Tónlist
207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 226 ›
Svíar krefjast nærveru Eiríks „Svíarnir sem framleiða þáttinn heyrðu af sigri Eiríks og vildu ólmir halda honum í þættinum. Töldu það bara vera þættinum til framdráttar að vera með sigurvegara innanborðs,“ segir Páll Magnússon, útvarpsstjóri í Efstaleitinu. Tónlist 20.2.2007 10:30
Lady Sovereign - þrjár stjörnur Lady Sovereign heitir réttu nafni Louise Harman og ólst upp í alræmdu fátækrahverfi í Norður-London. Hún vakti fyrst athygli þegar hún setti efni með sér inn á aðdáendasíðu bresku rappsveitarinnar So Solid Crew. Hún var þá 14 ára. Hún átti lag á Grime-safnplötunni Run The Road sem kom út árið 2005, en Grime-tónlistin er sambland af garage-danstónlist og rappi og hefur verið áberandi í London síðustu ár. Tónlist 20.2.2007 09:45
Plata um Kaliforníu Vangaveltur eru uppi um að næsta plata bandaríska tónlistarmannsins Sufjan Stevens muni fjalla um Kaliforníu. Sufjan hefur lýst því yfir að hann ætli að semja plötu um öll fimmtíu ríki Bandaríkjanna. Þegar hefur hann gefið út plöturnar Michigan, sem kom út 2003, og Illinois sem kom út tveimur árum síðar. Tónlist 20.2.2007 08:00
Tónlist af amerískum ættum Ingveldur Ýr Jónsdóttir mezzósópransöngkona og píanóleikarinn Kurt Kopecky flytja aríur og sönglög af amerískum uppruna á hádegistónleikum Íslensku óperunnar í dag. Á efnisskrá dagsins, sem ber yfirskriftina „Andagift frá Ameríku“, eru óperuaríur, söngleikjalög og djasstónlist eftir Stephen Sondheim, Kurt Weill, Menotti og fleiri. Tónlist 20.2.2007 07:15
Helgi trúbador snýr aftur Helgi, persónulegi trúbadorinn, er í aðalhlutverki í nýjum auglýsingum fyrir Lengjuna sem verða frumsýndar í sjónvarpinu í kvöld. Í auglýsingunum, sem eru um fimmtán talsins, syngur Helgi á sinn angurværa og hreinskilna hátt um þekkt nöfn úr knattspyrnuheiminum á borð við Rio Ferdinand og Eggert Magnússon. Tónlist 20.2.2007 06:15
Deep purple og Uriah Heep á Íslandi DEEP PURPLE hefur selt fleiri tónleikamiða hérlendis en nokkur önnur hljómsveit og þegar önnur goðsagnakennd rokksveit á borð við URIAH HEEP bætist við dagskrána er öruggt að slegist verður um hvern miða. Það að tvær jafn stórar sveitir spili saman á tónleikum á sér varla hliðstæðu hérlendis og nokkuð ljóst að rokkunnendur eiga ógleymanlegt kvöld í vændum. Tónlist 19.2.2007 10:09
Fór beint í tólfta sætið Nýjasta plata bresku hljómsveitarinnar Bloc Party, A Weekend in the City, fór beint í tólfta sætið á bandaríska breiðskífulistanum. Fyrsta plata sveitarinnar, Silent Alarm, fór beint í 114. sætið á listanum árið 2005 og því ljóst að vinsældir sveitarinnar hafa aukist gríðarlega vestanhafs. Efst á vinsældarlistanum var nýjasta plata Fall Out Boy, Infinity On High. Tónlist 18.2.2007 08:30
Tónleikar í Hinu húsinu Hljómsveitirnar Coral, Andrúm og Envy of Nona munu halda tónleika í Hinu húsinu fimmtudaginn 22. febrúar næstkomandi. Hljómsveitin Envy of Nova er nýbúin að gefa út sína fyrstu breiðskífu, Two Years Birth, Coral hefur síðustu tvö ár unnið að sinni fyrstu breiðskífu sem væntanleg sumarið 2007 og Andrrúm hefur nýverið gefið út plötu. Tónlist 17.2.2007 14:00
