Arsenal í Evrópuúrslitaleikjum: Nayim, misheppnuð víti og gleði og sorg á Parken Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 29. maí 2019 11:30 David Seaman niðurlútur eftir úrslitaleik Arsenal og Real Zaragoza í Evrópukeppni bikarhafa 1995. Seaman fékk á sig mark af löngu færi á lokamínútu framlengingarinnar. vísir/getty
Arsenal mætir Chelsea í úrslitaleik Evrópudeildarinnar í Bakú í Aserbaídsjan í kvöld. Þetta er sjötti úrslitaleikur Arsenal í Evrópukeppni og sagan er ekki beint hliðholl Skyttunum þegar kemur að Evrópuúrslitaleikjum. Arsenal komst í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1979-80 þar sem liðið mætti Valencia á Heysel vellinum í Brüssel. Staðan var markalaus eftir venjulegan leiktíma og framlengingu og því réðust úrslitin í vítaspyrnukeppni. Þar hafði Valencia betur, 5-4. Liam Brady og Graham Rix klúðruðu sínum spyrnum fyrir Arsenal.Leikmenn Arsenal hughreysta Graham Rix sem klúðraði víti sínu í vítakeppninni gegn Valencia í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1980.vísir/gettyArsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa tímabilið 1993-94. Andstæðingurinn var Parma frá Ítalíu og fór úrslitaleikurinn fram á Parken í Danmörku. Aðeins eitt mark var skorað í leiknum. Það gerði Alan Smith með skoti á lofti frá vítateigslínu á 20. mínútu. Hann tryggði Skyttunum þar með eina Evróputitilinn í sögu félagsins.Alan Smith var hetja Arsenal gegn Parma í úrslitaleik Evrópukeppni bikarhafa 1994.vísir/getty Arsenal komst aftur í úrslit Evrópukeppni bikarhafa árið eftir. Skytturnar mættu þá Real Zaragoza á Parc des Princes, heimavelli Paris Saint-Germain. Juan Esnáider kom Zaragoza yfir á 68. mínútu en níu mínútum síðar jafnaði John Hartson fyrir Arsenal. Leikurinn var framlengdur og allt benti til þess að úrslitin myndu ráðast á vítapunktinum. En á lokamínútu framlengingarinnar skoraði Nayim, fyrrverandi leikmaður Tottenham, sigurmark Zaragoza með skoti af rúmlega 35 metra færi sem sveif yfir David Seaman í marki Arsenal. Árið 2000 komst Arsenal í úrslit Evrópukeppni félagsliða þar sem liðið mætti Galatasary. Líkt og gegn Parma sex árum fyrr fór leikurinn fram á Parken í Kaupmannahöfn. Úrslitin réðust í vítakeppni sem Galatasary vann, 4-1. Tyrkirnir skoruðu úr öllum sínum spyrnum á meðan Davor Suker og Patrick Viera skutu í markrammann fyrir Arsenal. Árið 2006 komst Arsenal í fyrsta og eina sinn í úrslitaleik Meistaradeildar Evrópu. Á leið sinni í úrslitaleikinn héldu Skytturnar hreinu í tíu leikjum í röð. Úrslitaleikurinn, sem fór fram á Stade de France, byrjaði ekki vel fyrir Arsenal því á 18. mínútu var þýski markvörðurinn Jens Lehmann rekinn af velli fyrir brot á Samuel Eto'o. Hann varð þar með fyrsti leikmaðurinn sem var rekinn út af í úrslitaleik Meistaradeildarinnar. Þrátt fyrir liðsmuninn komst Arsenal yfir þegar Sol Campbell skoraði með skalla á 37. mínútu og staðan var 1-0 í hálfleik, Skyttunum í vil. Barcelona sótti stíft í seinni hálfleik og pressan bar loks árangur á 76. mínútu þegar Eto'o jafnaði. Fjórum mínútum síðar skoraði varamaðurinn Juliano Belletti sigurmarkið. Annar varamaður, Henrik Larsson, lagði bæði mörkin upp. Lokatölur 2-1, Barcelona í vil sem vann þarna Meistaradeildina í annað sinn í sögu félagsins. Leikur Chelsea og Arsenal hefst klukkan 19:00 og verður sýndur beint á Stöð 2 Sport.
