Viðskipti erlent
172 173 174 175 176 177 178 179 180 … 334 ›
Blóðugur niðurskurður á Spáni Ríkisstjórn Spánar kynnti í dag víðfermar niðurskurðaráætlanir og skattahækkanir. Óeirðir og mótmæli urðu á götum landsins og í Madrid kom til átaka milli mótmælenda og lögreglu. Viðskipti erlent 11.7.2012 16:00
Þýskir vextir aldrei verið lægri í sögunni Vextir á þýskum ríkisskuldabréfum til 10 ára hafa aldrei verið lægri í sögunni en í morgun voru þeir komnir niður í rétt rúmlega 1,3%. Viðskipti erlent 11.7.2012 10:06
Kína opnar dyrnar fyrir vogunarsjóðum Stjórnvöld í Kína hafa gefið alþjóðlegum vogunarsjóðum leyfi til að taka við fjármunum frá Kínverjum og ávaxta á utan Kína. Viðskipti erlent 11.7.2012 09:25
Spánverjar hækka virðisaukaskatt Forsætisráðherra Spánar, Mariano Rajoy tilkynntu í morgun um þriggja prósenta hækkun á virðisaukaskatti í landinu. Aðgerðin er hluti af aðhaldsaðgerðum Spánverja sem ætla sér að skera niður fjárlög landsins um 65 milljarða evra. Þá á söluskattur að hækka auk þess sem sveitarstjórnum verður gert að skera niður um þrjá og hálfan milljarð evra. Aðgerðirnar eru hluti af samkomulagi sem Spánverjar gerðu við ríkin á evrusvæðinu um 30 milljarða evra lán til spænskra banka. Viðskipti erlent 11.7.2012 09:19
Flestir innflytjendur streyma til Noregs Noregur er það land innan OECD þar sem flestir innflytjendur komu til á árunum 2009 og 2010 mælt sem hlutfall af íbúum landsins. Viðskipti erlent 11.7.2012 07:44
Lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna áfram á neikvæðum horfum Matsfyrirtækið Fitch Ratings hefur staðfest lánshæfiseinkunn Bandaríkjanna sem Aaa en einkunnin er áfram á neikvæðum horfum. Viðskipti erlent 11.7.2012 06:43
Arabískur milljarðamæringur kaupir Nottingham Forest Enska fótboltaliðið Nottingham Forest er komið í eigu arabíska milljarðamæringsins Fawaz Al Hasawi sem búsettur er í Kúwæt. Hasawi tilheyrir einni af auðugustu fjölskyldum landsins. Viðskipti erlent 11.7.2012 06:42
Afsalar sér 4 milljarða króna bónusgreiðslu Bob Diamond, fyrrverandi forstjóri breska bankans Barclays, mun þiggja 400 milljónir króna í laun fyrir árið. Hann mun hins vegar afsala sér 4 milljarða króna bónusgreiðslu sem hann hafði áunnið sér fyrir störf sín í bankanum. Diamond sagði upp störfum hjá bankanum á dögunum vegna vaxtahneykslis sem skekið hefur Bretland. Viðskipti erlent 10.7.2012 13:49
Danske Bank dottinn af Fortune 500 listanum Danske Bank er dottinn af hinum virðingarmikla Fortune 500 lista sem nær yfir 500 stærstu fyrirtæki heimsins. Viðskipti erlent 10.7.2012 09:40
Lítilsháttar tap á rekstri Alcoa á öðrum ársfjórðungi Bandaríski álrisinn Alcoa, móðurfélag Fjarðaáls, skilaði lítilsháttar tapi, eða tveimur milljónum dollara, á öðrum ársfjórðungi ársins. Til samanburðar var 322 milljóna dollara hagnaður af rekstri Alcoa á sama tímabili í fyrra. Viðskipti erlent 10.7.2012 07:34
Heimsmarkaðsverð á olíu lækkar að nýju Heimsmarkaðsverð á olíu hefur lækkað nokkuð á mörkuðum í morgun eftir að ljóst varð að norsk stjórnvöld hefðu komið í veg fyrir að olíuframleiðsla landsins stöðvaðist seint í gærkvöldi. Viðskipti erlent 10.7.2012 06:45
