Umfangsmiklar heræfingar Kínverja í S-Kínahafi Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 28. júlí 2015 13:29 Loftmyndir sýna umfangsmiklar framkvæmdir Kínverja á sandrifum í S-Kínahafi. Vísir/Getty
Reuters greinir frá því að stjórnvöld í Kína hafi tilkynnt í dag að kínverski herinn hefði haldið umfangsmiklar sjó- og lofthernaðaræfingar í Suður-Kínahafi. Er þetta liður í aðgerðum kínverskra stjórnvalda til að tileinka sér yfirráð yfir Suður-Kínahafi, nánast eins og það leggur sig. Í tilkynningu á vefsíðu kínverska varnarmálaráðuneytinsins segir að yfir 100 skip, tugir flugvéla, upplýsingahernaðardeildir og kjarnorkuknúnir heraflar kínverska hersins hafi tekið þátt í æfingunum en nákvæm staðsetning var ekki gefin upp. Kína gerir tilkall til yfirráða yfir stærstum hluta Suður-Kínahafsins sem talið er vera ríkt af náttúrulegum auðlindum auk þess sem að mikil umferð skipa er um hafið. Kínversk yfirvöld hafna alfarið kröfum Víetnam, Filippseyja, Brúnei, Malasíu og Taívan sem öll gera tilkall til síns hluta af hafinu. Bandaríkin hafa hvatt deiluaðila til að komast að sameiginlegri niðurstöðu í þessari deilu og hefur gefið út að Kyrrahafsfloti bandaríska hersins muni vernda skipaleiðir sem eru mikilvægar bandarískum viðskiptahagsmunum við Suðaustur Asíu og Mið-Austurlönd og liggja um Suður-Kínahaf. Kínversk yfirvöld hafna afskiptum Bandaríkjanna af deilunni og hafa gripið til aðgerða nýlega, m.a. hafa þeir hafið umfangsmiklar framkvæmdir við endurheimt lands auk framkvæmda á sandrifum til þess að styrkja kröfur sínar um yfirráð yfir Suður-Kínahafi.
Suður-Kínahaf Mest lesið „Það er voða hentugt að kenna okkur um þetta en við erum alsaklaus“ Innlent „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Erlent Ólögmæt gjaldtaka gæti kostað ríkið milljarða Innlent Bílar á víð og dreif hindruðu aðgengi slökkviliðsbíla Innlent Taldi 150 holur á stuttum vegakafla á Suðurlandi Innlent Björguðu á þriðja tug af Eyjafjallajökli Innlent Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Veður Íslendingur á Grænlandi: „Það heyrist ekki múkk í neinum“ Innlent Hlýnandi veður Veður Endurreisn VG og njósnir á Íslandi Innlent Fleiri fréttir „Við náum Grænlandi, hundrað prósent“ Leita enn og vara við miklum skorti á sjúkravörum Ný ríkisstjórn mynduð í Sýrlandi Hamasliðar tilbúnir að frelsa gísla fyrir vopnahlé Mette Frederiksen heldur til Grænlands Hundruð þúsunda mótmæla og 1900 handteknir Fleiri en 1600 látnir í Mjanmar Fyrrverandi kærasta Tate sakar hann um kynferðisbrot Heimsókn Vance óviðeigandi og óviðunandi Utanríkisráðherra Danmerkur: „Svona talar þú ekki við nána bandamenn þína“ Tala látinna komin yfir þúsund Segir orðræðu varaforsetans ósanngjarna Á annað hundrað látnir í Mjanmar „Það er skítkalt hérna“ Sænskur blaðamaður handtekinn í Tyrklandi Fyrsta árás Ísraelshers í Líbanon eftir vopnahlé Óttast að mörg hundruð séu látin Áhöfn kafbátsins sem sökk í Rauðahafi yfirheyrð Albanese boðar til þingkosninga 43 saknað eftir 7,7 stiga skjálfta í Mjanmar Beinir spjótum sínum að Smithsonian og „sögufölsunum“ Segir gömlu sambandi Kanada við Bandaríkin lokið Lagður inn á sjúkrahús vegna aukaverkana krabbameinsmeðferðar Ísraelar kvörtuðu yfir „Signalgate“ Ný ríkisstjórn í höfn á Grænlandi Nýjum drögum frá Trump lýst sem ránstilraun Ætlar að fjölga hermönnum á norðurslóðum Myndaði segulljós Neptúnusar í fyrsta skipti Sex taldir af eftir kafbátaslys Biður til Guðs að Bandaríkin gefi ekki eftir Sjá meira