Viðskipti erlent
179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 334 ›
Facebook á NASDAQ - fyrstu viðskipti framar vonum Verð á hlutabréfum í samskiptamiðlinum Facebook hækkaði verulega eftir að fyrirtækið var formlega skráð á hlutbréfamarkað í dag. Viðskipti erlent 18.5.2012 16:00
Facebook skráð á markað Samskiptamiðillinn Facebook hefur nú formlega verið skráður á hlutabréfamarkað. Mark Zuckerberg, meðstofnandi og stjórnarformaður Facebook, opnaði NASDAQ markaðinn frá höfuðstöðvum síðunnar í Palo Alto í Kaliforníu klukkan 13:30 að íslenskum tíma. Viðskipti erlent 18.5.2012 14:18
Jamie Dimon kallaður fyrir þingnefnd Jamie Dimon, stjórnarformaður og forstjóri JP Morgan Chase, þarf að svara spurningum bandarískra þingamanna frammi fyrir þingnefnd vegna ótrúlegs taps bankans á viðskiptum með bandarísk fyrirtækjaskuldabréfe, í heild nam það ríflega tveimur milljörðum dala, jafnvirði yfir 250 milljarða króna. Greint er frá þessu á vef Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 18.5.2012 14:17
Í beinni frá Wall Street - Facebook tekið til viðskipta Viðskipti með hluti í samskiptamiðlinum Facebook á NASDAQ markaðinum í Bandaríkjunum hefjast klukkan 13:15 í dag. Viðskipti erlent 18.5.2012 12:30
Galaxy S III: 9 milljón eintök seld í forpöntunum Samsung Galaxy S III, nýjasti snjallsími Samsung, virðist ætla að slá öll met en um 9 milljón eintök af honum hafa selst í forpöntunum. Galaxy snjallsímarnir eru vinsælustu vörur Samsung en fyrirtækið er nú þegar stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar. Viðskipti erlent 18.5.2012 11:40
Facebook á markað - spenna á mörkuðum Mikill eftirvænting er meðal fjárfesta fyrir því þegar hlutir í Facebook verða teknir til viðskipta á skráðum markaði í Bandaríkjunum í dag. Á vef Wall Street Journal kemur fram að eftirvæntingin fyrir nýskráningu hafi ekki verið jafn mikil árum saman, en skráning Facebook er langsamlega stærsta skráning netfyrirtækisins í sögunni þegar horft til markaðsvirðis við skráningu. Félagið verður metið á um 104 milljarða dala, tæplega 13 þúsund milljarða, þegar það verður tekið til viðskipta, en það jafngildir um 38 dölum á hlut. Viðskipti erlent 18.5.2012 08:56
Moody's lækkar lánshæfi banka á Spáni Matsfyrirtækið Moody's lækkaði síðdegis í gær lánshæfiseinkunn sextán spænskra banka. Þetta er enn eitt áfallið sem dunið hefur á Spánverjum undanfarin misseri en efnahagskreppan í Evrópu hefur leikið þá sérstaklega grátt. Ákvörðun Moody's kemur í kjölfar þess að hlutabréfaverð í bankanum Bankia féll um fjórtán prósent á markaði í gær og hefur verðmæti bankans minnkað um helming á tæpum mánuði. Viðskipti erlent 18.5.2012 08:14
Facebook á markað á morgun Viðskipti með hlutabréf í Facebook munu hefjast á morgun. Sjaldan eða aldrei hefur verið beðið eftir nokkru hlutafjárútboði með eins mikilli eftirvæntingu. Búist er við því að eftirspurnin verði mikil og því mun verða seldur 25% stærri hlutur en áður hafði verið áformað að selja. Búist er við því að samkvæmt niðurstöðu útboðsins verði markaðsvirði fyrirtækisins 100 milljarðar dala, eða jafngildi 12600 milljarða íslenskra króna. Hins vegar hafa vaknað efasemdir um það hversu miklum hagnaði fyrirtækið getur skilað. Viðskipti erlent 17.5.2012 20:07
Titringur í Evrópu vegna efnahagsáfalls á Spáni Markaðir í Evrópu hafa allir verið á niðurleið í dag vegna frétta frá Spáni um að skuldabréfaútboð hafi mistekist hrapallega. Samkvæmt niðurstöðum útboðsins er lánsfjárkostnaður tvöfalt hærri en þegar ríkið gaf síðast út skuldabréf. Búist er við því að matsfyrirtækið Moodys muni lækka mat á 21 spænskum banka í kjölfar niðurstöðunnar. Staðan er svo viðkvæm að spænska ríkisstjórnin hefur þurft að gefa út yfirlýsingu um að bankakerfið hafi ekki orðið fyrir áhlaupi. Viðskipti erlent 17.5.2012 14:03
