Viðskipti erlent
204 205 206 207 208 209 210 211 212 … 334 ›
Rauðar og grænar tölur á mörkuðum Hlutabréfamarkaðir hafa ýmist hækkað lítillega eða lækkað í Evrópu og Bandaríkjunum í dag. Helstu vísitölur í Evrópu hafa lækkað um 0 til 1% í dag en í Bandaríkjunum eru grænar tölur, hækkanir upp á 0,6% sé mið tekið af vísitölu Nasdaq. Viðskipti erlent 16.11.2011 14:35
Evrusvæðið glímir við "kerfisvanda" Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar ESB, segir að evrusvæðið glími við "kerfisvanda“ og þurfi að taka á málunum út frá því. Þetta kemur fram á vef breska ríkisútvarpsins BBC. Barroso lét ummælin falla þegar hann var að ræða vandann á evrusvæðinu og þá ekki síst verðbólguhorfur. Verðbólga mælist nú þrjú prósent á ársgrundvelli. Verðbólgumarkmið Seðlabanka Evrópu er tvö prósent. Viðskipti erlent 16.11.2011 14:09
Facebook nær að stöðva klámbylgjuna Forsvarsmenn Facebook samskiptasíðunnar segja að þeim hafi tekist að stöðva flóð klámmynda sem pirrað hefur notendur samskiptamiðilsins síðustu daga. Þúsundir Facebook síða urðu fyrir árásum tölvuþrjóta og birtust svæsnar klámmyndir á síðum fólks fyrirvaralaust. Viðskipti erlent 16.11.2011 13:29
Forstjóraskipti hjá móðurfélagi Norðuráls Forstjóraskipti hafa orðið hjá Century Aluminium móðurfélagi Norðuráls. Stjórn félagsins rak Logan Kruger og réð í hans stað Michael Bless. Viðskipti erlent 16.11.2011 09:01
Steve Jobs: Hætti og fór að læra skrautskrift Steve Jobs heitinn, fyrrverandi framkvæmdastjóri og aðaleigandi Apple, hélt ræðu fyrir útskriftarnema við Stanford háskóla árið 2005. Jobs greindi þar frá skólagöngu sinni, sem var um margt einkennileg, og persónulegum ákvörðunum sem skipt hafa hann miklu máli í gegnum tíðina. Viðskipti erlent 16.11.2011 08:57
Danska ríkið tapaði 1.500 milljörðum á olíusamningum Danska ríkið hefur tapað gífurlegum upphæðum á mistökum sem gerð voru þegar samið var um skatta þeirra olíufélaga sem vinna olíu á hinu danska umráðsvæði í Norðursjó. Viðskipti erlent 16.11.2011 07:16
Fréttaskýring: AGS segir Kínverja standa frammi fyrir ógn Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) sendi í morgun frá sér bréf, sem birt er á vef sjóðsins, þar sem áhyggjum er lýst yfir því að bankar í Kína standi frammi fyrir ógnum vegna merkja um að ótrúlegur uppgangstími landsins, sem staðið hefur látlaust í meira en áratug, sé hugsanlega að líða undir lok. Viðskipti erlent 16.11.2011 00:27
Hækkanir í Bandaríkjunum en lækkanir í Evrópu Allar helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum hækkuðu í dag. Dow Jones vísitalan hækkaði um 0,54%, Nasdaq um 1,29%, og S&P um 0,79%. Í Evrópu lækkaði hins vegar FTSE 100 vísitalan um 0,03%, DAX vísitalan lækkaði um 0,87% og CAC 40 vístalan lækkaði um 1,92%. Viðskipti erlent 15.11.2011 20:41
Þróun iPhone 5 var komin langt á leið - Jobs sagði nei takk Nokkrum vikum áður en Apple kynnti iPhone 4S voru verkfræðingar tölvurisans að vinna að algjörlega nýrri týpu snjallsímans. Heimildarmaður vefsíðunnar Businessinsider.com segir að starfsmenn Apple hafi verið undir þeirri trú að iPhone 5 yrði næsta skref í þróun snjallsímans. Viðskipti erlent 15.11.2011 20:07