Spænskir bankar fá 30 milljarða evra fyrir mánaðarmótin Fjármálaráðherrar evrusvæðisins samþykktu í gærkvöldi að veita 30 milljörðum evra í neyðaraðstoð til spænskra banka fyrir næstu mánaðarmót. Viðskipti erlent 10.7.2012 06:41
Olíuverkfallið í Noregi stöðvað með neyðarlögum Norska stjórnin greip til neyðarlaga seint í gærkvöldi til að stöðva verkfallið sem verið hefur meðal norskra olíustarfsmanna undanfarnar tvær vikur og koma í veg fyrir boðað verkbann olíuframleiðenda landsins sem átti að hefjast um miðnættið. Viðskipti erlent 10.7.2012 06:30
Norðmenn stöðva olíuframleiðslu í vikunni Olíu- og gasframleiðsla mun stöðvast í Noregi í vikunni. Ástæðan er sú að hart er deilt um eftirlaunamál og virðist lausn á deilunni ekki vera í sjónmáli. Viðskipti erlent 9.7.2012 11:25
Vextir á spænskum skuldabréfum aftur yfir 7% markið Vextir á spænskum ríkisskuldabréfum til 10 ára fóru aftur yfir 7% markið í morgun. Vextir á samsvarandi ítölskum bréfum hækkuðu einnig og standa í 6,1% þessa stundina. Viðskipti erlent 9.7.2012 10:01
Fleiri bankahneyksli vegna vaxtasvindls í farvatninu Fleiri bankar en Barclays munu liggja undir grun um vaxtasvindl. Í blaðinu The Guardian segir að hátt í 20 bankar blandist inn í rannsókn málsins sem unnin er af bæði breska og bandaríska fjármálaeftirlitinu. Viðskipti erlent 9.7.2012 09:01
Niðursveifla á mörkuðum Niðursveifla varð á mörkuðum í Asíu í nótt. Nikkei vísitalan í Tókýó lækkaði um 1,4% og Hang Seng vísitalan í Hong Kong lækkaði um 1,7%. Viðskipti erlent 9.7.2012 06:58
Roubini telur að Finnar yfirgefi evruna á undan Grikkjum Hagfræðingurinn Nouriel Roubini telur að Finnland muni yfirgefa evrusamstarfið á undan Grikklandi. Viðskipti erlent 9.7.2012 06:29
Apple endurbætir nýjasta iPad Talið er að tæknirisinn Apple undirbúi nú endurbætta útgáfu af þriðju kynslóð iPad spjaldtölvunnar sem nýlega kom á markað. Notendur hafa margir kvartað yfir því að tækið hitni afar mikið og nú leitast Apple við að lækka hitamyndunina. Viðskipti erlent 7.7.2012 22:00
Amazon þróar snjallsíma Talið er að vefverslunarrisinn Amazon sé nú að þróa sinn eigin snjallsíma. Fyrirtækið, sem lengst af seldi rafbækur, og það með góðum árangri, hefur á síðustu árum aukið umsvif sín verulega á raftækjamarkaðinum með vörum eins og Kindle lesbrettinu og Kindle Fire spjaldtölvunni. Viðskipti erlent 7.7.2012 10:48
Einkennilegasti dúett allra tíma? - Warren Buffett og Jon Bon Jovi Einkennilegasti dúett í tónlistar- og viðskiptasögunni hefur mögulega verið myndaður. Það gerðist á árlegri ráðstefnu Forbes tímaritsins þar sem kastljósinu er beint að líknarstarfsemi og mannúðarmálum. Þá tóku fjárfestirinn Warren Buffett, sem almennt er álitinn meðal virtustu fjárfesta heimsins, og rokksöngvarinn Jon Bon Jovi, sem mörgum finnst skemmtilegur tónlistarmaður, lagið á blaðamannafundi. Viðskipti erlent 7.7.2012 10:05
