
Rafíþróttir

Dusty enn á toppnum eftir sigur á Hetti
Viðureign Dusty og Hattar í 7. umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike gærkvöld lauk með 2-1 sigri Dusty sem er þá komið með 14 stig og heldur enn toppsætinu.
Fréttir í tímaröð

Höfuðandstæðingarnir tveir skiptu sjöttu umferð á milli sín
Kristófer Tristan og Denas Kazulis eru enn í tveimur efstu sætum ELKO-Deildarinnar í Fortnite eftir að hafa sigrað hvor sinn leikinn í 6. umferð sem var spiluð í gærkvöld.

Dvergarnir voru of stór biti fyrir Coup de Brains að kyngja
Lið Snorra & Dverganna og Coup de Brains tókust á í 5. umferð Litlu-Kraftvéladeildarinnar á sunnudaginn og voru úrslitin í samræmi við stöðu liðanna á töflunni.

Bráðabani í æsispennandi netskákeinvígi
Heldur betur hitnaði í kolunum á Íslandsmeistaramótinu í Netskák í seinni umferð gærkvöldsins. Eftir óvenju auðvelda 6-0 afgreiðslu Guðmundar Kjartanssonar á Símoni Þórhallssyni tók við háspennu einvígi Hilmis Freys Heimissonar og Aleksandr Domalchuk-Jonasson, sem stóð ekki uppi sem sigurvegari fyrr en að loknum fyrsta bráðabana mótsins.

Tæknin varð Breiðnefjum fjötur um fót í Dota2
Lið Kidda Karrí og Mímklúbbsins Breiðnefs skildu jöfn, 1-1, í viðureign sinni í 2. riðli fimmtu umferðar Litlu Kraftvéladeildarinnar í Dota 2 á sunnudaginn.

Þór sigraðist á Selum í toppbaráttunni
Lið Þórs frá Akureyri er enn taplaust í Tölvulistadeildinni í Overwatch eftir 2-1 sigur á Selunum frá Selfossi í 5. umferð þar sem liðin voru jöfn að stigum þegar þau hófu baráttuna um fyrsta sætið á laugardaginn.

Topplið Venus hélt Grýlum á botninum
Fimmta umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og að henni lokinni heldur Venus efsta sætinu með 2-13 sigri á Guardian Grýlanna sem eru því enn á botni deildarinnar.

Fyrsti sigur Rafík innsiglaður með „jarðsetningu“ á Sögu
Fimmta umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hélt áfram á fimmtudagskvöld með tveimur leikjum þar sem Rafík sigraði Sögu 2-0 og Þór afgreiddi Kano, einnig 2-0.

Grænlensku börnin spiluðu tölvuleiki með stjörnur í augunum
„Það var smá feimni í gangi en aldrei að vita nema einhver vinasambönd hafi myndast,“ segir rafíþróttaþjálfarinn Daníel Sigurvinsson um heimsókn um 30 grænlenskra grunnskólabarna í Arena þar sem látið var á það reyna hvort hægt væri að nota tölvuleiki til þess að tengja þau við íslenska krakka sem þar æfa.

Hnífjafnt á toppnum í Rocket League
Þriðja umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og skemmst frá því að segja að úrslit leikja höfðu lítil áhrif á stigatöfluna, fyrir utan það helst að ríkjandi meistarar Þórs og OGV eru nú hnífjöfn á toppnum.

Míludeildin er stærsta Valorant-mótið frá upphafi
Míludeildin í Valorant er í fullum gangi og óhætt að fullyrða að áhuginn á henni hafi aldrei verið meiri en nú þegar 50 konur eru skráðar til leiks og átta lið takast á í einu kvennadeild landsins í rafíþróttum.

Venus skellti Skagamönnum á botninn
Fimmta umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst í gærkvöld með tveimur leikjum þar sem Höttur sigraði Ármann 2-0 og ÍA tapaði í botnbaráttuleik fyrir Venus 1-2.

