Menning
170 171 172 173 174 175 176 177 178 … 334 ›
Uppnám í Þjóðleikhúsinu Sýningum á Uppnámi, uppistandssýningu sem sýnd hefur verið við góðan orðstír í Þjóðleikhúskjallaranum lýkur með pompi og prakt á stóra sviði Þjóðleikhússins á morgun, föstudag. "Við ætluðum okkur upphaflega að sýna fimm sýningar en þær eru orðnar þrettán. Sýningin á laugardag er sú allra síðasta og þá verðum við á stóra sviðinu sem er frábær endir og óvæntur," segir Arna Ýr Sævarsdóttir, framkvæmdastjóri sýningarinnar. Menning 2.2.2012 11:00
Við erum öll samsett úr fortíðinni Árið 1955 kom út bókin Tristes Tropiques eftir Claude Lévi-Strauss. Bókin, sem er blanda ferðasögu, mannfræðirannsókna og heimspekirannsókna, hafði gríðarleg áhrif á sýn heimsins á frumstæð samfélög og breytti mannfræði til frambúðar. Menning 28.1.2012 11:00
Tæknimenning í Gerðarsafni Sýningin Sæborgin: Kynjaverur og ókindur verður opnuð í Gerðarsafni laugardaginn næsta, 21. janúar, klukkan 15. Sýningin byggir á nýútkominni bók Úlfhildar Dagsdóttur bókmenntafræðings, Sæborgin: Stefnumót líkama og tækni í ævintýri og veruleika, sem fjallar um þá ímynd er tæknimenning og líftækni taka á sig í vitund almennings. Menning 18.1.2012 21:00
007 og Sinfó í Hörpu Sigríður Thorlacius er ein úr hópi valinkunnra söngvara sem taka þátt í James Bond-veislu Sinfóníuhljómsveitar Íslands í Hörpu. Hún syngur lag úr myndinni Diamonds Are Forever sem upphaflega var flutt af Carly Simon. Menning 18.1.2012 16:30
Landsliðið heiðrar Paul Motian í Norræna húsinu Landslið íslenskra jazzleikara leikur í minningu trommarans Paul Motian, sem féll frá 22. nóvember, í Norræna húsinu á fimmtudag. Bandaríski trommarinn Scott McLemore, sem er búsettur á Íslandi, hefur skipulagt tónleika þar sem tónsmíðum Motian's verður gert skil. Menning 17.1.2012 20:00
Bergmál fortíðar Tvær sýningar verða opnaðar í Ljósmyndasafni Reykjavíkur á morgun. Annars vegar Bergmál, samsýning Charlottu Maríu Hauksdóttur og Sonju Thomsen. Viðfangsefni sýningarinnar er tíminn og endurbirting hins liðna. Titillinn vísar ekki aðeins til þess hvernig hið liðna endurvarpast inn í nútímann, heldur einnig til þess hvernig verkin á sýningunni kallast á. Þær Charlotta og Sonja stunduðu nám á sama tíma við San Fransisco Art Institute, þaðan sem þær útskrifuðust með MFA-gráðu í ljósmyndun árið 2004. Menning 13.1.2012 15:15
Salon Islandus bregður á leik „Við höfum staðið fyrir nýárstónleikum síðan árið 2004, leikum Vínartónlist, valsa og polka, sprellum og höfum það gaman. Í ár verður Þóra Einarsdóttir söngkona með okkur og tekur nokkur lög,“ segir Anna Guðný Guðmundsdóttir píanóleikari og meðlimur í kammerhópnum Salon Islandus sem heldur tónleika í Salnum í Kópavogi annað kvöld klukkan átta. Menning 12.1.2012 10:00
Lögðu grunn að kvótakerfinu Haukur Halldórsson gerði Útvegsspilið ásamt Tómasi Tómassyni og Jóni Jónssyni. Spilið var vinsælasta jólagjöfin árið 1977 og markaði straumhvörf á íslenskum spilamarkaði. Höfundarnir kynntu þáverandi sjávarútvegsráðherra fyrir nýstárlegum hugmyndum um kvó Menning 2.1.2012 22:30
Óður til kynlífs og hvöt gegn klámi Sigríður Jónsdóttir, bóndi og kennari á Suðurlandi, sendi frá sér sína aðra ljóðabók í haust. Kanill er hispurslaust kver um holdsins lystisemdir. Menning 22.12.2011 22:00
