Schalke skoraði fjögur mörk á Bernabéu en Real komst áfram | Sjáið mörkin Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. mars 2015 17:09 Klaas-Jan Huntelaar. Vísir/AFP
Evrópumeistarar Real Madrid eru komnir áfram í átta liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en frammistaða liðsins á Bernabéu í kvöld var þó langt frá því að vera sannfærandi þar sem spænska liðið skreið áfram eftir 4-3 tap á heimavelli á móti Schalke 04. Flestir bjuggust ekki við miklu af liði Schalke 04 í leiknum en frábær frammistaða þýska liðsins dugaði næstum því enda vantaði liðið bara eitt mark til að senda Real Madrid út úr Meistaradeildinni. Cristiano Ronaldo skoraði tvö mörk fyrir Real Madrid í kvöld og það gerði Hollendingurinn Klaas-Jan Huntelaar líka fyrir Schalke. Schalke byrjaði leikinn mjög vel á móti hálfsofandi liði Real Madrid og þýska liðið var búið að fá eitt gott færi þegar Christian Fuchs skoraði fyrsta mark leiksins á tuttugustu mínútu og kom Schalke-liðinu í 1-0. Markið var því búið að liggja í loftinu. Það tók Real Madrid aðeins fimm mínútur að jafna metin en Cristiano Ronaldo skoraði þá með fallegum skalla eftir hornspyrnu frá Toni Kroos. Þýska liðið var ekkert að láta þetta mark slá sig út af laginu og Klaas-Jan Huntelaar kom Schalke aftur yfir á 40. mínútu eða aðeins nokkrum sekúndum efir að hann átti þrumuskot í samskeytin. Örstuttu síðar fylgdi Hollendingurinn eftir skoti félaga sína og skoraði á móti sínum gömlu félögum. Cristiano Ronaldo var hinsvegar einn af fáum með lífsmarki í liði Real Madrid í fyrri hálfleiknum og hann jafnaði metin aftur á 45. mínútu þegar hann skallaði inn fyrirgjöf frá Fábio Coentrao. Karim Benzema kom Real Madrid yfir í fyrsta sinn í leiknum þegar hann skoraði þriðja mark spænska liðsins á 53. mínútu en Leroy Sané, sem er 19 ára strákur sem var að spila sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni, jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar. Klaas-Jan Huntelaar skoraði fjórða mark Schalke og sitt annað mark á 85. mínútu og setti þá mikla spennu í leikinn enda þurfti þýska liðið þá bara eitt mark til viðbótar til að fara áfram á fleiri mörkum á útivelli. Iker Casillas, markvörður Real Madrid, var betri en enginn í lokin og varði meðal annars frá Benedikt Höwedes en þýska liðið pressaði á lokakaflanum. Real Madrid hélt út en með naumundum þó og leikur liðsins verður örugglega harðlega gagnrýndur í spænsku blöðunum eftir leikinn.Schalke kemst í 1-0 á móti Real Madrid Ronaldo jafnar fyrir Real Madrid Klaas-Jan Huntelaar skorar gegn gömlu félögunum Ronaldo jafnar aftur fyrir Real Madrid Karim Benzema skorar fyrir Real Madrid Sané jafnaði í sínum fyrsta Meistaradeildarleik Klaas-Jan Huntelaar með sitt annað mark
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Enski boltinn Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Fótbolti Haukur hlýddi Snorra strax og er á leið til Löwen Handbolti Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Körfubolti Fleiri fréttir „Ef þeir fá ekki gul spjöld halda grófu brotin bara áfram“ Sveindís fær engar skýringar: „Ég hef greinilega ekki verið í uppáhaldi“ Endurkomukóngarnir í Leeds með fimm stiga forskot á toppnum Valsmenn settu sex gegn Grindavík „Danska“ félagið í MLS sigraði meistarana í fyrsta leik Gísli og félagar með fullt hús stiga Hélt að „spilling“ þýddi eitthvað annað og dregur ummælin til baka Jóhann byrjaði og Kurt Zouma kom inn af bekknum í sigri Al Orobah Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum Sjá meira