Denas og Kristófer stinga af í ELKO-Deildinni
Fjórða umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite fór fram mánudagskvöldið 30. september og segja má að tveir efstu keppendurnir í deildinni hafi boðið upp á endurtekið efni úr síðustu umferð þegar þeir festu sig enn betur í sessi á toppnum.

TÍK horfir fram á veginn frá Bessastöðum
„TÍK hafa starfað opinberlega sem félagasamtök núna í tvær vikur og hafa nú þegar fengið boð frá forsetanum á Bessastaði,“ skrifar Melína Kolka, stofnandi Tölvuleikjasamfélags íslenzkra kvenna, á Facebook þegar hún segir frá heimsókn grænlenskra grunnskólabarna til Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, þar sem „TÍK-in“ Eva Margrét Guðnadóttir var með í för.

Félagslegi þátturinn vegur þungt á rafíþróttaæfingum Fjölnis
Ungmennafélagið Fjölnir varð 26. aðildarfélagið að Rafíþróttasambandi Íslands í liðinni viku þegar stjórn sambandsins samþykkti aðildarumsókn nýstofnaðrar rafíþróttadeildar Fjölnis.

TDE hirtu Leifarnar og tvö stig í leiðinni
Viðureign liðanna TDE jr og Leifarnar í 4. umferð Litlu Kraftvéladeildarinnar í Dota 2 lauk með kærkomnum og góðum 2-0 sigri sem skilaði TDE sínum fyrstu tveimur stigum.

Jötunn og Böðlar berjast í bökkum á botninum
Þrír leikir fóru fram í 4. umferð Tölvulistadeildarinnar í Overwatch á laugardaginn og að henni lokinni er lið Þórs enn í efsta sæti eftir 3-0 sigur á Jötni í „svakalegum leik“ eins og Óskar og Guðný Stefanía orðuðu það í beinni útsendingu frá umferðinni.

Baráttan harðnar í Valorant
Fjórða umferð Míludeiladarinnar í Valorant fór fram á föstudagskvöld og ljóst var á leikjum kvöldsins að farið er að hitna í kolunum og baráttan á toppi deildarinnar að harðna, bæði um toppsætið að tryggja sig áfram í fjögurra liða úrslit.

Stofnandi Rafíþróttasambands Íslands í Esports Hall of Fame
Esports Insider tók Ólaf Hrafn Steinarsson, stofnanda Rafíþróttasambands Íslands, inn í Esports Hall of Fame, frægðarhöll rafíþróttanna, við hátíðlega athöfn í Lissabon í Portúgal á miðvikudaginn.

Dusty aftur á toppinn eftir 4. umferð
Fjórðu umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike lauk í gærkvöld með þremur leikjum þar sem Dusty sigraði Rafík 2-0, Saga lagði Kano 2-1 og Þór hafði betur gegn ÍA 2-0.

Fortnite er aðalleikurinn
„Þetta var frekar tæpt sko,“ segir Filip Kosta um 1. sætið sem þeir Tómas Hrafn Gunnarsson, félagi hans úr Breiðabliki, náðu í tvíliðaleik í Fortnite í flokki 8-12 ára á ungmennamótinu sem haldið var í Arena um helgina.

Óbreytt staða á toppnum í Rocket League
Önnur umferð GR Verk Deildarinnar í Rocket League fór fram í gærkvöld og skemmst frá því að segja að úrslitin í leikjunum þremur höfðu lítil áhrif á stöðu liðanna í deildinni þar sem ríkjandi meistarar Þórs tróna enn á toppnum.

„Ég er í sjokki eftir þennan leik“
Þriðja umferð ELKO-Deildarinnar í Fortnite fór fram á mánudagskvöld og lauk þannig að iKristoo er kominn með 141 stig sem duga honum til að ná toppsætinu af denas 13 sem er í 2. sæti með 135 stig.

Ármenningar taplausir á toppnum
Fjórða umferð Ljósleiðaradeildarinnar í Counter Strike hófst í gærkvöld með tveimur leikjum þar sem Höttur sigraði Venus 0-2 og Veca tapaði fyrir Ármanni 0-2.