Viðskipti erlent
192 193 194 195 196 197 198 199 200 … 334 ›
Rauður dagur á mörkuðum Það var rauður dagur beggja megin Atlantsála í dag. Vestanhafs lækkaði Nasdaq vísitalan um 0,16%, S&P 500 lækkaði um 0,25% og Dow Jones lækkaði um 0,86%. FTSE vísitalan lækkaði um 1,09%, þýska Dax vísitalan lækkaði um 1,04% og franska Cac 40 lækkaði um 1,60%. Viðskipti erlent 30.1.2012 22:23
Osborne fagnar því að bankamaður þiggi ekki bónusinn George Osborne, fjármálaráðherra Bretlands, segir þá ákvörðun Stephen Hester, forstjóra Royal Bank of Scotland, að þiggja ekki bónusgreiðslu upp á eina milljóna punda, jafnvirði ríflega 190 milljóna króna, vera skynsamlega og rökrétta. "Skattgreiðendur settu milljarða punda inn í rekstur bankans þegar hann var að falla, og það er eðlilegt að þeir njóti forgangs þegar vel gengur," sagði Osborne í viðtali við breska blaðið The Guardian í morgun. Viðskipti erlent 30.1.2012 11:18
Forstjóri RBS neitaði að taka við bónusinum Forstjóri breska bankans Royal Bank of Scotland (RBS), Stephen Hester, hefur ákveðið að þiggja ekki bónusgreiðslur upp eina milljón punda, eða sem jafngildir ríflega 190 milljónum króna, vegna rekstrarársins í fyrra. Breska ríkisútvarpið BBC greindi frá þessu í morgun. Viðskipti erlent 30.1.2012 09:40
Ekkert varð af olíusölubanni Íran gegn ESB Ekkert varð af boðuðu olíusölubanni Íraks til Evrópusambandsins (ESB) um helgina. Viðskipti erlent 30.1.2012 07:28
Reiknað með tveimur tilboðum í Iceland á morgun Tilboð í verslunarkeðjuna Iceland Foods verða opnuð á morgun en skilanefndir Landsbankans og Glitnis vilja fá 1,5 milljarða punda fyrir hana. Viðskipti erlent 30.1.2012 06:59
Fjöldi ólöglegra fyrirtækja í Danmörku tvöfaldast Vinnueftirlit Danmekur lokaði tvöfalt fleiri ólöglegum fyrirtækjum á seinni hluta ársins í fyrra en árið áður. Viðskipti erlent 30.1.2012 06:51
LVMH vill kaupa Aurum af skilanefnd Landsbankans Fjárfestingafélag lúxusvörurisans LVMH hefur áhuga á því að gera tilboð í skartgripa- og úraverslanirnar Goldsmiths, Mappin & Webb og Watches of Switzerland. Viðskipti erlent 30.1.2012 06:49
Facebook er að breyta heiminum hratt Facebook er í ótrúlegri stöðu til þess að kortleggja hegðun mörg hundruð milljóna manna um heim allan og nýta sér upplýsingarnar til fjárhagslegs ávinnings. Hópur Facebook notenda fer hratt stækkandi. Fyrirtækið er sífellt að þróa nýja möguleika til þess að nýta sér gríðarlegt magn upplýsinga um þá sem skráðir eru á vefinn. Viðskipti erlent 30.1.2012 00:19
Grikkir ósáttir við Þjóðverja Grískir embættismenn hafa brugðist ókvæða við áformum þýskra stjórnvalda, sem láku í fjölmiðla fyrir helgi, um að leggja til að Evrópusambandið fái synjunarvald yfir skattastefnu og útgjöldum gríska ríkisins. Viðskipti erlent 29.1.2012 14:00
Walker tryggir sér milljarð punda til að kaupa Iceland Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods verslunarkeðjunnar hefur tryggt sér einn milljarð punda, eða rúmlega 193 milljarða kr. í lánsfé til kaupanna á keðjunni. Viðskipti erlent 29.1.2012 09:06
