Féll tvívegis á lyfjaprófi en vann Bolt í sögulegu hlaupi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 5. ágúst 2017 20:56 Justin Gatlin er heimsmeistari í 100 m hlaupi, 35 ára gamall og eftir að hafa fallið tvívegis á lyfjaprófi. Vísir/Getty
Bandaríkjamaðurinn Justin Gatlin kom öllum að óvörum með því að bera sigur úr býtum í 100 m hlaupi á HM í frjálsum í kvöld. Usain Bolt, sem var að hlaupa sitt síðasta 100 m hlaup á ferlinum, varð að sætta sig við brons. Gatlin hljóp á 9,92 sekúndum sem er besti tími ársins. Christian Coleman frá Bandaríkjunum varð annar á 9,94 sekúndum og Bolt kom þriðji í mark á 9,95 sekúndum. Eins og sjá má á tímunum munaði afar litlu á efstu þremur en Bolt átti erfitt start. Coleman byrjaði mjög vel en Gatlin átti magnaðan endasprett og skaust fram úr á lokametunum. Hann hljóp á áttundu braut en þeir Coleman og Bolt voru hlið við hlið, á fjórðu og fimmtu braut. Þrátt fyrir að Bolt hafi ekki verið upp á sitt besta í sumar og talsvert frá sínu besta þorðu fáir að spá því að hann myndi ekki vinna gull í greininni, enda sigursælasti hlaupari sögunnar. Heimsmetið hans, 9,58 sekúndur, sem hann setti á HM í Berlín fyrir átta árum síðan stendur enn. Síðan þá hefur Bolt unnið nánast öll gullverðlaun á stórmótum sem hafa verið í boði fyrir hann, í 100 og 200 m hlaupi. Hann varð þó af gullinu á HM í Suður-Kóreu árið 2011 vegna þjófstarts.Gatlin grét af gleði eftir sigurinn í kvöld.Vísir/AFPBolt hafði gefið út að hann muni hætta að keppa í frjálsíþróttum eftir HM í London og var því hlaupsins í kvöld beðið með mikilli eftirvæntingu. Hann mun hætta keppni í frjálsíþróttum eftir að hann keppir í 4x100 m boðhlaupi karla með liði Jamaíku. Það fer fram í næstu viku. Gatlin er 35 ára og fremur óvinsæll hvar sem hann keppir, þar sem hann féll á lyfjaprófi árið 2001 og svo aftur árið 2006. Hann fékk fjögurra ára bann í síðara skiptið og hóf aftur að keppa í ágúst 2010. Greinilegt var að titillinn í kvöld hafði mikla þýðingu fyrir hann og var Gatlin í tárum eftir sigurinn. Hann kraup hins vegar fyrir Bolt sem kveður frjálsíþróttirnar á næstu dögum, ef hann stendur við yfirlýsingar sínar. Gatlin varð síðast heimsmeistari í 100 m hlaupi á HM í Helsinki árið 2005. Hann vann silfur á HM í Peking fyrir tveimur árum sem og á HM í Moskvu árið 2013.
Frjálsar íþróttir Tengdar fréttir Bolt fór áfram í úrslitin Usain Bolt fær tækifæri til að vinna enn einn heimsmeistaratitilinn í 100 m hlaupi karla. 5. ágúst 2017 19:00 Bolt örugglega áfram í undanúrslit Sprettharðasti maður heims var í engum vandræðum með sinn riðil í undanrásunum á HM í London. 4. ágúst 2017 20:10 Usain Bolt: Verða að hætta að nota ólögleg lyf því annars deyr sportið Kveðjumót Usain Bolt er að hefjast en hann er kominn til London þar sem Jamaíkamaðurinn mun á næstu dögum taka þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum. 2. ágúst 2017 09:00 Bolt hundóánægður með fyrsta hlaupið Segir frammistöðuna í 100 m hlaupi í gær hafa verið afar slæma hjá sér. 5. ágúst 2017 12:15 Mest lesið Fimmtán ára KR-ingur tók metið af Eiði Smára: Fær hæfileikana frá mömmu Íslenski boltinn Varaforseti Bandaríkjanna braut bikarinn Sport „Meira að hugsa um hvort ég geti unnið heilan vinnudag“ Íslenski boltinn Reiði yfir stuttu banni Mbappé: „Hneykslið hefur verið staðfest“ Fótbolti Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Körfubolti Segir vandræðalegt að Valur hafi ekki unnið KR Íslenski boltinn Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Körfubolti Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Íslenski boltinn Mörkin frá gærkvöldinu þegar tapliðin fögnuðu í Meistaradeildinni Fótbolti Baðst afsökunar á því að hafa beðið um að mótherjinn setti á sig svitalyktareyði Sport Fleiri fréttir Ætlar ekki að verja forystuna Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Segir að Fury muni ekki snúa aftur Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Vita af hverju rangt lag var spilað fyrir leikinn á Villa Park Segir vandræðalegt að Valur hafi ekki unnið KR Luis Suárez: Messi vill spila á HM 2026 Svona eru undanúrslitin: Ballið hefst á tvíhöfða annan í páskum Reiði yfir stuttu banni Mbappé: „Hneykslið hefur verið staðfest“ Lífsferill íþróttamannsins: Mattheusarguðspjallið og brennimerkt börn Versta úrslitakeppnin í sögu Reykjanesbæjarliðanna Keppt í skemmtigarði á næstu Ólympíuleikum „Skemmtilegt að þroskast þannig sem leikmaður“ Bellingham fyrir Arsenal leikinn: Kvöld hannað fyrir Real Madrid Baðst afsökunar á því að hafa beðið um að mótherjinn setti á sig svitalyktareyði Mörkin frá gærkvöldinu þegar tapliðin fögnuðu í Meistaradeildinni „Meira að hugsa um hvort ég geti unnið heilan vinnudag“ Fimmtán ára KR-ingur tók metið af Eiði Smára: Fær hæfileikana frá mömmu Butler og Curry í stuði þegar Golden State komst í úrslitakeppnina Byrjaði sem grín en endaði með því að Römer fór frá Lyngby til Akureyrar Varaforseti Bandaríkjanna braut bikarinn Dagskráin í dag: Meistaradeild Evrópu, Besta kvenna og umspil NBA Luka fyrstur til að skáka Steph og LeBron í meira en áratug Adam Ingi í ótímabundið hlé frá knattspyrnu „Holan var of djúp“ „Vissum alveg að við værum í góðum málum“ „Við erum að byggja upp ákveðinn kúltúr“ „Held með Arsenal og það að fagna einhverju of snemma er bara heimskulegt“ Selfoss byrjar á sigri „Það sem klikkaði var að þær komust á lagið og gerðu vel“ Sjá meira
Bolt fór áfram í úrslitin Usain Bolt fær tækifæri til að vinna enn einn heimsmeistaratitilinn í 100 m hlaupi karla. 5. ágúst 2017 19:00
Bolt örugglega áfram í undanúrslit Sprettharðasti maður heims var í engum vandræðum með sinn riðil í undanrásunum á HM í London. 4. ágúst 2017 20:10
Usain Bolt: Verða að hætta að nota ólögleg lyf því annars deyr sportið Kveðjumót Usain Bolt er að hefjast en hann er kominn til London þar sem Jamaíkamaðurinn mun á næstu dögum taka þátt í heimsmeistaramótinu í frjálsum íþróttum. 2. ágúst 2017 09:00
Bolt hundóánægður með fyrsta hlaupið Segir frammistöðuna í 100 m hlaupi í gær hafa verið afar slæma hjá sér. 5. ágúst 2017 12:15