Karlalandsliðið í fótbolta lið ársins | Heimir þjálfari ársins Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. desember 2015 21:20 vísir/stefán/vilhelm
A-landslið karla í fótbolta var í kvöld valið lið ársins af Samtökum íþróttafréttamanna en niðurstöður kosninga þeirra voru tilkynntar við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu. Íslenska liðið tryggði sér sem kunnugt er sæti í lokakeppni EM 2016 í fyrsta sinn með því að lenda í 2. sæti A-riðils í undankeppni EM. Ísland vann þrjá af sex leikjum sínum í undankeppninni á árinu en íslensku strákarnir tryggðu sér EM-sætið með markalausu jafntefli við Kasakstan á Laugardalsvelli 6. september. Ísland vann alls fjóra af 11 leikjum sínum á árinu, gerði fjögur jafntefli og tapaði þremur. Íslenska karlalandsliðið í fótbolta fékk 130 stig í kjörinu, eða fullt hús stiga. Þetta er í annað skiptið sem liðið hlýtur þessa viðurkenningu. A-landslið karla í körfubolta var í 2. sæti og kvennalið Stjörnunnar í hópfimleikum í því þriðja.Þjálfari ársins: 1. Heimir Hallgrímsson 124 stig 2. Þórir Hergeirsson 69 3. Alfreð Gíslason 18 4. Dagur Sigurðsson 12 5. Kári Garðarsson 9 6. Guðmundur Guðmundsson 1 7. Þorsteinn Halldórsson 1 Þá var Heimir Hallgrímsson, annar þjálfara karlalandsliðsins í fótbolta, valinn þjálfari ársins. Þetta er í fyrsta sinn sem Heimir hlýtur þessa viðurkenningu en hann fékk 124 stig í kjörinu. Næstur honum kom Þórir Hergeirsson, þjálfari norska kvennalandsliðsins í handbolta, og í 3. sæti varð Alfreð Gíslason, þjálfari Þýskalandsmeistara Kiel í handbolta. Heimir er 48 ára Vestmannaeyingur sem hefur starfað fyrir karlalandsliðið síðan 2011, fyrst sem aðstoðarþjálfari og svo sem aðalþjálfari ásamt Lars Lagerbäck. Undir stjórn þeirra hefur íslenska liðið náð frábærum árangri og verður meðal þátttökuþjóða á EM í Frakklandi næsta sumar.Lið ársins: 1. A-landslið karla (fótbolti) 130 stig 2. A-landslið karla (körfubolti) 51 3. Stjarnan kvenna (hópfimleikar) 28 4. Grótta kvenna (handbolti) 20 5. A-landslið kvenna (strandblak) 5
Íþróttir Mest lesið „Hann er tekinn út úr leiknum“ Körfubolti Grættu dómarann og hættu við blaðamannafund Fótbolti „Ég get ekki lýst þessu, ég á engin orð“ Körfubolti Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Íslenski boltinn Valur einum sigri frá úrslitum Handbolti Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 94-82 | Einvígið jafnt eftir mikinn hasar Körfubolti Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Íslenski boltinn „Hér verður enginn í hættu, það er loforð“ Íslenski boltinn Fyrsta deildartap PSG Fótbolti Aldrei selst fleiri miðar á heimaleik hjá Álftanesi Körfubolti Fleiri fréttir Grættu dómarann og hættu við blaðamannafund „Hann er tekinn út úr leiknum“ „Ég get ekki lýst þessu, ég á engin orð“ Valur einum sigri frá úrslitum Fyrsta deildartap PSG Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Aldís Ásta og stöllur í úrslitaeinvígið Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 94-82 | Einvígið jafnt eftir mikinn hasar Tók Karólínu Leu stundarfjórðung að komast á blað Gunnar Jarl reif flautuna af hillunni Þýskt Íslendingalið gjaldþrota Cecilía örugg um silfrið eftir sigur í borgarslagnum Ancelotti skammaði Endrick fyrir trúðslæti inn á vellinum Magnús býður sig fram til forseta ÍSÍ Aldrei selst fleiri miðar á heimaleik hjá Álftanesi Treyja Bryants margfaldast í verði og varð sú fjórða dýrasta í sögunni Hópur Snorra fyrir síðustu leikina: Reynir að verða einn af strákunum okkar Læknir Maradona í réttarsalnum: Hann var mjög erfiður sjúklingur Bað kærustunnar áður en hann kláraði hlaupið Fótboltafélagið inn á borð hjá dýraeftilitinu og matvælastofnun Frederik Schram aftur til Vals: „Enginn svekktari en Ömmi sjálfur“ Valdimar verður með í forsetaslagnum Klósettpappír út um allt á vellinum Sjáðu vélina sem „saumar saman“ Laugardalsvöllinn Rikki G mjög forvitinn um dularfullu dolluna hjá Mosfellingum Sara ætlar að komast á heimsleikana í gegnum Afríku „Hér verður enginn í hættu, það er loforð“ Stórstjarnan vildi ekki missa af vitnisburði móður sinnar Mörkin úr Bestu deildinni: Vítið sem felldi Víkinga og markaveisla Eyjamanna Sjá meira