Evrópudeild UEFA Tengdar fréttir Sagan á bak við framherjaparið sem gæti fært Arsenal Evróputitil í kvöld Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette mynda eitt öflugasta framherjapar fótboltaheimsins í dag. Arsenal treystir á þá og þeirra samstarf í Bakú í kvöld. 29. maí 2019 12:00 Lögreglan í Bakú stöðvaði stuðningsmenn í treyjum Mkhitaryan | Myndband Stuðningsmenn Arsenal voru stöðvaðir af lögreglunni í Bakú fyrir að vera í treyjum merktum Henrikh Mkhitaryan. 29. maí 2019 07:30 Mest lesið Olga ætlar ekki í slag við Willum Sport Eygló Fanndal Evrópumeistari Sport „Hugur minn er bara hjá henni“ Íslenski boltinn Móðir Eyglóar afhenti henni sögulegt EM-gull Sport Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn Fótbolti Neymar fór grátandi af velli Fótbolti Rekinn út af eftir 36 sekúndur Handbolti Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Íslenski boltinn Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Enski boltinn Í beinni: ÍBV - Víkingur | Fyrsti heimaleikur Eyjamanna Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mosfellingar fundu markaskóna og Fylkismenn orðnir níu fyrir hálfleik Í beinni: Fiorentina - Celje | Albert og félagar geta komist í undanúrslit Slæmur skellur á móti nágrönnunum Í beinni: ÍBV - Víkingur | Fyrsti heimaleikur Eyjamanna Van de Ven: Tottenham vill vinna Evrópudeildina fyrir Postecoglou Sönderjyske vann Íslendingaslaginn Neymar fór grátandi af velli Sky Sports: Ancelotti hættir með Real Madrid eftir bikarúrslitaleikinn Tevez vill að Ronaldo og Messi spili saman í kveðjuleiknum hans Fimmtán ára og skoraði í fyrsta byrjunarliðsleiknum í efstu deild Óvenjuleg taktík Real Madrid á móti Arsenal fær falleinkunn frá Ferdinand Van Dijk skrifaði undir nýjan samning við Liverpool Segir að öllum hafi verið sama um kvennaliðið í KR Sjáðu Arsenal slá út Real Madrid, vítið sem dæmt og vítið sem var dæmt af Veltu fyrir sér hvort það hafi verið rétt að taka Rashford af velli Uppbótartíminn: „Draumar eru til þess að stefna hátt“ Aubameyang syrgir fallinn félaga „Þetta var skrýtinn leikur“ „Höfum afsannað allar spár sem hafa komið og ætlum að halda því áfram“ Newcastle upp í þriðja sætið „Hugur minn er bara hjá henni“ Leik lokið: Valur - FH 0-0 | Markalaust í leik sem litaðist af ljótum meiðslum Tvö mörk á þremur mínútum sendu Inter í undanúrslit Skytturnar í undanúrslit Meistaradeildar Evrópu Viðar Örn að glíma við meiðsli Uppgjörið: Víkingur - Þór/KA 1-4 | Engin hamingja hjá heimakonum Uppgjörið: Tindastóll - FHL 1-0 | Stólarnir sýndu enga miskunn Ætlar ekki að verja forystuna Bærinn seldi tækin úr ræktinni: „Vona að Fjarðabyggð sjái að sér“ Onana byrjar gegn Lyon en tímabilinu lokið hjá Zirkzee Sjá meira
Sagan á bak við framherjaparið sem gæti fært Arsenal Evróputitil í kvöld Pierre-Emerick Aubameyang og Alexandre Lacazette mynda eitt öflugasta framherjapar fótboltaheimsins í dag. Arsenal treystir á þá og þeirra samstarf í Bakú í kvöld. 29. maí 2019 12:00
Lögreglan í Bakú stöðvaði stuðningsmenn í treyjum Mkhitaryan | Myndband Stuðningsmenn Arsenal voru stöðvaðir af lögreglunni í Bakú fyrir að vera í treyjum merktum Henrikh Mkhitaryan. 29. maí 2019 07:30