Umbrot í máli og myndum Ljósmyndabókin Ísland á umbrotatímum eftir Björn Erlingsson kom út á dögunum. Þar lýsir höfundurinn í máli og myndum þeim hræringum sem orðið hafa í íslensku samfélagi á liðnum misserum. Menning 22.12.2011 19:00
Tímaritin streyma út Ný tölublöð fimm tímarita helguðum menningu og fræðum hafa komið út á undanförnum dögum: Tímarit Máls og menningar, Spássían, Stína, Skírnir og Saga. Menning 21.12.2011 12:00
Kristín Ómarsdóttir les upp í Nýló Kristín Ómarsdóttir les upp úr nýrri bók sinni, Við tilheyrum öll sama myrkrinu, í Nýlistasafninu á morgun. Menning 21.12.2011 11:00
Konur Steinunnar sækja alltaf í gröfina Tvær bækur eftir Guðna Elísson prófessor komu nýverið út á vegum Háskólaútgáfunnar. Aðra þeirra, greinasafnið Hef ég verið hér áður, vann Guðni með eiginkonu sinni, Öldu Björk Valdimarsdóttur. Hún fjallar um höfundarverk Steinunnar Sigurðardóttur rithöfundar. Hin bókin er samansafn greina sem taka á samtímanum út frá ólíklegustu hliðum. Menning 21.12.2011 09:00
Steypa á DVD Steypa, heimildarmynd um íslenska samtímalist eftir Ragnheiði Gestsdóttur og Markús Þór Andrésson, er komin út á mynddisk. Menning 20.12.2011 09:00
Kertaljósatónleikarnir hafnir Hin árlega kertaljósatónleikaröð Kammerhópsins Camerarctica hófst í gær. Menning 20.12.2011 07:00
Endurminningin merlar æ Hannes Pétursson skáld er áttræður í dag. Hann sendi jafnframt frá sér á dögunum bókina Jarðlag í tímanum, þar sem hann dregur upp minningarmyndir úr barnæsku sinni norður í Skagafirði. Bergsteinn Sigurðsson hitti skáldið að máli. Þetta eru svo sem engin sérstök tímamót í mínum huga,“ segir Hannes Pétursson skáld, sem er áttræður í dag. "Mér finnst ég betri til heilsunnar en ég var fyrir tíu til fimmtán árum, hausinn er í þokkalegu lagi þótt mér misheyrist stundum og missjáist eins og gengur og gerist með gamla karla. Að öðru leyti plagar mig ekkert og þetta er eins og hver annar dagur.“ Menning 14.12.2011 10:45
Gleymdi aldrei sögunni Listamaður og blaðamaður rekja slóð fjárglæframanna í London og á Íslandi í Samhengi hlutanna, nýrri skáldsögu eftir Sigrúnu Davíðsdóttur. Höfundurinn rekur tilurð sögunnar aftur til ársins 2006, áður en íslenska útrásin varð að efnahagshruni. Menning 11.12.2011 07:00
Norskur kór í Langholtskirkju Norski kórinn Bærum Bachkor heldur tónleika í Langholtskirkju á föstudaginn klukkan 20. Ásamt kórnum kemur hljóðfærahópurinn "Norwegian Cornett & Sackbuts“ sem leika á blásturshljóðfæri frá endurreisnartímanum, meðal annars zink og básúnur. Á efnisskránni eru verk eftir Michael Prätorius, Heinrich Schütz, Giovanni Gabrieli og fleiri. Menning 2.12.2011 20:00
Jarðskjálfti í Nemendaleikhúsinu Jarðskjálfti eftir London, sem Nemendaleikhúsið sýnir í Smiðjunni, er spánnýtt verk eftir breska leikskáldið Mike Bartlett. Það var frumsýnt í National Theater í London í fyrra við góðar undirtektir. Sögð er saga af snörpum hræringum í lífi þriggja systra sem reyna af öllum mætti að bjarga sér og sínum úr hamförum og framförum nútímans á meðan faðir þeirra, heimsfrægur vísindamaður, boðar heimsendi. Tónlist, dansi og myndbandsverkum er fléttað saman í sýningunni. Menning 2.12.2011 11:00
