Atletico Madrid í úrslit Meistaradeildarinnar Henry Birgir Gunnarsson skrifar 3. maí 2016 20:30
Atletico Madrid er komið í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu þrátt fyrir 2-1 tap gegn Bayern í kvöld í stórkostlegum leik. Fyrri leikur liðanna fór 1-0 í Madrid og Atletico fer því í úrslit á útivallarmarkinu. Andstæðingur Atletico í úrslitaleiknum verður annað hvort Real Madrid eða Man. City. Það tók Bayern 30 mínútur að brjóta Atletico niður. Þá skoraði Xabi Alonso beint úr aukaspyrnu. Lukkan var reyndar með honum í liði því boltinn fór af Jose Maria Gimenez og breytti því um stefnu. Aðeins fjórum mínútum síðar var Gimenez aftur í eldlínunni er hann braut á Javi Martinez og víti dæmt. Thomas Müller tók vítið en Jan Oblak varði frá honum. Það voru aðeins nokkrar mínútur liðnar af síðari hálfleik er Antoine Griezmann slapp í gegnum vörn Bayern eftir laglega sendingu frá Fernando Torres. Hann lagði boltann smekklega í netið. Hann virkaði þó ansi nærri því að vera rangstæður. 1-1 og það þýddi að Bayern yrði að skora tvö mörk í viðbót til þess að komast í úrslitaleikinn. Bæjarar gáfust ekki upp og rúmum stundarfjórðungi fyrir leikslok náði Robert Lewandowski að skalla boltann í netið og setja allt í háaloft. Átta mínútum fyrir leikslok var brotið á Fernando Torres og vítaspyrna dæmd. Glórulaus dómur þar sem brotið var klárlega utan vítateigs. Réttlætinu var síðan fullnægt er Manuel Neuer varði vítaspyrnu Torres. Bayern sótti grimmt undir lokin en náði ekki að skora. Fyrsta mark leiksins má sjá hér að ofan en hin mörkin hér að neðan.Griezmann jafnar. Lewandowski kemur Bayern í 2-1.
Meistaradeild Evrópu Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Enski boltinn Fleiri fréttir Aftur hópuppsögn hjá Man. Utd Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Sjá meira