Tékkar mæta stigalausir í Íslandsleikinn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 20. janúar 2015 17:39 Filip Jicha í leiknum í dag. Vísir/AFP
Egyptaland vann þriggja marka sigur á Tékklandi, 27-24, í fyrsta leik dagsins í riðli Íslands á HM í handbolta í Katar. Egyptar voru með frumkvæðið allan leikinn og sigurinn var öruggur. Egyptar hafa unnið tvo af fyrstu þremur leikjum sínum á mótinu en Tékkar hafa aftur á móti tapað þremur fyrstu leikjum sínum og mæta því stigalausir í leikinn á móti Íslandi á fimmtudaginn. Karim Handawy átti góðan leik í marki Egypta og reyndist Tékkum afar erfiður. Ahmed Elahmar var hinsvegar markahæstur í landsliði Egyptalands með sex mörk. Filip Jicha lék með Tékkum á ný og var næstmarkahæstur með fjögur mörk en sá markahæsti var Jakub Hrstka með fimm mörk. Tékkar byrjuðu ágætlega og komust í 3-1 en þá komu fimm mörk í röð frá Egyptalandi og þeir tóku frumkvæðið. Egyptaland var síðan þremur mörkum yfir í hálfleik, 13-10, og var skrefinu á undan í seinni hálfleiknum þótt að Tékkar hafi náð því að minnka muninn í eitt mark um miðjan hálfleiknum. Egyptar breyttu stöðunni úr 20-19 í 26-21 á tæpum tíu mínútum og gerðu út um leikinn. Eftir það var sigurinn aldrei í hættu.
HM 2015 í Katar Mest lesið Glórulaus tækling Gylfa Þórs Íslenski boltinn „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Handbolti „Get ekki setið við hliðina á þér lengur“ Fótbolti „Maður þarf að skora til að vinna leiki“ Fótbolti „Bæði svekktur en líka stoltur“ Íslenski boltinn „Hefðum þurft tvö til þrjú stemningsskot“ Körfubolti „Góðir leikmenn sem taka góðar ákvarðanir“ Körfubolti „Aldrei séð annan eins mun á villufjölda“ Körfubolti Dagskráin í dag: Gylfi Þór mætir til leiks með Víkingum og úrslitakeppnin heldur áfram Sport „Verðum bara að vona það besta en undirbúa okkur fyrir það versta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Síðast þegar ég sá svona atriði var það Petersson í Austurríki“ Íslandsmeistararnir örugglega í undanúrslit Uppgjörið: Haukar - Fram 25-28 | Framarar í undanúrslit Ekki með gegn Ísrael þar sem hún er ólétt Ísland - Ísrael: Aðgengi fjölmiðla að íslenska liðinu til skoðunar „Höfum orðið þess áskynja að það sé mikil ólga útaf leiknum“ „Ferli sem fer í gegnum yfirvöld en ekki íþróttahreyfinguna“ Lögreglan bannar áhorfendur á leikjum Íslands gegn Ísrael Stórleikur Andra Más dugði ekki gegn Magdeburg Jón Halldórsson kjörinn formaður HSÍ Björgvin Páll lokaði markinu og Valsmenn komnir í 1-0 Melsungen enn með í titilbaráttunni „Beint upp í rútu og ná í annan sigur í dag“ Uppgjörið: Afturelding - ÍBV 32-30 | Mosfellingar unnu fyrsta slaginn FH og Fram byrjuðu úrslitakeppnina á sigri Elín Klara markadrottningin í ár en gaf líka flestar stoðsendingar Júlíus: Mér finnst að kvennalið Gróttu eigi að vera á þessum stað Úrslitakeppnin klár í Olís deild kvenna Uppgjör: ÍR-Grótta 31-26 | ÍR sendi Gróttuna niður í Grillið Janus Daði og félagar slógu PSG út úr Meistaradeildinni Kristján Örn og félagar töpuðu stigi í Íslendingaslag Tryggvi og félagar sendu Ólaf í sumarfrí Ómar Ingi markahæstur í sigri í Meistaradeildinni Súrt kvöld fyrir íslensku landsliðskonurnar „Eins og draumur að rætast“ Íslendingalið í átta liða úrslit Evrópudeildarinnar Þórey aftur inn í landsliðið: „Þurftum bara aðeins að hreinsa andrúmsloftið“ Valskonur fá seinni leikinn heima KA kaus að losa sig við þjálfarann Íslendingalið í bullandi tapi og getur ekki sótt fleiri stjörnur Sjá meira