Niðurskurður ríkisfjármála getur kæft vaxtamöguleika hagkerfa Framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins varar við að óviðeigandi niðurskurður ríkisfjármála geti kæft vaxtamöguleika hagkerfa. Aðlaga þurfi niðurskurðaráætlanir við hvert hagkerfi fyrir sig. Viðskipti erlent 28.1.2012 12:49
Eitt af stærstu flugfélögum Spánar rambar á barmi gjaldþrots Spanair, eitt af stærstu flugfélögum Spánar, hefur aflýst öllum flugferðum vegna mikillar óvissu um fjárhagslega framtíð fyrirtækisins. Spanair hefur átt við mikla rekstrarerfiðleika að glíma frá því að vél þess fórst í flugslysi fyrir fjórum árum. Viðskipti erlent 28.1.2012 12:12
Millibankamarkaðir enn frostnir Mario Draghi, bankastjóri evrópska seðlabankans, segir að enn sé langt þangað til fjármagnsmarkaðir komist í það sem talist geti eðlilegt ástand. Þetta kom fram í erindi sem Draghi hélt á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) í Davos í Sviss. Viðskipti erlent 28.1.2012 01:06
Nethagkerfið mun tvöfaldast á fjórum árum Vefhagkerfi heimsins mun tvöfaldast að stærð á næstu fjórum árum samkvæmt skýrslu sem Boston Consulting Group vann fyrir hugbúnaðarrisann Google. Velta þeirrar þjónustu sem boðið er upp á vefnum nemur 2.300 milljörðum dollara á ári eða sem nemum 285 þúsund milljörðum króna. Talið er að veltan muni fara í 4.200 milljarða dollara, yfir 5.000 milljarða króna, á árinu 2016 að því er fram kemur í skýrslunni. Viðskipti erlent 27.1.2012 13:35
Rússar neyðast til að lækka skatta á olíu- og gasvinnslu Það eru ekki aðeins íslensk stjórnvöld sem neyðast til að breyta skattareglum vegna olíu- og gasvinnslu. Nú hafa rússnesk stjórnvöld tilkynnt að endurskoða þurfi rússnesku skattalöggjöfina vegna olíu- og gasvinnslu á hafsbotni. Með því vonast þau til að uppbygging hefjist á rússneska Shtokman-svæðinu í Barentshafi, djúpt norðaustur af Múrmansk. Viðskipti erlent 27.1.2012 12:43
Helmingur Spánverja á aldrinum 16 til 24 ára án vinnu Atvinnuleysi á Spáni mælist nú með allra mesta móti. Samkvæmt mælingum sem kynntar voru í morgun er atvinnuleysi á Spáni nú 22,85 prósent, sem jafngildir því að 5,3 milljónir manna séu án vinnu. Viðskipti erlent 27.1.2012 10:25
Hagnaður H&M 123 milljarðar á síðasta ársfjórðungi Hagnaður sænsku verslunarkeðjunnar Hennes & Mauritz á fjórða ársfjórðungi í fyrra nam 6,8 milljörðum sænskra króna eða sem svarar til 123 milljarða króna. Viðskipti erlent 27.1.2012 09:36
Smjörkreppa Norðmanna breytist í nautakjötskreppu Smjörkeppan sem skall á Norðmönnum fyrir síðustu jól er nú að breytast í nautakjötskreppu þar í landi. Viðskipti erlent 27.1.2012 07:14
Íranir ætla að stöðva strax alla olíusölu til Evrópu Stjórnvöld í Íran ætla sér að stöðva strax allan útflutning sinn á olíu til Evrópu. Búist er við að frumvarp þess efnis verði samþykkt á íranska þinginu um helgina. Viðskipti erlent 27.1.2012 06:47
Gates gefur 92 milljarða til baráttu gegn sjúkdómum Milljarðamæringurinn Bill Gates er með gjafmildari mönnum heimsins. Nú hefur hann og eiginkona hans Melinda tilkynnt að þau muni gefa 750 milljónir dollara eða sem svarar til 92 milljarða króna í þágu baráttunnar gegn eyðni, berklum og malaríu. Viðskipti erlent 27.1.2012 06:41
