Portúgal Evrópumeistari í fyrsta sinn 10. júlí 2016 21:30 Portúgalir fagna. vísir/epa
Portúgal er Evrópumeistari í knattspyrnu eftir 1-0 sigur á Frakklandi í framlengdum úrslitaleik í París í kvöld. Varamaðurinn Eder tryggði Portúgölum sigur með marki í uppbótartíma, en þetta er fyrsti stóri titill Portúgala. Frakkarnir byrjuðu af krafti og þar fremstur í flokki var Moussa Sissoko sem lét mikið að sér kveða. Hann var gífurlega kraftmikill og lét finna fyrir sér inn á miðjunni. Besta færi fyrri hálfleiks kom á tíundu mínútu þegar Payet gaf boltann á Griezmann sem átti góðan skalla, en Patricio var vel á verði í markinu og blakaði boltanum yfir. Cristiano Ronaldo þurfti að fara af velli vegna meiðsla á 25. mínútu eftir að Dimitri Payet braut á honum stuttu áður, en Ronaldo brast í grát þegar hann var borinn af velli. Staðan var markalaus í hálfleik, en Griezmann fékk aftur rosalega gott skallafæri á 66. mínútu þegar hann skallaði frábæra fyrirgjöf Kingsley Coman framhjá. Nani og Quaresma áttu ágætar rispur fyrir Portúgali, en í uppbótartíma skaut Andre-Pierre Gignac í stöngina eftir að hann plataði Pepe upp úr skónum. Staðan eftir venjulegan leiktíma var markalaus og því þurfti að grípa til framlengingar. Raphael Guerreiro skaut í slána á 108. mínútu, en mínútu síðar dró til tíðinda. Varamaðurinn Eder fékk boltan fyrir utan teiginn, hristi Laurent Koscielny af sér og þrumaði boltanum í nærhornið framhjá Hugo Lloris. Eder lék með Gylfa Þór Sigurðssyni, landsliðsmanni Íslands, fyrri hluta síðasta tímabils, en hann fann ekki fjölina á Englandi og hélt til Frakklands þar sem hann gekk í raðir Lille. Frakkarnir reyndu allt hvað þeir gátu til þess að jafna metin, en allt kom fyrir ekki og Portúgal er Evrópumeistari í fótbolta 2016 í fyrsta skipti. Þeir náðu því að hefna ófaranna síðan í tapinu gegn Grikklandi í úrslitaleiknum 2004.
EM 2016 í Frakklandi Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Fleiri fréttir Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira