Eygló Ósk Íþróttamaður ársins 2015 Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2015 21:25 Eygló með verðlaunagripinn. vísir/daníel rúnarsson
Eygló Ósk Gústafsdóttir, sundkona úr Ægi, hlaut í kvöld sæmdarheitið Íþróttamaður ársins þegar niðurstöður kosningar Samtaka íþróttafréttamanna voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Þetta er í 60. sinn sem Samtök íþróttafréttamanna kjósa Íþróttamann ársins. Eygló hlýtur þessa viðurkenningu í fyrsta sinn en hún er fimmta konan sem er valinn Íþróttamaður ársins af Samtökum íþróttafréttamanna. Eygló, sem er tvítug, á frábært ár að baki í sundlauginni. Hún varð fyrst íslenskra íþróttamanna til að vinna sér inn þátttökurétt á Ólympíuleikunum í Ríó á næsta ári og fyrsta sundkonan til að vinna verðlaun á stórmóti. Það gerði hún á Evrópumeistaramótinu í 25 m laug sem fór fram í Ísrael í desember er hún vann tvenn bronsverðlaun, í 100 og 200 metra baksundi. Eygló varð einnig fyrsta íslenska sundkonan, ásamt Hrafnhildi Lúthersdóttur, til að synda til úrslita á heimsmeistaramóti í 50 metra laug en það gerðu þær í Kazan í Rússlandi í ágúst. Eygló fjórbætti Norðurlandametið í 200 m baksundi á árinu og bætti einnig fjölda Íslandsmeta, auk þess sem hún vann til margra verðlauna á Íslandsmótum og Smáþjóðaleikum. Gylfi Þór Sigurðsson varð í öðru sæti í kjörinu en hann er lykilmaður í íslenska landsliðinu sem vann sér þátttökurétt á EM í Frakklandi á næsta ári. Gylfi var einnig í stóru hlutverki hjá velska liðinu Swansea sem náði besta árangri í sögu félagsins þegar það endaði tímabilið í ensku úrvalsdeildinni í vor í áttunda sæti. Hrafnhildur Lúthersdóttir varð í 3. sæti kjörinu en auk árangursins á HM í Kazan náði hún Ólympíulágmörkum í fjórum greinum á árinu og var, ásamt Eygló, valin í keppnislið Evrópu fyrir Duel in the Pool sundkeppnina undir lok ársins.
Fréttir ársins 2015 Íþróttamaður ársins Íþróttir Ólympíuleikar 2016 í Ríó Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn „Ég get ekki beðið“ Handbolti Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenski boltinn „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Íslenski boltinn Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Íslenski boltinn Fleiri fréttir Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Gunnar mætir þrautreyndum kappa í sumar Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Friðrik Ingi hættur með Hauka Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn Mikilmennin misstíga sig á PGA-meistaramótinu Hörður kominn undan feldinum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Fegin að vera komin heim: „Þetta endaði ekkert vel“ Harkaði af sér veikindi og Nuggets tryggðu oddaleik Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó