Eyjagrýla FH-inga lifir góðu lífi í Heimaey Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 6. febrúar 2020 17:15 FH-ingar hafa farið í sjö fýluferðir í röð út í Eyjar. Vísir/Bára
ÍBV tekur á móti FH í kvöld í átta liða úrslitum Coca Cola bikars karla í handbolta en í boði er sæti í bikarúrslitahátíðinni í Laugardalshöll. Eyjamenn eru búnir að vinna báða leiki liðanna í Olís deildinni í vetur og hafa haft mikið tak á FH-ingum úti í Eyjum undanfarin ár. FH-ingar þurfa að losa takið Eyjagrýlunnar ætli þeir sér að verja bikarmeistaratitilinn sem þeir unnu í fyrra. ÍBV vann bikarinn árið 2018 og þetta eru því bikarmeistarar síðustu tveggja ára. En aftur af vandræðum FH-inga á Heimaey. FH hefur nú tapað sjö síðustu leikjum sínum úti í Vestmannaeyjum eða öllum leikjum sínum síðan að þeir unnu eins marks sigur 25. nóvember 2016. Síðan eru liðnir 38 mánuðir eða nákvæmlega 1168 dagar. Í þessum sigri FH-liðsins í Eyjum fyrir þremur árum og rúmum tveimur mánuðum þá var Óðinn Þór Ríkharðsson markahæstur hjá liðinu með sex mörk en hann spilar nú sem atvinnumaður í Danmörku. Báðir deildarleiki liðanna í vetur hafa verið æsispennandi og unnist á einu marki. Dagur Arnarsson skoraði sigurmark ÍBV í síðasta leik í desember í Kaplakrika en Hákon Daði Styrmisson skoraði sigurmarkið í leik liðanna í Eyjum í september. Fannar Þór Friðgeirsson átti stoðsendinguna í báðum mörkunum. Hákon Daði Styrmisson er með 18 mörk í þessum tveimur leikjum á móti FH en hann þekkir vel til Hafnarfjarðar eftir að hafa spilað með Haukum í nokkur ár. Petar Jokanovic hefur líka verið FH-ingum erfiður í ÍBV markinu í þessum leikjum. Hann varði 19 skot í fyrri leiknum (48%) og 15 skot í þeim síðari.Síðustu leikir ÍBV og FH í Vestmannaeyjum: 23. september 2019 - Deild - ÍBV vann 1 marks sigur (23-22) 22. apríl 2019 - Úrslitakeppni - ÍBV vann 8 marka sigur (36-28) 24. mars 2019 - Deild - ÍBV vann 2 marka sigur (31-29) 17. maí 2018 - Úrslitakeppni - ÍBV vann 7 marka sigur (29-22) 12. maí 2018 - Úrslitakeppni - ÍBV vann 6 marka sigur (32-26) 26. febrúar 2018 - Deild - ÍBV vann 8 marka sigur (37-29) 9. mars 2017 - Deild - ÍBV vann 9 marka sigur (30-21) 25. nóvember 2016 - Deild - FH vann 1 marks sigur (24-23)
Olís-deild karla Mest lesið Persónulegar ástæður fyrir brotthvarfi Vésteins Sport Blá og marin rétt fyrir EM: „Vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta“ Sport Ólafur baðst afsökunar eftir leik: „Ég er bara rosalega viðkvæmur eins og er“ Körfubolti Real Madrid vill fara í viðræður við Liverpool um Trent Enski boltinn Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Íslenski boltinn „Komum Gylfa Þór meira í boltann“ Fótbolti Hildur fékk svakalegt glóðarauga Fótbolti „Er þetta ljótasti maður sem þú hefur kysst?“ Körfubolti Sjáðu partýið í Kópavogi, Gylfa afgreiða Fram og nýliðana í stuði Íslenski boltinn Mac Allister: Liverpool er bara rétt að byrja Enski boltinn Fleiri fréttir Haukakonur í lokaúrslitin á móti Val Bjarki kallaður inn í landsliðið Sólveig Lára hætt með ÍR Gríðarlega spenna á toppnum en stórleikur Viggós dugði ekki til „Borgar þrjátíu en færð hundrað prósent“ Kolstad rétti úr kútnum og komst í úrslit Lærisveinar Arnórs laumuðu sér upp fyrir lið Guðmundar Þórir ráðinn til HSÍ Mætir bróður sínum í úrslitum: „Staðfestur titill á okkar heimili“ Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita Fram á lífi eftir sigur gegn Haukum Stjarnan áfram í Olís deildinni Íslandsmeistararnir örugglega í úrslit Haukur meistari í Rúmeníu „Verður svakalegur leikur“ Gísli og Ómar drógust gegn meisturunum Sjáðu sigurmark Gísla gegn Veszprém Janus Daði öflugur þegar Pick Szeged féll naumlega úr keppni Viggó og Andri Már frábærir í sigrum sinna liða Gísli Þorgeir skaut Magdeburg áfram Orri sá farmiðann til Kölnar enda í tætaranum Gagnrýnir HSÍ harðlega: „Enginn metnaður til að gera betur“ Valur í kjörstöðu gegn ÍR Góður leikur Þorsteins Leó dugði ekki í Frakklandi Uppgjörið: Haukar - Fram 25-24 | Orkufrekur eltingaleikur „Ég er smá í móðu“ Haraldur tekur við Fram af Rakel „Treysti bara á að allt þetta fólk mæti“ Uppgjörið: Afturelding - Valur 29-26 | Einvígið ræðst í oddaleik Guðjón Valur missir fyrirliðann sinn Sjá meira
Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Íslenski boltinn
Uppgjörið: Valur - Afturelding 33-29 | Afturelding send í sumarfrí og Valsmenn leika til úrslita
Tóku Valsmenn til bæna: „Það er kannski helvítis málið, það er ekki hungur í paradís“ Íslenski boltinn