Spánverjar í vandræðum með Brasilíu | Gajic skoraði 15 mörk Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 17. janúar 2015 15:40 Antonio Garcia reynir skot að marki Brasilíu í dag. vísir/getty
Heimsmeistarar Spánverja unnu torsóttan tveggja marka sigur, 27-29, á Brasilíu í A-riðli á HM í handbolta í Katar í dag. Spánn er með fullt hús stiga eftir tvo leiki en liðið lagði Hvíta-Rússland að velli í gær. Brasilíumenn, sem töpuðu fyrir Katar í opnunarleik mótsins, héldu í við Spánverja í fyrri hálfleik en staðan að honum loknum var 14-15. Cesar Almeida, markvörður Brasilíu, var í miklu stuði í fyrri hálfleik og varði 13 skot, en botninn datt algjörlega úr sóknarleik Spánverja seinni hluta hálfleiksins. Brassarnir héldu áfram að þjarma að Spánverjum í seinni hálfleik og náðu loks að jafna í 18-18 þegar Felipe Ribero skoraði eftir hraðaupphlaup. Skömmu síðar komust Brasilíumenn yfir, 19-18, eftir annað hraðaupphlaupsmark frá Joao Silva. En um miðjan seinni hálfleik sprungu Brasilíumenn á limminu. Spánn breytti stöðunni úr 23-23 í 25-29 og heimsmeistararnir unnu að lokum tveggja marka sigur, 27-29. Joan Canellas var markahæstur í liði Spánar með átta mörk, en Valero Rivera kom næstur með sjö. Þá átti José Manuel Sierra flottan leik í markinu en hann varði um 20 skot. Ribero og Guilherme de Toledo skoruðu fimm mörk hvor fyrir Brasilíu. Slóvenar áttu ekki í miklum vandræðum með að leggja Hvíta-Rússlandi að velli í sama riðli. Slóvenar voru níu mörkum yfir í hálfleik, 8-17, og þann mun náðu Hvít-Rússar aldrei að brúa. Lokatölur 29-34, Slóvenum í vil sem eru með fullt hús stiga eftir tvo leiki líkt og Spánverjar. Dragan Gajic, hornamaðurinn frábæri, skoraði 15 mörk fyrir Slóveníu en hann hefur farið mikinn í upphafi móts og skoraði níu mörk í sigrinum á Chile í gær. Maxim Babichev skoraði fimm mörk fyrir Hvít-Rússa sem eru enn án stiga.Gajic skorar eitt af 15 mörkum sínum gegn Hvít-Rússum í dag.vísir/getty
HM 2015 í Katar Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Fleiri fréttir Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Rekinn út af eftir 36 sekúndur Uppgjörið: FH - Fram 24-27 | Fram komið yfir í einvígi sínu við FH Ótrúleg dramatík hjá Aldísi Ástu „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri Uppgjörið: Haukar - ÍBV 26-20 | Heimakonur sýndu gæðin í seinni hálfleik Færeyjar fylgja Íslandi á sitt fyrsta HM Bjarki markahæstur í úrslitaleiknum en Janus varð bikarmeistari Elvar markahæstur hjá Melsungen í úrslitaleiknum Íslendingalið leika til úrslita í bikarkeppnum Fimmti sigur strákanna hans Arnórs í röð Haukur bikarmeistari í Rúmeníu Kolstad í undanúrslit eftir annan risasigur Hugurinn hjá hinum raunverulegu fórnarlömbum Dagur með markahæstu mönnum í stórsigri Yfirlýsing frá landsliðinu: „Förum fram á að Ísrael verði meinuð þátttaka“ Stelpurnar földu auglýsingu Rapyd eftir sigurinn Myndasyrpa: Tryggðu HM-sætið og kvöddu Steinunni „Alsæl með að skilja við liðið á leiðinni á HM“ „Þungu fargi létt eftir afar tilfinningaþrungna viku“ Steinunn hætt í landsliðinu Uppgjörið: Ísrael - Ísland 21-31 | Íslenska liðið á leið á sitt þriðja stórmót í röð Magdeburg nálgast toppinn eftir stórsigur í Íslendingaslag Sjá meira