Körfuboltahreyfingin er klofin í tvennt Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. maí 2015 07:00 Framtíð erlendra leikmanna í Domino's-deild karla verður til umræðu á ársþingi KKÍ. Nú gæti Könum fjölgað í deildinni. Vísir/Davíð Þór Guðlaugsson
Enn eina ferðina verða útlendingamálin í körfuboltanum til umræðu á ársþingi KKÍ sem hefst í dag með nefndavinnu. Þrjú lið leggja fram tillögur sem myndu fjölga erlendum leikmönnum í deildinni, en undanfarin tvö ár hefur verið notast við 4+1-regluna. Hún felur í sér að aðeins megi einn leikmaður sem ekki er íslenskur ríkisborgari vera inni á vellinum hverju sinni. Þessu vilja Höttur frá Egilsstöðum, Keflavík og KFÍ á Ísafirði breyta. Tillaga Keflavíkur og Hattar er svipuð. Í grunninn vilja liðin leyfa tvo erlenda leikmenn inni á vellinum í einu, en þannig var reglan áður en farið var í fjóra plús einn. Þá skiptir engu máli hvort leikmaðurinn sé Bandaríkjamaður eða innan FIBA Europe-landanna, svokallaður Bosman-leikmaður. Verði tillaga KFÍ samþykkt mega liðin nota einn Bandaríkjamann inn á hverju sinni og ótakmarkaðan fjölda Bosman-leikmanna.Bestu Íslendingarnir vinna „Ástæðan fyrir þessu er, eins og kemur fram í greinargerðinni, að við vildum auka gæðin aðeins í deildinni,“ segir Sævar Sævarsson, varaformaður körfuknattleiksdeildar Keflavíkur, við Fréttablaðið. „Við erum líka í rauninni að svara kalli landsbyggðarinnar sem hefur ekki sömu möguleika og Reykjavíkur- og Suðurnesjaliðin að fá til sín íslenska leikmenn,“ segir Sævar. Hann segir það ekki öllu máli skipta hvort útlendingarnir séu einn eða tveir, það lið sem hefur bestu Íslendingana vinnur alltaf. „Sama hver reglan er vinnur liðið með bestu íslensku leikmennina og þannig hefur það verið undanfarin 30 ár. Sjáðu bara KR-liðið síðustu tvö ár, Grindavík á undan því, Snæfell 2010 og Keflavíkurliðið 2003-2005. Þessi lið hefðu alltaf unnið sama hvort það væru einn eða tveir Kanar leyfðir,“ segir Sævar.Bosman ekki sama og Kani Sævar segist ekki vita hvort tillaga Keflvíkinga og Hattarmanna fái hljómgrunn á ársþinginu. „Við erum bara að setja þetta fram þannig að þetta verði rætt,“ segir hann. Þetta er ekki í fyrsta skipti og vafalítið ekki það síðasta sem tekist verður á um útlendingamálin í íslenska körfuboltanum. „Persónulega hallast ég að Kana plús Bosman, svona þegar horft er til laganna. Svo hafa Bosman-leikmenn ekki alveg sama gildi og bandarísku leikmennirnir. Það er auðvitað hægt að sjá kosti og galla á þessu öllu,“ segir Sævar, en hann er lögfræðingur. „Það er samt ekkert mál ef menn vilja halda þessu óbreyttu í tvö ár ef vilji er til þess. Maður vill bara fara að sjá eitthvað ákveðið og reyna að halda í það í lengri tíma,“ segir Sævar Sævarsson.Lagaflækja Hannes S. Jónsson, formaður Körfuknattleikssambands Íslands, KKÍ, treystir sér ekki til að segja hvaða lending sé líklegust. „Þetta er alveg 50-50. Það sem maður heyrir er að reglan haldist óbreytt eða það verði Kani og opið fyrir Bosman-leikmenn. Körfuboltahreyfingin er klofin í tvennt í þessu,“ segir Hannes. Talsmenn þess að leyfa Bosman-leikmenn beita margir hverjir þeim rökum að ekki sé hægt að takmarka þá þar sem í raun og veru sé þá verið að hindra menn í að fá vinnu á frjálsum evrópskum vinnumarkaði. „Í þessum reglum og tillögum er bara verið að tala um hve margar íslenskar kennitölur mega vera inni á vellinum hverju sinni. Lið mega semja við fleiri Bosman-leikmenn. Þess vegna er þetta lagaflækja sem enginn treystir sér í. Þetta er líka eitthvað sem menn eru að takast á um í hinum evrópska körfuboltaheimi,“ segir Hannes S. Jónsson.
Dominos-deild karla Dominos-deild kvenna Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Afar óvænt endurkoma Alberts gegn Þóri Fótbolti Lewis Hamilton: Ég verð aldrei gamall maður Formúla 1 Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi Körfubolti Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Körfubolti Fleiri fréttir Þjálfarinn skammaði Edwards eftir sextándu tæknivilluna í vetur „Staðan er erfið og flókin“ Tryggvi þarf að taka sig á í skólanum Tvær tillögur um að fjölga karlaleikjum Líklegast að Ísland mæti Doncic á EM og spili í Póllandi GAZ-leikur kvöldsins: „Leiðinlegt ef þeir halda að þeir séu komnir með þetta“ Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Sjá meira