Klám flæðir yfir Facebook Ný veira herjar nú á Facebook notendur um allan heim sem lýsir sér þannig að á Facebook síðum fólks birtast klámmyndir af svæsnustu sort. Vandamálið hefur verið að gera vart við sig í meira mæli undanfarna daga og nú er svo komið að notendur eru orðnir vægast sagt pirraðir. Það sem verra er, þá virkar vírusinn á þann hátt að svo virðist sem vinur þinn eða vinkona á Facebook sé að „pósta“ myndunum þrátt fyrir að vera alsaklaus af slíkri hegðun. Viðskipti erlent 15.11.2011 13:15
Ermotti tekur við stjórnartaumum UBS Sergio Ermotti verður nýr forstjóri svissneska risabankans UBS. Þetta var tilkynnt í dag. Hann mun stýra umbreytingu fjárfestingarbankastarfsemi UBS, að því er fram kemur í frétt Wall Street Journal. Viðskipti erlent 15.11.2011 12:49
Hlutabréfamarkaðir lækka í Evrópu Hlutabréfamarkaðir í Evrópu hafa flestir sýnt lækkun á hlutabréfavístölum sínum í morgun. Þannig hefur Stoxx 600 vísitalan, samræmd vísitala hlutabréfamarkaða í Evrópu, lækkað um 1,7% það sem af er degi. Viðskipti erlent 15.11.2011 12:05
AGS hefur áhyggjur af bönkum í Kína Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn (AGS) hefur áhyggjur af því að áhætta í rekstri kínveskra banka sé að aukast. Þetta kemur fram í áliti sjóðsins sem gert var opinbert í morgun og breska ríkisútvarpið BBC segir frá á vefsíðu sinni. Viðskipti erlent 15.11.2011 10:56
Walker búinn að útvega 55 milljarða upp í kaupin á Iceland Talið er að Malcolm Walker forstjóri Iceland Foods verslunarkeðjunnar hafi þegar útvegað sér 300 milljónir punda, eða rúmlega 55 milljarða króna upp í kaupin á keðjunni. Viðskipti erlent 15.11.2011 09:29
Soros spáir allsherjarhruni Bréf frá George Soros, fjárfestinum þekkta, olli nokkrum titringi í síðasta mánuði en í því kom fram að henni teldi heiminn á barmi allsherjarhruns. Skuldavandi Evrópu og Bandaríkjanna var til umræðu í sjónvarpsþætti þar sem bréf Soros var rætt. Viðskipti erlent 15.11.2011 09:05
ESB löndum bannað að kaupa olíu frá Sýrlendingum Frá og með deginum í dag er þjóðum innan Evrópusambandsins bannað að kaupa olíu af Sýrlendingum. Viðskipti erlent 15.11.2011 07:21
Fréttaskýring: Nútíma þrælahald er risaiðnaður Mansal fer vaxandi og veltir í það minnsta 100 milljörðum dollara árlega á heimsvísu, eða sem nemur ríflega 11 þúsund milljörðum króna. Höfuðvígin eru Afríka, Asía og Austur-Evrópa. Viðskipti erlent 15.11.2011 00:06
Google finnur undarleg mannvirki í Góbí eyðimörkinni Tölvufyrirtækið Google hefur birt myndir sem gervitungl þess tók yfir Gobi eyðimörkinni í Kína. Myndirnar voru teknar þegar gervitunglið vann að uppfærslu á Google Maps forritinu. Viðskipti erlent 14.11.2011 22:02
Hlutabréf féllu í dag Hlutabréfavísitölur féllu í dag og er ástæðan fyrst og fremst rakin til þess að fjárfestar hafa áhyggjur af því að landið geti ýtt úr vör niðurskurðaraðgerðum sem fyrirhugaðar eru. Dow Jones vísitalan lækkaði um 0,8%, S&P 500 lækkaði um 1,1% og Nasdaq lækkaði um 0,9%. Viðskipti erlent 14.11.2011 20:40
