Fékk ekki að keppa vegna nóróveirusýkingar Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 9. ágúst 2017 10:00 Makwala eftir að hann kom í mark í undanúrslitum 400 m hlaupsins í London. Visir/Getty
Ekkert varð af því að Botswana-maðurinn Isaac Makwala fengi að keppa í 400 m hlaupi á HM í frjálsum í London. Hann veiktist í aðdraganda keppninnar og var meinaður aðgangur að leikvanginum þegar hann reyndi að komast inn í gær. Sjá einnig: Magapest gengur um á hóteli íþróttamanna á HM í frjálsum Makwala er einn besti 400 m hlaupari heims og var einna líklegastur til að veita Wayde van Niekerk frá Suður-Afríku samkeppni um gullið. Van Niekerk vann gull í greininni í gærkvöldi og þurfti ekki að hafa mikið fyrir sigrinum. Forráðamenn Ólympíusambands Botswana voru ekki ánægðir með að Makwala hafi verið meinaður aðgangur í gær. Var það gert af ótta við smithættu en Makwala hafði greinst með nóróveirusýkingu. „Ég verð að treysta mínum læknum. Hlutverk mitt er að passa upp á heilsu allra íþróttamannanna hér. Þessi veira getur breiðst út afar hratt,“ sagði Pam Venning, yfirlæknir Alþjóðafrjálsíþróttasambandsins (IAAF), við BBC í gær. Fleira íþróttafólk hafði veikst og sagði hún að öll önnur keppnislið hefðu fylgt reglum um að þeir sem hefðu veikst ættu að vera í einangrun í 48 klukkustundir. Makwala hafði kastað upp aðeins fáeinum klukkustundum fyrir úrslitahlaupið í gærkvöldi, segir í fréttinni. Fulltrúar keppnisliðs Botswana fullyrtu í gær að þeir hefðu engar skýringar fengið af hverju Makwala fékk ekki að keppa. Enn fremur segja þeir að þeir hafi engin fyrirmæli fengið um að halda Makwala í einangrun og að þeir hafi fyrst heyrt af því að hann fengi ekki að keppa í gegnum fjölmiðla. Forráðamenn IAAF segja það rangt og að fulltrúar Makwala hafi fengið skýr skilaboð í gærkvöldi að hann myndi ekki fá heimild til að taka þátt í hlaupinu. Van Niekerk fagnaði gullinu sínu lítið þegar hann kom í mark í gær. Eftir keppnina harmaði hann ákvörðun IAAF að leyfa Makwala ekki að keppa. „Ég hefði mjög gjarnan viljað að hann hefði fengið tækifæri til að keppa. Ég tel að hann hefði staðið sig mjög vel. Ég vildi óska þess að ég gæti gefið honum medalíuna mína.“
Frjálsar íþróttir Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Sjá meira