Bjarni átti í félagi sem skráð var á Seychelles-eyjum Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 29. mars 2016 19:43
Bjarni Benediktsson fjármálaráðherra segist hafa fyrir tíu árum keypt 40 m.kr þriðjungshlut í eignarhaldsfélagi sem Landsbankinn í Lúxemborg hafði stofnað fyrir viðskiptafélaga minn um kaup á fasteign í Dubai. Hann taldi félagið, Falson & Co, vera skráð í Lúxemborg en það var í raun skráð á Seychelles-eyjum, þekktu skattaskjóli. Félagið var afskráð fyrir nokkrum árum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Bjarna, sem sjá má í heild sinni hér fyrir neðan, vegna fréttaflutnings um að þrír ráðherrar í ríkisstjórn voru sagðir eiga eða tengjast aflandsfélögum í skattaskjólum. Komið hefur fram að Bjarni er einn þeirra ásamt Sigmundi Davíði Gunnlaugssyni forsætisráðherra og Ólöfu Nordal innanríkisráðherra.Sjá einnig: Ráðherrarnir þrír sem tengjast aflandsfélögum í skattaskjólumBjarni segir að gert hafi verið grein fyrir þessum viðskiptum gagnvart íslenskum skattayfirvöldum. Í Kastljósi þann 11. febrúar 2015 svaraði Bjarni því neitandi aðspurður að því hvort að hann ætti eignir eða viðskipti í skattaskjólum. Segir Bjarni að hann hafi gefið það svar samkvæmt sinni bestu vitund. „Þessi svör gaf ég eftir bestu vitund, enda taldi ég mig aldrei hafa átt neitt á aflandssvæði. Ég vil eins og aðrir hafa það sem sannara reynist og þykir þetta miður, en vil jafnframt ítreka að þessi viðskipti mín voru ekki í skattaskjóli, enda gefin upp á Íslandi,“ segir Bjarni. Segir Bjarni að ábending frá erlendum blaðamanni hafi orðið til þess að hann hafi komist að því að félagið var í raun ekki skráð í Lúxemborg heldur á Seychelles-eyjum. Tilgangur félagsins var að sögn Bjarna að halda utan um eignina í Dubai en svo fór að eigendur Falson & Co tóku ekki við henni. Gengið var frá kaupunum árið 2008 og árið 2009 var málið gert upp með tapi og félagið sett í afskráningarferli. Þá segir Bjarni að félagið hafi engar tekjur haft, ekkert skuldað og ekki tekið lán né átt aðrar eignir. Í lok yfirlýsingar sinnar segir Bjarni að allir eigi að skila sínu til rekstur samfélagsins. „Í þessum efnum tel ég rétt að fylgja einfaldri reglu. Það eiga allir að skila sínu til sameiginlegs rekstrar samfélagsins. Langflestir fylgja þessari sjálfsögðu reglu. Ég mun láta einskis ófreistað til að ná til hinna, sem fara á svig við lög og reglur og vilja fá frítt far með samborgurum sínum sem halda uppi lífsgæðunum á Íslandi.“Yfirlýsing Bjarna í heild sinni:Að gefnu tilefni vil ég taka eftirfarandi fram: Fyrir tíu árum keypti ég fyrir tæpar 40 milljónir króna þriðjungshlut...Posted by Bjarni Benediktsson on Tuesday, 29 March 2016Seychelles-eyjar eru staðsettar í Indlandshafi.
Seychelleseyjar Tengdar fréttir Ráðherrarnir þrír sem tengjast aflandsfélögum í skattaskjólum Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra. 29. mars 2016 19:08 Mest lesið „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Sakar Rússa um að hafa brennt stærstu verslunarmiðstöð Póllands Erlent Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Aðgerðir til að bregðast við rakaskemmdum og öðrum byggingagöllum Mikil hætta meðan maður reyndi að flýja lögreglu í miðbænum „Þjóðin á ekki fiskinn í sjónum, fiskurinn á sig sjálfur í sjónum“ Langflestir telja stríð og átök það sem helst þjakar heiminn „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Lalli Johns er látinn Afnám virðisaukaskatts geti skilað björgunarsveitum fúlgum fjár Ein staða fornleifafræðings eftir á Þjóðminjasafninu Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Aðgerðir gegn Temu og Shein, hraðbanki í hættu og þreyttir hlaupagarpar í beinni „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Mótorhjólasamtök aðstoða börn sem hafa orðið fyrir ofbeldi Hækka þurfi veiðigjald í skrefum 230 íbúðir í byggingu í Þorlákshöfn Vopnahlé og í beinni frá Basel og Öskjuhlíð Björgunarsveitir vilja undanþágu frá virðisaukaskatti Gasa, veiðigjöld, gagnaleki og kolefni í Sprengisandi Starfsmaður verslunar sleginn Einn fluttur á sjúkrahús vegna reykeitrunar „Vandræðalegt“ að stjórnin hafi ekki mannað eigin þingfund Icelandair hættir rekstri stærstu flugvéla sinna Veittu eftirför í Árbæ Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn „Hreint og tært málþóf í sinni skýrustu mynd“ Veiðigjöld, vopnahlé og veðurblíða í bakgarðshlaupi Lengstu fyrstu umræðu í sögu Alþingis lokið Fundu, lögðu hald á og drápu snáka Efnahags- og viðskiptanefnd taki fyrir „tvöföldun á skatti“ Sjá meira
Ráðherrarnir þrír sem tengjast aflandsfélögum í skattaskjólum Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og innanríkisráðherra. 29. mars 2016 19:08