju jólin í röð. Skoðun 15. desember 2023 08:31
Fjórtán vændisbrot til rannsóknar á árinu Fjórtán vændisbrot hafa komið inn á borð lögreglu til rannsóknar á árinu sem er að líða. Þetta kemur fram í svörum dómsmálaráðherra við fyrirspurn Brynhildar Björnsdóttur, varaþingmanns VG. Innlent 15. desember 2023 07:26
Hvers vegna svelta ráðamenn Samkeppniseftirlitið? Á þeim fákeppnismarkaði sem Ísland er sökum smæðar sinnar og samþjöppunar eignarhalds er Samkeppniseftirlit lykill að því að almenningur geti treyst því að leikreglum og ráðdeildarsemi sé fylgt. Skoðun 14. desember 2023 21:00
Geta átt von á um mörg hundruð þúsunda endurgreiðslu Foreldrar barna 18 mánaða og eldri geta átt von á mörg hundruð þúsunda endurgreiðslu eftir áramót frá Reykjavíkurborg vegna greiddra dagforeldragjalda. Ný gjaldskrá og aukinn stuðningur við foreldra voru samþykkt á fundi borgarráðs í dag. Alls eru um 100 til 200 börn á þessum aldri enn hjá dagforeldrum. Innlent 14. desember 2023 20:01
Heims um ból, friðsælt skjól Ísland hefur varið titilinn um friðsælasta land í heimi síðan árið 2008. Hér er gott að vera, hér eigum við flest öll von á því að börnin okkar geti alist upp í friðsælu umhverfi með aðgang að öllu því sem hugurinn girnist. Allt samfélagið er stillt inn á það að aðstoða þau, vinna fyrir því að mannréttindi þeirra og aðgengi að heiminum sé betra en það sem fullorðna fólkið ólst upp við. Skoðun 14. desember 2023 19:01