Körfuboltakvöld: Var búinn að heyra að hann væri með Excel-skjal | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 31. október 2015 13:40
Stór frétt barst frá Sauðárkróki í gær þegar tilkynnt var um brottrekstur Pieti Poikola frá Tindastóli. Finninn, sem er einnig landsliðsþjálfari Dana, tók við Stólunum í sumar en entist aðeins fjóra leiki í starfi. Tindastóll vann fyrstu tvo leikina í Domino's deildinni en hefur tapað síðustu tveimur leikjum sínum, fyrir Þór frá Þorlákshöfn og Haukum.Sjá einnig: Pieti Poikola gagnrýnir „varnarkúltúr“ Domino's deildarinnar Brottrekstur Poikola var til umræðu í Domino's Körfuboltakvöldi í gær en sérfræðingar þáttarins voru gagnrýnir á skiptikerfi Finnans sem skiptir mönnum inn og út í tíma og ótíma. „Nei, þetta kemur ekki á óvart. Ég var búinn að spá því að það yrðu einhver vandræði þarna,“ sagði Kristinn Friðriksson um tíðindi gærdagsins. „Hann er að keyra ný kerfi í vörn og sókn og ég held að þetta hafi bara ekki lagst vel í mannskapinn,“ bætti Kristinn við en hann lék með og þjálfaði Tindastól á sínum tíma. Hermann Hauksson segir að skiptikerfið sem Poikola notast við virki einfaldlega ekki í deildinni hér á heima. „Ég er enginn aðdáandi þessa kerfis, þessara hröðu innáskiptinga. Þetta virkar í einhverjum deildum í Bandaríkjunum, í háskólaboltanum þar sem menn eru meiri hlutverkaleikmenn. Hérna á Íslandi þarftu bara miklu meiri tíma,“ sagði Hermann og Kristinn bætti við: „Ég var búinn að heyra að hann væri með Excel-skjal með innáskiptingum. Þetta gengur bara ekki upp.“Innslagið í heild sinni má sjá í spilaranum hér að ofan.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Körfuboltakvöld: Var með smjörfingur en er kominn með Uhu á puttana | Myndband Ragnar Nathanaelsson átti stórleik í sigri Þórs á FSu. 31. október 2015 12:23 Mest lesið Kvartar undan Man. City við Evrópusambandið Enski boltinn Segir Trump að hætta þessu bulli varðandi Kanada Fótbolti Víkingar skipta um gír Íslenski boltinn Fékk egg í andlitið á blaðamannafundi: „Skítuga eggjakakan þín“ Sport Apaummæli Mourinho kostuðu hann mikið Fótbolti „Getum gengið stoltar frá borði“ Handbolti Dagskráin í dag: Rashford, Bónus deild karla og margt fleira Sport Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Körfubolti Gera grín að Jürgen Klopp Fótbolti Tók hana fjögur ár að skrifa ævisögu Anníe Sport Fleiri fréttir GAZ-leikur kvöldsins: „Leiðinlegt ef þeir halda að þeir séu komnir með þetta“ Sjóðandi heitur Curry gaf mömmu sinni treyjuna eftir leik Rosaleg troðsla í NBA: „Greyið sem var undir honum“ „Ég elska að vera á Íslandi“ Ekki lengur hægt að vera allsber og taka orminn Neitar að tjá sig um ósættið við Kristófer: „Á milli mín og hans“ „Færð mig ekki í einhverja umræðu um Íslandsmeistaratitilinn núna“ Uppgjörið: Njarðvík - Þór Ak. 93-80 | Sjötti sigur grænna í röð Valskonur unnu meistarana Hatar samfélagsmiðla Bíður í startholunum í Washington: „Ég elska Ísland og Selfoss“ „Geitin“ í kvennakörfunni hætt Óvænt lausn á erfiðleikum Martins? „Væri á sama tíma alveg galið“ Doncic með þrennu á móti Dallas og Lakers fólkið söng „Takk fyrir Nico“ Aþena vann loksins leik „Eins gott að þeir fari að fokking semja“ Uppgjörið: Stjarnan - Grindavík 77-64 | Slökktu á gestunum í seinni hálfleik „Hún er búin að vera algjör klettur í þessu öllu“ Utan vallar: Pedersen ætti að vera þjóðhetja Martin: „Fór rosalega fyrir brjóstið á mér að heyra það“ „Þetta er eins og að vera dömpað“ Aðrir í VIP-sætum þeirra sem skráðu söguna Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Sex fara fyrir Ísland á sitt fyrsta stórmót Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Sjá meira
Körfuboltakvöld: Var með smjörfingur en er kominn með Uhu á puttana | Myndband Ragnar Nathanaelsson átti stórleik í sigri Þórs á FSu. 31. október 2015 12:23