Umfang leikmannaviðskipta minna nú en í fyrra Knattspyrnufélög á heimsvísu hafa dregið mikið úr viðskiptum með leikmenn á undanförnum mánuðum miðað við árið á undan, að því er fram kemur í nýrri skýrslu frá Alþjóðaknattspyrnusambandinu FIFA. Tæplega 10 prósent færri leikmannasamningar vegna kaupa félaga á nýjum leikmönnum voru kláraðir á fyrstu sex mánuðum ársins miðað við í fyrr. Upphæðirnar sem um ræðir féllu hins vegar um ríflega þriðjun, eða 34 prósent. Heildarupphæðin að baki 4.973 leikmannasamninga nam um 571 milljón dala, eða sem nemur ríflega 70 milljörðum króna, að því er segir í umfjöllun breska ríkisútvarpsins BBC. Upplýsingarnar voru teknar saman í gegnum sérstakt kerfi á vegum FIFA, sem heldur utan um alla leikmannasamninga á heimsvísu, TMS (Transfer Matching System). Viðskipti erlent 6.7.2012 10:12
Harrods hótel í bígerð víða um heiminn Eigandi hinnar þekktu Harrods stórverslunnar í London hefur í hyggju að opna hótel víða um heiminn undir nafni Harrods. Viðskipti erlent 6.7.2012 09:22
Forseti Kýpur í pókerspili þar sem mikið er lagt undir Forseti Kýpur hefur att Evrópusambandinu og Rússlandi gengt hvort öðru í pókerspili þar sem mikið er lagt undir. Viðskipti erlent 6.7.2012 06:58
Ítalska stjórnin samþykkir mikinn niðurskurð Ítalska stjórnin samþykkti í nótt umfangsmikinn niðurskurð á ríkisútgjöldum. Alls verður skorið niður um 26 milljarða evra, eða um 4.100 milljarða króna á næstu þremur ár. Viðskipti erlent 6.7.2012 06:35
Engir innlánsvextir hjá Seðlabanka Evrópu Seðlabanki Evrópu hefur lækkað stýrivexti úr 1% í 0,75% og hafa stýrivextir aldrei verið lægri. Með þessu er brugðist við þeim mikla slaka sem er á evrusvæðinu. Innlánsvextir hjá seðlabankinn lækkaði líka innlánsvexti úr 0,25% í 0. Þessi stýrivaxtalækkun er í samræmi við aðrar breytingar sem aðrir bankar hafa gert. Viðskipti erlent 5.7.2012 13:35
Moody's segir horfurnar neikvæðar fyrir Barclays Lánshæfismatsfyrirtækið Moody's breytti horfum í mati sínu á stöðu Barclays bankans í neikvæðar vegna áhrifa vaxtasvindlsins bankans á starfsemi hans. Bankinn samþykkti að greiða 290 milljónir punda í sekt, jafnvirði um 57 milljarða króna, vegna lögbrota sem framin voru í október 2008 þegar starfsmenn Barclays fölsuðu vaxtaálag á skuldir bankans með markaðsmisnotkun. Viðskipti erlent 5.7.2012 11:20
Brent olían rýkur upp eftir verkbannsboðun í Noregi Tunnan af Brent olíunni hefur hækkað um tæp 2% í morgun og er komin í 101,5 dollara eftir að Landssamtök olíuframleiðenda (OLF) í Noregi boðuðu allsherjar verkbann á öllum olíuborpöllum landsins frá og með næsta mánudegi. Viðskipti erlent 5.7.2012 09:57
Kreppan lækkar fæðingartíðini í 25 af 30 Vesturlöndum Efnahagskreppan í heiminum hefur haft þau áhrif að fæðingartíðni hefur lækkað í 25 af 30 vestrænum löndum þar á meðal Íslandi. Viðskipti erlent 5.7.2012 07:19
Volkswagen kaupir Porsche að fullu Bílaframleiðandinn Volkswagen hefur ákveðið að kaupa rétt rúmlega 50% hlut í Porsche og eignast Porsche þar með að fullu. Árið 2009 keypti Volkswagen rúmlega 49% hlut í Porsche. Viðskipti erlent 5.7.2012 06:55