Fréttir
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 334 ›
Rýnt í hæðir og lægðir baráttunnar Íslendingar ganga að kjörborðinu eftir tæpar tvær vikur. Kosningabaráttan er í hámarki og gengið hefur á ýmsu. Í Pallborðinu ætlum við að fara yfir hæðir og lægðir í baráttunni; rýna í herferðir, ræða málefni og frambjóðendur og spá fyrir um framhaldið. Innlent 18.11.2024 12:59
„Þetta er ofboðslega vond tilfinning - mjög vond“ Atburðarásin var hröð í Vesturbæ Reykjavíkur eftir að íbúi birti mynd í Facebook-hópi íbúa af grunsamlegum karlmanni með hafnaboltakylfu að grípa í húninn á útidyrahurð í raðhúsi. Þremur klukkustundum síðar hafði nágranni endurheimt fokdýrt reiðhjól sem hafði verið stolið um nóttina og tveir verið handteknir. Innlent 18.11.2024 12:52
Breyting á búvörulögum hefur ekkert gildi Dómari við Héraðsdóm Reykjavíkur hefur slegið því föstu að gríðarlega umdeild breyting á búvörulögum hafi strítt gegn stjórnarskrá og breytingin hafi því ekkert gildi að lögum. Innlent 18.11.2024 12:31
Kvikmyndagerðarfólk bænheyrt og sjóðnum komið til bjargar Menningar- og viðskiptaráðherra og fjárlaganefnd Alþingis hafa svarað kalli kvikmyndagerðarfólks sem vöktu athygli á bágri stöðu Kvikmyndasjóðs fyrir helgi. Nú á að auka fjárveitingu í sjóðinn umtalsvert en það var ljóst eftir að meirihluti fjárlaganefndar samþykkti breytingartillögu á fjárlögum á fimmtudaginn. Innlent 18.11.2024 12:19
Kemur til greina að fara dómstólaleiðina Ríkissáttasemjari segir skref í rétta átt hafa verið tekin í kjaradeilu kennara og ríkis og sveitarfélaga um helgina en samninganefndir hittast á morgun í fyrsta sinn á formlegum fundi í meira en hálfan mánuð. Kennarar við Menntaskólann í Reykjavík bættust í morgun í hóp þeirra kennara sem lagt hafa niður störf. Sveitafélögin íhuga að leita til dómstóla. Innlent 18.11.2024 12:12
Fjárlög samþykkt en VG sat hjá Fjárlagafrumvarp ársins 2025 var samþykkt á Alþingi í dag með 26 atkvæðum þingmanna Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins. Þingflokkur Vinstri grænna sat hjá við atkvæðagreiðsluna líkt og aðrir flokkar stjórnarandstöðunnar. Þannig sátu 24 þingmenn hjá við atkvæðagreiðsluna en tólf þingmenn voru fjarverandi. Innlent 18.11.2024 12:04
Sækir um leyfi til hrefnuveiða vegna ofgnóttar fyrir vestan Þrjú fyrirtæki hafa sótt um halveiðileyfi til viðbótar við Hval hf. Öll þrjú sóttu um leyfi til veiða á hrefnu en ekki liggur fyrir hvenær umsóknirnar verða afgreiddar. Eigandi eins fyrirtækisins segir sjómenn á Vestfjörðum hafa orðið vara við breytingar á lífríkinu vegna ofgnóttar af hrefnu. Innlent 18.11.2024 12:02
Alþingi að ljúka og bjartsýnistónn í deiluaðilum í Karphúsinu Kennaraverkföll standa enn og í morgun hófst verkfall í Menntaskólanum í Reykjavík. Fundur í deilunni hefur verið boðaður á morgun. Innlent 18.11.2024 11:37
Þarf að greiða á sjöunda þúsund fyrir að kjósa Íslenskur öryrki sem er búsettur í Brasilíu furðar sig á því að þurfa að greiða 6.500 krónur fyrir að kjósa utan kjörfundar í komandi alþingiskosningum. Innlent 18.11.2024 11:37
Stefnir í slag við samfélagsmiðla og sjónvarpsstöðvar Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, tilkynnti í gær að hann ætli að tilnefna Brendan Carr í embætti formanns Fjarskiptastofnunnar Bandaríkjanna (FCC). Þykir það til marks um að Trump ætli að herja gegn samskiptamiðlafyrirtækjum fyrir meinta ritskoðun og fjölmiðlum, en Trump hefur ítrekað talað um að svipta sjónvarpsstöðvar sem honum þykir fjalla illa um sig útsendingarleyfi. Erlent 18.11.2024 11:10
Frost en þurrt þegar bílarnir skullu saman Bílar sem lentu í árekstri í gærkvöldi á Biskupstungnabraut skammt frá Þrastalundi skullu saman úr gagnstæðri átt. Innlent 18.11.2024 11:04
Tóku skref í rétta átt um helgina Samninganefndir kennara og ríkis og sveitarfélaga ætla að funda á morgun í fyrsta sinn í meira en hálfan mánuð. Þetta staðfestir ríkissáttasemjari við fréttastofu. Innlent 18.11.2024 10:25
Ferskvatnsforði jarðar ekki náð sér á strik eftir þráláta þurrka Magn fersksvatns á jörðinni hefur ekki komist í fyrra horf eftir að það tók dýfu fyrir rúmum tíu árum samkvæmt gervihnattamælingum. Ekki er talið tilviljun að hnignun ferskvatnsforðans eigi sér stað þegar níu af síðustu tíu árum voru þau hlýjustu sem um getur. Erlent 18.11.2024 10:05
Grímuklæddir menn keyrðu niður hlið við Windsor Grímuklæddir menn klifruðu í síðustu viku yfir grindverk við Windsor kastala á meðan Vilhjálmur og Katrín, prinsinn og prinsessan af Wales, og þrjú börn þeirra voru sofandi í húsnæði þeirra á lóð kastalans en þau fluttu þangað árið 2022. Erlent 18.11.2024 09:57
Scholz ver símtal sitt við Pútín Enga hugarfarsbreytingu var að merkja hjá Vladímír Pútín gagnvart stríðsrekstri hans í Úkraínu í símtali við Olaf Scholz, kanslara Þýskalands, fyrir helgi. Scholz á í vök að verjast vegna símtalsins og er sakaður um að rjúfa samstöðu með Úkraínu. Erlent 18.11.2024 09:01
Leita einstaklinga sem hafa lifað óvenjulengi eftir greiningu Krabbameinssérfræðingar í 40 löndum hyggjast taka höndum saman og rannsaka einstaklinga sem hafa greinst með alvarleg krabbamein og lifað lengur en vonir stóðu til. Erlent 18.11.2024 07:56
Heimskautaflofti beint til landsins í sífellu Hæð yfir Grænlandi og víðáttumikil lægð yfir Skandinavíu beina nú í sífellu heimskautalofti úr norðri til landsins. Þessi staða veðrakerfa virðist ætla að verða þrálát og því er líklegt að það verði kalt í veðri hjá okkur alla vikuna. Veður 18.11.2024 07:08
Vinur læknisins líka með stöðu sakbornings Vinur læknis, sem stunginn var í Lundi í Kópavogi í sumar, er með réttarstöðu sakbornings vegna áfloga milli hans og árásarmannsins. Eftir að árásarmaðurinn flúði vettvang stökk vinurinn upp á rafhlaupahjól árásarmannsins og elti hann uppi. Innlent 18.11.2024 07:00
Ríkissáttasemjari segir viðræðum miða ágætlega Verkfall kennara við Menntaskólann í Reykjavík hófst nú á miðnætti og mun það standa fram til 20. desember ef ekki verður samið í millitíðinni. Kennarar og leiðbeinendur sem eru í KÍ leggja niður störf, sem og náms- og starfsráðgjafar. Innlent 18.11.2024 06:53
Fjögur fyrirtæki hafa sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar Alls hafa fjögur fyrirtæki sótt um leyfi til að stunda hvalveiðar en samkvæmt svörum frá matvælaráðuneytinu liggur ekki fyrir hvenær afgreiðslu umsókna lýkur. Innlent 18.11.2024 06:45
Fengu ekki inni hjá borginni og gistu í fangageymslum Tveir heimilislausir menn gistu fangageymslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt, eftir að tilkynningar bárust um að þeir væru þar sem þeir voru óvelkomnir. Innlent 18.11.2024 06:28
Vill ekki að talað sé um íslenska garðyrkju í þátíð Formaður garðyrkjudeildar Bændasamtakanna segir garðyrkjubændur standa frammi fyrir hátt í 25 prósenta hækkun í verði á raforku sem fæstir bændur geti staðið undir. Hann segist ekki vilja að talað sé um íslenskan garðyrkju í þátíð og segi öryggisleysi almennings í orkumálum óboðlegt. Innlent 17.11.2024 23:25
Börðust við eldinn klukkustundum saman í sex stiga frosti Brunavarnir Suðurnesja sinntu krefjandi verkefni í nótt, þegar eldur kom upp í eggjabúi á Vatnsleysuströnd. Baráttan við eldinn fór fram í sex stiga frosti og stóð yfir í margar klukkustundir. Mikil áskorun var að tryggja að eldur breiddist ekki yfir í fleiri byggingar. Innlent 17.11.2024 21:36
Jón Guðmundsson fasteignasali er látinn Jón Guðmundsson, fasteignasali og eigandi Fasteignamarkaðsins, er látinn 82 ára að aldri. Hann lætur eftir sig eiginkonu, Jóhönnu Hreinsdóttur og fjögur börn. Innlent 17.11.2024 21:34
Alvarlegt bílslys við Þrastalund og þrír fluttir með þyrlunni Þrír voru fluttir á sjúkrahús með þyrlu Landhelgisgæslunnar eftir að tveir bílar skullu saman úr gagnstæðri átt við Þrastalund. Alls voru sex í bílunum tveimur. Innlent 17.11.2024 20:59
Úkraínumönnum heimilt að beita langdrægum eldflaugum Joe Biden Bandaríkjaforseti hefur veitt Úkraínumönnum heimild til þess að beita bandarískum langdrægum eldflaugum, svokölluðu ATACMS-vopnakerfi, á rússneskri grundu. Erlent 17.11.2024 20:13
Þyrlan kölluð út vegna umferðarslyss við Þrastalund Óskað var eftir aðstoð þyrlu Landhelgisgæslunnar vegna umferðaslyss við Þrastalund þegar um korter vantaði í átta í kvöld. Óljóst er um fjölda bíla. Innlent 17.11.2024 20:00
Brynjar verður ekki í stjórn Mannréttindastofnunar Brynjar Níelsson tekur ekki sæti í stjórn Mannréttindastofnunar eins og staðið hafði til. Sigurður Kári Kristjánsson, fyrrverandi þingmaður Sjálfstæðisflokksins tekur sætið þess í stað og vera formaður hennar. Innlent 17.11.2024 19:43
Segir verkföll ekki mismuna börnum Formaður Kennarsambandsins segir félagið ekki mismuna börnum með verkföllum sínum sem hafa nú staðið yfir í þrjár vikur í völdum grunn-, og tónlistarskólum en ótímabundin verkföll standa yfir í fjórum leikskólum. Næsti formlegi sáttafundur verður haldinn á þriðjudaginn. Innlent 17.11.2024 19:35
Upplifir mikið vonleysi og gengur á sumarfrísdagana Foreldrar sem eiga börn í skólum í verkfalli upplifa mikið vonleysi. Fjögurra barna móðir segist neyðast til að nota sumarfrísdagana sína og önnur þurfti að hætta í vinnunni því hún hefur ekki getað mætt í rúmar tvær vikur. Innlent 17.11.2024 19:03