Frakkar munu ekki samþykkja áætlanir ESB að óbreyttu Nýr fjármálaráðherra Frakklands ítrekaði í sjónvarpsviðtali í gær að ný sósíalistastjórn Frakklands myndi ekki staðfesta fjárhagsáætlanir Evrópusambandsins óbreyttar. Ráðherrann, Pierre Moscovici, segir að áætlanirnar verði að miða að því að auka hagvöxt til að Frakkar geti staðfest hann. Fjárhagsáætlunin felur hins vegar aðallega í sér niðurskurð á fjárlögum aðildarríkja. Francois Hollande, nýkjörinn forseti Frakklands, lagði mikla áherslu á það í aðdraganda forsetakosninganna að niðurskurður myndi einn og sér ekki bæta efnahagsástandið á evrusvæðinu. Viðskipti erlent 17.5.2012 09:30
Diablo III loks lentur Tólf ára bið spilara lauk þegar dyr tölvuleikjaverslana víða um heim opnuðu í gærkvöld. Þúsundir spilara þustu þá inn og tryggðu sér eintak af einum eftirsóttasta tölvuleik allra tíma, Diablo III. Viðskipti erlent 15.5.2012 22:00
Áhlaup á gríska banka - 700 milljónir evra teknar út Almenningur í Grikklandi tók út 898 milljónir evra af reikningum grískra banka í gær samkvæmt upplýsingum sem forseti Grikklands, Karolos Papoulias, lét þingmenn hafa í dag og vitnað er til á vef Wall Street Journal í dag. Viðskipti erlent 15.5.2012 21:18
Amazon uppfærir Kindle vörulínuna Vefverslunin Amazon mun uppfæra spjaldtölvur sínar í sumar. Talið er að fyrirtækið muni kynna nýtt Kindle lesbretti sem og nýja og stærri Kindle Fire spjaldtölvu. Viðskipti erlent 15.5.2012 12:10
Facebook hækkar verð á hlutabréfum sínum Samskiptamiðillinn Facebook hefur hækkað áætlað verð á hlutabréfum sínum úr 28 til 35 dollurum í 34 til 38 dollara. Gangi hlutafjárútboðið að óskum mun virði fyrirtækisins fara yfir 100 milljarða dollara. Viðskipti erlent 15.5.2012 11:44
Moody's lækkar ítalska banka Matsfyrirtækið Moody's lækkaði í gærkvöldi lánshæfi 26 banka á Ítalíu á einu bretti. Þar á meðal eru stærstu bankar landsins, Unicredit og Intesa Sanpaolo. Samdráttur hefur verið á Ítalíu eins og víða annars staðar og ríkisstjórnin stendur í viðamiklum breytingum á opinbera geiranum. Bankarnir eru því sagðir mun viðkvæmari fyrir áföllum. Tíu af bönkunum 26 voru færðir í svokallaðan ruslflokk en stóru bankarnir tveir, fóru úr einkunninni A3 og niður í A2. Viðskipti erlent 15.5.2012 10:43
Krugman: Evruragnarrök hugsanlega framundan Paul Krugman, prófessor í hagfræði og Nóbelsverðlaunahafi árið 2008, spáir "evruragnarrökum“ á næstu mánuðum, ekki síst vegna óumflýjanlegs falls Grikklands með tilheyrandi hliðaráhrifum á nágrannaríkin Spán og Ítalíu. Hann spáir því að þetta gerist á næstu mánuðum, ekki árum. Viðskipti erlent 15.5.2012 08:59
Rauðar tölur lækkunar á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir í Bandaríkjunum opnuðu með rauðum tölum lækkunar í dag en áhyggjur fjárfesta vegna pólitískrar óvissu í Suður-Evrópu, þar helst Grikklandi, hafa farið vaxandi undanfarin misseri. Þannig lækkaði Nasdaq-vísitalan í Bandaríkjunum um 0,53 prósent strax við opnun, og var lækkunin öðru fremur rakin til svartsýni á stöðu mála á mörkuðum í Evrópu. Viðskipti erlent 14.5.2012 16:38
The Avengers rýfur milljarð dollara múrinn Ofurhetjumyndin The Avengers er nú fjórða vinsælasta kvikmynd allra tíma en hún hefur halað inn rúmlega milljarði dollara á heimsvísu. Viðskipti erlent 14.5.2012 14:40
Apple hefur selt 370 þúsund iphone á dag í hálft ár Hugbúnaðar-, tölvu- og fjarskiptarisinn Apple hefur átt ótrúlegri velgengni að fagna undanfarna tvo ársfjórðunga, samkvæmt opinberum rekstrarupplýsingum sem fyrirtækið hefur skilað til kauphallarinnar í New York. Mestu munar um sölutekjur af iphone-símunum og ipad-spjaldtölvunum. Í rekstrartölum fyrir síðasta ársfjórðung ársins 2011, sem tekur til fjórtán vikna rekstrartímabils sem lauk um síðustu áramót, seldust 37 milljónir iphone-síma en á fyrsta ársfjórðungi þessa árs seldust 35 milljónir iphone-síma. Salan jafngildir því að 370 þúsund iphone-símar hafi selst á hverjum degi á þessu ríflega hálfs árs rekstrartímabili (196 dagar) í sögu fyrirtækisins. Viðskipti erlent 14.5.2012 14:19