Arctic Monkeys bar af á Brit Brit-verðlaunin voru afhent í London í fyrrakvöld. Arctic Monkeys var sigurvegari kvöldsins með tvenn stærstu verðlaunin. Tónlist 16.2.2007 10:00
Feitur hljómur Kaiser Chiefs Leeds-sveitin Kaiser Chiefs hefur átt mikilli velgengni að fagna frá því að fyrsta platan hennar Employment kom út fyrir tveimur árum. 26. febrúar kemur önnur platan hennar, Yours Truly, Angry Mob, í verslanir. Trausti Júlíusson hlustaði á gripinn. Tónlist 16.2.2007 09:30
Sigur Rós til verndar Varmá Baráttu- og styrktartónleikar undir yfirskriftinni Lifi Álafoss! verða haldnir í BaseCamp-verinu í Héðinshúsinu á sunnudagskvöld. Fram koma Sigur Rós, Bogomil Font & Flís, Pétur Ben, Amiina og Benni Hemm Hemm. Húsið verður opnað klukkan 20.00 og er takmarkaður miðafjöldi. Tónlist 16.2.2007 07:15
Sungið í Smáralind Miðasala er hafin á brekkusöng sem fer fram í Vetrargarðinum í Smáralind á laugardagskvöld. Brekkusöngurinn stendur yfir frá klukkan 20.30 til 23.30 og kemur þar eingöngu fram listafólk frá Vestmannaeyjum. Tónlist 16.2.2007 06:45
Tekur upp á ensku Hljómsveitin Mammút er byrjuð að taka upp nýja plötu sem verður alfarið sungin á ensku. Er hún væntanleg á markað síðar á þessu ári. Tónlist 16.2.2007 06:15
Dalton í Pakkhúsinu á Selfossi Hljómsveitin Dalton mun spila í Pakkhúsinu, Selfossi, föstudags- og laugardagskvöld. Hljómsveitin spilar fjölbreytta og skemmtilega tónlist sem er blanda af funk, soul, rokki og róli í bland við íslenska tónlist. Tónlist 15.2.2007 17:38
Air spilar á Íslandi Franski poppdúettinn Air er á meðal þeirra sem munu spila á frönsku menningarhátíðinni Pourquoi Pas? sem verður haldin hérlendis frá 22. febrúar til 12. maí. Tónlist 15.2.2007 10:00
Kristján Þorvalds og Tommi ríða á vaðið „Það kom mér stórkostlega á óvart hversu margir vildu vera með. Þeir virðast miklu fleiri trúbadorarnir sem vilja koma út úr skápnum en við þorðum að vona,“ segir Friðrik Indriðason, blaðamaður og einn helsti skipuleggjandi Stóru trúbadorkeppninnar, sem hefst á Sportbarnum við Hverfisgötu í kvöld. Tónlist 15.2.2007 09:15
Melaband á meginlandi Sinfóníuhljómsveit Íslands er á ferðalagi um meginland Evrópu og hefur vakið stormandi lukku í tónleikahúsum í Þýskalandi á síðustu dögum. Hljómsveitin mun leika á átta tónleikum á tveimur vikum og hefur þegar haldið tvenna tónleika í Þýskalandi. Tónlist 15.2.2007 08:45
Múlinn steðjar af stað Vetrardagskrá djassklúbbsins Múlans hefst á ný á Domo Bar í kvöld en sextán tónleikar eru fyrirhugaðir þar á næstunni. Múlinn er samstarfsverkefni Félags íslenskra hljómlistarmanna og Jazzvakningar. Klúbburinn heitir í höfuðið á helsta djassgeggjara þjóðarinnar, Jóni Múla Árnasyni, sem jafnframt var heiðursfélagi og verndari Múlans. Tónlist 15.2.2007 08:30
Terem-kvartettinn snýr aftur Hinn eftirsótti Terem-kvartett heldur tónleika í Salnum í kvöld en þeir rússnesku snillingar hafa hlotið nafnbótina þjóðargersemi Rússlands hjá gagnrýnendum auk þess að fá blessun frá páfa og móður Theresu. Uppselt er á tónleikana í kvöld en vegna frábærrar aðsóknar hefur aukatónleikum verið bætt við á sama tíma annað kvöld. Tónlist 15.2.2007 08:00
Notalegt reggíkvöld Reggíkvöld verður haldið á Café Kulture við Hverfisgötu í kvöld í tilefni þess að hinn 6. febrúar síðastliðinn voru 62 ár liðin síðan goðsögnin Bob Marley fæddist. Tónlist 15.2.2007 07:45