Angela Merkel: Þörf á alveg nýrri nálgun Angela Merkel, kanslari Þýskalands, sagði á ráðstefnu Alþjóðaefnahagsráðsins (World Economic Forum) í Davos í Sviss, að þörf væri á alveg nýrri nálgun á stjórnun ríkisfjármála og efnahagsmála. "Kerfislægar breytingar sem leiða til þess að fleiri störf skapist er það sem þarf að gera núna,“ sagði Merkel á blaðamannafundi, eftir fundahöld leiðtoga víða að. Viðskipti erlent 26.1.2012 16:58
iPhone 5 í júní? Það eru margir sem bíða spenntir eftir nýjustu útgáfunni af iPhone-símanum sem er gríðarlega vinsæll á meðal Íslendinga. Í haust kom út iPhone 4S en margir aðdáendur símans urðu fyrir miklum vonbrigðum enda voru margir búnir að spá fyrir að iPhone 5 kæmi út í haust. Viðskipti erlent 26.1.2012 14:04
Kröfuhafar vilja raunhæfa áætlun Grikkja Stjórnvöld í Grikklandi freista þess enn að ná samkomulagi við kröfuhafa sína, en skuldir ríkisins eru almennt álitnar það íþyngjandi fyrir rekstur ríksins, að óhjákvæmilegt sé að afskrifa stóran hluta skuldanna. Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 26.1.2012 12:14
Lögreglan í Frakkland handtekur forstjóra PIP Lögreglan í Frakklandi hefur handtekið Jean-Claude Mas forstjóra PIP fyrirtækisins, sem framleiðir samnefndar sílikonfyllingar í konubrjóst. Viðskipti erlent 26.1.2012 09:31
Airbus viðurkennir galla í vængjum A380 Flugvélaframleiðandinn Airbus hefur viðurkennt að gallar séu til staðar í vængjum júmbóþotu sinnar A380. Hinsvegar sé öruggt að fljúga með þessum þotum. Viðskipti erlent 26.1.2012 06:55
Fyrirsæta orðin milljarðamæringur í dollurum Brasilíska ofurfyrirsætan Gisele Bundchen er fyrsta fyrirsætan í heiminum sem nær þeim árangri að verða milljarðamæringur í dollurum talið. Viðskipti erlent 26.1.2012 06:50
Hagfræðiprófessor segir leiknum lokið fyrir Grikkland Steve Hanke hagfræðiprófessor við John Hopkins háskólann segir að leiknum sé lokið fyrir Grikkland. Engu máli skiptir þótt Grikkir fái þá aðstoð sem er í boði. Viðskipti erlent 26.1.2012 06:46
Hlutabréf hækkuðu og lækkuðu Yfirlýsing Seðlabanka Bandaríkjanna frá því í gær, þess efnis að bankinn ætlaði að halda vöxtum niðri fram til ársins 2014, hafði þau áhrif á mörkuðum í Evrópu í dag að þeir sýndu grænar hækkunartölur víðast hvar, að því er fram kemur á vefsíðu The New York Times. Viðskipti erlent 26.1.2012 00:01
Vöxtum haldið niðri til árið 2014 Seðlabanki Bandaríkjanna tilkynnti um það í dag að líklegt væri að stýrivöxtum yrði haldið niðri til árið 2014. Vextir verða ekki lægri en nú, en þeir eru 0 til 0,25 prósent. Viðskipti erlent 25.1.2012 22:21
Eiríkur rauði verður tekjuhæsti borpallur heims Breska olíufyrirtækið Ophir, sem sérhæfir sig í olíuleit undan ströndum Afríku, hefur samið við borfyrirtækið Ocean Rig um leigu á borpallinum Eirik Raude, eða Eiríki rauða, í 60 daga borverkefni í landgrunni Miðbaugs-Gíneu fyrir 52 milljónir dollara. Viðskipti erlent 25.1.2012 13:28