Griezmann skaut Frökkum í úrslitaleikinn Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. júlí 2016 21:00 Antoine Griezmann fagnar marki sínu ásamt Paul Pogba. vísir/epa
Það verður Frakkland sem mætir Portúgal í úrslitaleik EM 2016 á Stade de France á sunnudagskvöldið. Þetta var ljóst eftir 2-0 sigur Frakka á heimsmeisturum Þjóðverja í Marseille í kvöld. Antoine Griezmann var hetja Frakka en hann skoraði bæði mörkin og er nú komin með sex mörk í heildina á EM. Frakkar byrjuðu leikinn af miklum krafti og Manuel Neuer þurfti að taka á honum stóra sínum til að verja frá Griezmann á 7. mínútu. Eftir þessa góðu byrjun franska liðsins tók það þýska yfir og stjórnaði ferðinni það sem eftir lifði fyrri hálfleiks. Emre Can komst næst því að skora en Hugo Lloris varði vel frá honum eftir 14 mínútna leik. Í uppbótartíma fyrri hálfleiks breyttist leikurinn þegar ítalski dómarinn Nicola Rizzoli dæmdi vítaspyrnu á Bastian Schweinsteiger fyrir að handleika boltann innan vítateigs. Griezmann fór á punktinn og skoraði af öryggi. Hann var svo aftur á ferðinni á 72. mínútu. Þjóðverjar töpuðu þá boltanum inni í eigin vítateig, Paul Pogba sendi fyrir frá vinstri, Neuer sló boltann frá en ekki nógu langt og Griezmann nýtti sér það og skoraði sitt annað mark. Þjóðverjar fengu færi til að minnka muninn eftir þetta en tókst ekki að skora. Bestu færin féllu Joshua Kimmich í skaut; hann átti hörkuskot í stöngina tveimur mínútum eftir seinna mark Griezmann og svo varði Lloris stórkostlega skalla frá honum í uppbótartíma. Heimsmeistarnir náðu hins vegar ekki að skora og Frakkar fögnuðu 2-0 sigri og sæti í úrslitaleiknum.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Enski boltinn Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Enski boltinn „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Fótbolti Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Fótbolti Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti Í beinni: Valur - Slavía Prag | Fyrri leikur tvíhöfðans í átta liða úrslitum Handbolti Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Fótbolti Fleiri fréttir Bitlausu liði Arsenal mistókst að minnka forskot Liverpool Moyes: Greinilegt peysutog en við áttum að vera komnir í 3-0 Hafa ekki enn fagnað sigri eftir jól Amorim: Við þurfum að lifa þetta tímabil af Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum Hætti við að dæma víti og United slapp með jafntefli Kom inn á í fyrri háfleik og skoraði í fyrsta sinn í fimm mánuði Arnór Ingvi skoraði tvö mörk í bikarsigri Urðu að ósk Mourinho og kölluðu á útlenskan dómara Ein af þeim sem hefur haldið oftast hreinu í Evrópu Tók vítið í leyfisleysi og var skipt út af þótt hann hefði skorað Sigurlíkur Liverpool minnkuðu Gaf unnustu sinni vænt olnbogaskot í leik Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum „Ég lét þetta ekki brjóta mig niður og hafa áhrif á mig“ Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Uppgjörið: Sviss - Ísland 0-0 | Engin flugeldasýning í fyrsta leik Dagný byrjar á sama stað og hún endaði síðast Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Chelsea til Kaupmannahafnar og Víkingsbanar mæta Alberti Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Orri mætir Manchester United í Evrópudeildinni Nasistakveðjur, Ísrael og Palestína á Evrópukvöldi Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Sjá meira