Fyrsta platan á vegum Múgíbúgí Plata með tónlist Mugison við kvikmyndina geysivinsælu Mýrina kemur í búðir á morgun. Þetta er fyrsta plata Mugison sem er gefin út hjá nýju útgáfufyrirtæki hans og föður hans, sem kallast Múgíbúgí. Platan átti upphaflega að koma út fyrir síðustu jól en einhverjar tafir urðu á útgáfunni. Tónlist 15.2.2007 05:45
Police í tónleikaferðalag Meðlimir hljómsveitarinnar The Police komu saman og opnuðu Grammy tónlistarverðlaunahátíðina síðasta sunnudag. Þeir höfðu ekki spilað saman síðan árið 1984. Hljómsveitina skipa Sting, Andy Summers og Stewart Copeland en þeir fóru allir að einbeita sér að sólóferli sínum eftir daga Police. Tónlist 13.2.2007 17:00
Sigur Rós spila á styrktartónleikum Lifi Álafoss! er yfirskrift tónleika sem haldnir verða til styrktar Varmársamtökunum, íbúasamtökum í Mosfellsbæ sem vilja standa vörð um framtíð Varmársvæðisins. Tónleikarnir verða haldnir sunnudaginn 18. febrúar í BaseCamp verinu. Fram koma meðal annara Sigur Rós, Bogomil Font og Pétur Ben. Tónlist 13.2.2007 15:00
Sigríður Thorlacius og Babar Á morgun, miðvikudaginn 14. febrúar, mun Sigríður Thorlacius ásamt djasstríóinu Babar flytja tónlist eftir sig og aðra á veitingastaðnum DOMO við Þingholtsstræti 5 í Reykjavík. Tónlist 13.2.2007 14:29
Vinningshafar Grammy Grammy tónlistarverðlaunin voru afhent í 49. sinn í L.A. gærkvöldi og var athöfnin glæsileg að vanda. Ýmsir tónlistarmenn komu fram og skemmtu áhorfendum á milli atriða. Þar má nefna hljómsveitina Police, með Sting í broddi fylkingar, en hún opnaði hátíðina. Hafði hljómsveitin ekki komið saman í yfir 20 ár. Tónlist 12.2.2007 16:45
Frítt í Róm Hljómsveitin Genesis ætlar að halda ókeypis tónleika fyrir rúmlega 400 þúsund aðdáendur á fornum tónleikastað í Róm hinn 14. júlí. Þetta verða lokatónleikar sveitarinnar á fyrstu tónleikaferð sinni í fimmtán ár. Vegna tónleikanna í Róm þurfti Genesis að fresta tónleikum sínum í Austurríki og Tékklandi. Tónlist 12.2.2007 09:30
Íslenskt æði í Þrándheimi „Þeir eru alveg til í þetta rokk, Norðmenn eru ekki eins leiðinlegir og ég bjóst við," segir Valdimar Jóhannsson, bassaleikari hljómsveitarinnar Reykjavík! Valdimar var staddur á norsku tónlistarhátíðinni by:Larm í Þrándheimi um helgina en Íslendingar voru afar áberandi á hátíðinni. Auk Reykjavíkur! spiluðu Lay Low og Últra Mega Teknóbandið Stefán á hátíðinni um helgina. Tónlist 12.2.2007 08:45
MTV-hátíð handan við hornið í Reykjavík „Þetta er á síðustu metrunum en betur má ef duga skal," segir Björn Steinbekk tónleikahaldari, en nú hillir undir það að verðlaunaafhending MTV-sjónvarpsstöðvarinnar verði haldin í höfuðborginni, annað hvort árið 2009 eða 2010. Tónlist 12.2.2007 08:15
Sáttir við Prince Rokksveitin Foo Fighters er ánægð með ákvörðun Prince um að syngja lag hennar Best of You í hálfleik á úrslitaleik bandarísku NFL-deildarinnar í fótbolta, Super Bowl hinn 4. febrúar. Tónlist 12.2.2007 08:00
Til minja um Leg Hljómsveitin Flís er um þessar mundir að leggja lokahönd á nýja plötu sem hefur að geyma tónlist við söngleikinn Leg sem verður frumsýndur í Þjóðleikhúsinu 8. mars. Tónlist 12.2.2007 07:30