Meðstofnandi Facebook afsalar sér bandarískum ríkisborgararétti Eduardo Saverin, meðstofnandi Facebook, hefur afsalað sér bandarískum ríkisborgararétti. Þetta gerir hann aðeins nokkrum dögum áður en samskiptamiðillinn fer á hlutabréfamarkað. Viðskipti erlent 14.5.2012 14:15
Apple breytir auglýsingum sínum - iPad ekki 4G Héðan í frá verður nýjasta spjaldtölva Apple, iPad, ekki auglýst sem 4G jaðartæki. Fyrirtækið hefur verið harðlega gagnrýnt fyrir auglýsingar sína eftir að í ljós kom að eiginleikar fjórðu kynslóðar farsímanetkerfa eru mismunandi milli landa — þannig er óvíst hvort að iPad geti í raun notast við 4G netkerfi mismunandi landa. Viðskipti erlent 14.5.2012 13:54
Uppsagnir hjá JP Morgan í dag Búist er við því að tilkynnt verði um afsagnir háttsettra stjóra hjá stórbankanum JP Morgan síðar í dag. Viðskipti erlent 14.5.2012 12:22
Hlutabréf falla skarplega í Evrópu Hlutabréf í Evrópu hafa fallið skarplega í verði í morgun, en ástæðan er vaxandi hræðsla á mörkuðum við það að Grikkir hverfi úr evrusamstarfinu og taki upp drökmuna á nýjan leik. Samræmd hlutabréfavísitala fyrir Evrópu, DAX, hefur lækkað um 2,3 prósent það sem af er degi, en mesta lækkunin er á mörkuðum í Suður-Evrópu. Viðskipti erlent 14.5.2012 09:21
Rætt um það í fullri alvöru að Grikkland yfirgefi evruna Starfsmenn Seðlabanka Evrópu ræða nú um það í fullri alvöru, að Grikkland yfirgefi evrusvæðið, að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC, og taki upp drökmuna á nýjan leik. Viðskipti erlent 13.5.2012 22:27
Jamie Dimon: Svona á ekki að stunda viðskipti "Svona á ekki að stunda viðskipti," sagði Jamie Dimon, forstjóri bandaríska bankans JP Morgan Chase, í viðtali við New York Times í dag, og vitnaði til viðskipta bankans með fyrirtækjaskuldabréf sem bankinn tapaði tveimur milljörðum dala á. Viðskipti erlent 12.5.2012 11:34
iTV er raunverulegt - Foxconn undirbýr verksmiðjur sínar Stjórnarformaður Foxconn, Terry Gou, hefur staðfest að fyrirtækið sé nú að undirbúa framleiðslulínur sína fyrir fjöldaframleiðslu á iTV sjónvarpstækinu sem Apple hefur þróað síðustu ár. Viðskipti erlent 11.5.2012 22:00
Levin: Sýnir að það verður að herða regluverkið Þetta sýnir hversu nauðsynlegt það er, að herða reglurverkið þegar kemur að viðskiptum bankanna sem eru of stórir til að falla," segir öldungadeildarþingmaðurinn Carl Levin, í viðtali við New York Times, vegna taps risabankans JP Morgan upp á tvo milljarða dala sem tilkynnt var um eftir lokun markaða í gær. Það er tilkomið vegna viðskipta með bandarísk fyrirtækjaskuldabréf, en bankinn veðjaði á að bandarískur efnahagur myndi rétta meira úr kútnum en raunin varð. Viðskipti erlent 11.5.2012 09:49
JP Morgan tapar ótrúlegum upphæðum Stærsti banki Bandaríkjanna, JP Morgan Chase hefur greint frá tapi upp á heila tvo milljarða dollara eða 250 milljarða króna vegna flókinna hlutabréfaviðskipta sem ekki gengu upp. Fregnirnar koma flestum á óvart en búist er við að heildartap bankans á öðrum ársfjórðungi muni nema 800 milljónum dollara eða um 100 milljörðum króna. Viðskipti erlent 11.5.2012 06:33
Facebook mun opna vefverslun Samskiptavefurinn Facebook mun opinbera vefverslun sína á næstu vikum. Áhersla verður lögð á smáforrit fyrir snjallsíma en fyrirtækið hefur hingað til átt í erfiðleikum með að afla tekna í gegnum snjallsímanotkun notenda sinna. Viðskipti erlent 10.5.2012 12:49
Heilaskurðaðgerð á Twitter Læknar við Memorial Hermann-sjúkrahúsið í Houston framkvæmdu heilaskurðaðgerð í beinni útsendingu á Twitter-síðunni í gær. Viðskipti erlent 10.5.2012 10:15