Svona var óveðrið 1991: Sumarbústaður fauk á haf út og tré rifnuðu upp með rótum Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 7. desember 2015 13:15 Forsíða DV mánudaginn 4. febrúar 1991.
Von er á snælduvitlausu veðri á landinu öllu síðdegis og langt fram á kvöld. Minnast veðurfræðingar og fleiri óveðurs sem gekk yfir landið sunnudaginn 3. febrúar árið 1991. Í forsíðufrétt DV á mánudeginum var fyrirsögnin: „Tugþúsundir Íslendinga urðu fyrir veðurtjóni.“ Veðrið hafði víða áhrif þennan sunnudag í febrúar. Gífturlegt tjón varð á Flateyri þar sem sumarbústaður, sem stóð skammt frá bænum Innri-Veðrará, fauk í heilu lagi á haf út. Annað langbylgjumastranna á Vatnsendahæð hrundi og var Guðjón Petersen, forstjóri Almannavarna, allt annað en sáttur. Þessu hefðu þeir varað við í 20 ár. Svipmyndir af óveðrinu má sjá að neðan. Í Hrunamannahreppi splundraðist fjárhús, partur af hlöðu og þakplötur fuku af íbúðarhúsinu á bænum Syðra-Seli. Finna þurfti pláss fyrir ærnar á öðrum bæjum. Í Biskupstungum horfði Þráinn Bjargdal Jónsson bóndi upp á þakið á fjárhúsi sínu hverfa út í buskann eins og hendi væri veifað. Þá rifnuðu tré víða upp með rótum eins og við Skothúsveg í Reykjavík þar sem þau lögðust upp að húsinu og hindruðu að fólk kæmist inn og út. Neyðarástand skapaðist í Vestmannaeyjum og í Keflavík þurfti að flytja fólk úr íbúðarhúsum sínum. Að neðan má sjá ljósmyndir Gunnars V. Andréssonar ljósmyndara frá deginum sögulega ásamt myndbrotum frá deginum. Annars vegar er um að ræða samantekt úr kvöldfréttum Stöðvar 2 og hins vegar kvöldfréttum RÚV sem Styrmir Barkarson birtir á Facebook-síðu sinni. Ástæða er fyrir landsmenn að fara með öllu með gát og vera ekki á ferli seinni partinn í dag og kvöld. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir óvissuástandi vegna veður. Fjallað var um stöðu mála í veðurmálum hér heima í sérstökum hádegisfréttatíma Stöðvar 2 sem sjá má í heild hér að neðan. Svona var forsíða DV 4. febrúar 1991 þó gleymst hafi að breyta úr janúar í febrúar á blaðinu sjálfu. Forsíða DV 4. febrúar 1991. Tré rifnuðu upp með rótum í Hljómskálagarðinum.Vísir/GVA Þessi bíll fór í flugferð í storminum.Vísir/GVA Slökkviliðsmenn áttu erfitt með að halda jafnvægi við störf sín.Vísir/GVA Þessi flutningabíll fór á hliðina.Vísir/GVA Björgunarsveitamenn höfðu í nógu að snúast.Vísir/GVA Þök rifnuðu af húsum.Vísir/GVA
Veður Mest lesið Segir 60 mínútur hafa misst sjálfstæðið og hættir Erlent Þyrfti að tvöfalda hlutfall smærri íbúða til að anna eftirspurn Viðskipti innlent Sagður bjóða frið fyrir formlega eign á Krímskaga Erlent Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira Innlent Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Innlent Valdatafl í Vatíkaninu: Hver verður næsti páfi? Erlent Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Innlent „Ég er mannleg“ Innlent Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Innlent Banað af hákörlum þar sem fólk hefur lengi synt með þeim Erlent Fleiri fréttir Þyrfti að tvöfalda hlutfall smærri íbúða til að anna eftirspurn Beint flug milli Akureyrar og útlanda aldrei verið meira „Ég er mannleg“ Segir líklega langt í næsta gos við Sundhnúka Óþarfi að nota kauðslega þýdda málshætti í páskaeggin Lofar betra sumri en í fyrra Fagnar umræðu um þátttöku Ísraels og segir útspil ráðherra gagnlegt Oscar þori varla út úr húsi af ótta við að vera sendur úr landi Breytingar á gosvirkni, júró-þrýstingur og umdeildir málshættir Missti vélarafl suður af Snæfellsnesi Reiknar með að sækja útför Frans páfa Páskaeggjaframleiðandi fagnar gagnrýni á málshætti Vildi „tagga“ Frans páfa en niðurstaðan reyndist slysaleg „Hér hefur verið unninn skaði sem þarf að stöðva“ Landris heldur áfram en dregið hefur úr hraðanum „Skrítið og óeðlilegt“ að Ísrael fái að vera með í Eurovision Barn á óskoðuðum bíl á 151 kílómetra hraða Gallar í nýbyggingum: Eigendur nýrra íbúða eigi ríkari rétt Ráðherra ræðir þátttöku Ísraels í Eurovision Vill að allir flokkar hafi hlutverk í borgarstjórn Mótmæltu brottvísun Oscars við dómsmálaráðuneytið Reyndu að fá Ingu á sitt band með fötu af „extra crispy“ kjúklingavængjum Mjög gjarnan kölluð nasisti og fasisti Stöðvaður á 116 kílómetra hraða Þrjátíu prestar krefjast dvalarleyfis fyrir Oscar Deilt um „Pope Francis“ forsetans: „Óboðlegt og óskiljanlegt“ eða hneykslunargirni heilagra? Hvalreki í Njarðvík við Borgarfjörð eystri Forsætisráðherra vill sjá nýtt fangelsi á Stóra Hrauni sem fyrst „Til hamingju hálfvitar“ Svikahrappur beið eftir flugferð framkvæmdastjórans Sjá meira