Hvernig vilt þú fara ofan í jörðina? Nám í Mótun er tveggja ára tilraunastofa í samstarfi Myndlistaskólans í Reykjavík og Tækniskólans. Unnið er með leir og önnur efni, tengd honum. Námið er leið til BA-gráðu við evrópska samstarfsskóla. Menning 30.11.2011 09:20
Saga Herbjargar verður einleikur í Hamborg „Frúin er komin á svið í Hamborg,“ segir Hallgrímur Helgason rithöfundur. Þýska leikhúsið Thalia Theater í Hamborg hefur tryggt sér réttindin að bókinni Konan við 1000° í Þýskalandi. Og hyggst setja upp einleik fyrir reynda leikkonu sem ráðgert er að verði frumsýndur í október á næsta ári. Eins og Fréttablaðið hefur þegar greint frá er Þjóðleikhúsið á Íslandi þegar búið að tryggja sér svipuð réttindi að leikgerðinni hér á landi. Menning 26.11.2011 17:00
Átján grasrótarlistamenn sýna á Köllunarklettsvegi Málverk, skúlptúrar, ljósmyndir og vídeóverk átján listamanna má nú sjá í gömlu Sanitas-verksmiðjunni á Köllunarklettsvegi 4. Internet-galleríið Muses stendur fyrir sýningunni. Menning 26.11.2011 15:00
Bít-skáld liðkaði fyrir Ameríkuútgáfu „Hún verður gefin út hjá forlagi sem nefnist New American Press og er ekki langt frá Chicago. Þetta er tíu til fimmtán ára gamalt forlag sem gefur út bókmenntir og tímarit. Þeir ætla að gera vel úr þessu og það kemur jafnvel til greina að ég fari út, lesi upp og áriti,“ segir rithöfundurinn Ólafur Gunnarsson. Smásagnasafn hans, Meistaraverkið, verður gefið út í Bandaríkjunum á næsta ári. Menning 25.11.2011 08:00
Einvalalið listamanna á styrktartónleikum Styrktartónleikar Kirkjukórs Lágafellssóknar, Jólaljós, verða í Guðríðarkirkju á sunnudaginn. Allur ágóði rennur til þriggja eftirlifandi barna Hönnu Lilju Valsdóttur sem lést af barnsförum í sumar. Menning 18.11.2011 13:00
Segir jóga hafa góð áhrif á vinnuna Sýning með nýjum málverkum Daða Guðbjörnssonar opnar á Kjarvalsstöðum á morgun klukkan fjögur. Daði sótti innblástur í Ódysseifskviðu Hómers við gerð verkanna. Menning 18.11.2011 12:00
Söngveisla í Iðnó Íslenski sönglistahópurinn kemur fram í Iðnó á degi íslenskrar tungu, næstkomandi miðvikudag. Dagskrá hópsins er tileinkuð ljóðskáldunum Jónasi Hallgrímssyni og Tómasi Guðmundssyni. Á efnisskránni verða lög eins og Dagný, Tondeleió, Enn syngur vornóttin, Fagra veröld, Smávinir fagrir, Sáuð þið hana systur mína, Ég leitaði blárra blóma og fleira í þessum dúr. Menning 14.11.2011 11:00
Ég held að það blundi illska í öllum Glæsir eftir Ármann Jakobsson er ein umtalaðasta skáldsaga haustsins og hefur höfundinum verið hrósað í hástert fyrir frumleg efnistök og frásagnaraðferð. Sjálfur gefur hann lítið fyrir hugmyndina um frumleika en telur aftur á móti að það sem er satt um tíundu öld sé líka satt um okkar tíma. Menning 13.11.2011 08:00
Grét yfir bókarskrifunum Steinunn Sigurðardóttir hélt að hún gæti aldrei skrifað bók um kynferðisbrot. Svo kom söguefnið í bókinni Jójó til hennar og þá varð ekki aftur snúið. Menning 13.11.2011 07:00
Ameríka sýnir Óttari áhuga „Þetta er lítið framleiðslufyrirtæki sem frétti af bókinni í gegnum sameiginlega vinkonu, Rut Hermannsdóttur sjónvarpsframleiðanda. En það er ekkert fast í hendi,“ segir Óttar Martin Norðfjörð rithöfundur. Menning 11.11.2011 09:30
Halda tónleika í Bústaðakirkju Glæðurnar, kór kvenfélags Bústaðakirkju, og Vorboðar halda tónleika í Bústaðakirkju í kvöld klukkan 20. Menning 10.11.2011 11:30