Vöxtur í Japan á nýjan leik Hagvöxtur mælist nú í Japan að nýju eftir að jarðskjálftana í maí á þessu ári. Hagvöxturinn mældist 1,5% samkvæmt fréttum breska ríkisútvarpsins BBC. Óttast er að þetta verði skammgóður vermir þar sem töluverð áföll hafa riðið yfir efnahagslífið í Asíu undanfarin misseri, sem hafa áhrif á Japan. Viðskipti erlent 14.11.2011 15:33
Verðbólgan enn til vandræða á Indlandi Verðbólga á Indlandi mælist nú 9,73% en aðgerðir sem gripið hefur verið til þess að stemma stigu við þenslu í landinu hafa ekki gengið nægilega vel. Seðlabanki Indlands hækkaði vexti til þess að reyna að slá á verðbólguna og standa stýrivextir nú í 8,5%, að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 14.11.2011 10:12
Markaðir á jákvæðu nótunum í Evrópu Markaðir í Evrópu eru flestir í grænum tölum eftir að þeir opnuðu í morgun. Hækkanir á vísitölum eru þó undir einu prósenti fyrir utan kauphöllina í Mílanó þar sem vísitalan hefur hækkað um rúmt 1,5%. Viðskipti erlent 14.11.2011 09:29
Gates: "Loksins fékk ég gráðuna mína" Bill Gates, stjórnarformaður og stofnandi Microsoft, flutti ræðu fyrir útskriftarnema við Harvard háskóla sumarið 2007 sem þykir með hans bestu ræðum á opinberum vettvangi. Viðskipti erlent 14.11.2011 08:52
Há peningaverðlaun fyrir þann sem finnur lausn á evruvandanum Yfir 600 hagfræðingar hafa lýst áhuga sínum á að leysa vandamálið hvernig hægt sé að slíta evrusamstarfinu. Há peningaverðlaun eru í boði. Viðskipti erlent 14.11.2011 07:04
Emirates leggur inn nýja pöntun hjá Boeing Bandaríski flugvélaframleiðandinn Boeing hefur gengið frá samningi við stærsta flugfélag Mið-Austurlanda, Emirates. Boeing mun afhenda flugfélaginu fimmtíu 777 breiðþotur að því er greint er frá á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Samningur vegna þessara kaupa er upp á 18 milljarða dollara eða sem nemur um 207 milljörðum króna. Viðskipti erlent 13.11.2011 23:00
Blair varar við "katastroffu" Tony Blair, fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands og formaður Verkamannaflokksins, varar við því að evrusvæðið geti liðast í sundur með afleiðingum sem best sé lýs sem "katastroffu". Þetta kemur fram á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 13.11.2011 20:56
Berlusconi sagði af sér Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, sagði af sér embætti nú í kvöld. Hann hafði verið forsætisráðherra í 17 ár. Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, veitti honum lausn úr embætti en líklegt þykir að Napolitano muni skipa Mario Monti sem arftaka hans, eftir því sem fram kemur á fréttavef BBC. Viðskipti erlent 12.11.2011 21:38
Krónan varð til þess að íslensk heimili fóru verr út úr kreppunni Krónan varð þess valdandi að íslensk heimili fór mun verr út úr kreppunni en írsk heimili. Þetta segir írskur prófessor í alþjóðastjórnmálum sem telur að evran hafi komið í veg fyrir að írska kreppan hafi orðið jafn djúp og sú íslenska. Viðskipti erlent 12.11.2011 20:05
Warren Buffett ríkasti eldri borgari í heimi Fjárfestirinn Warren Buffett er ríkasti eldri borgari í heimi. Hans helsta eign er hlutur í fjárfestingarfélaginu Bershire Hathaway en heildareignir eru metnar á 39 milljarða dollara, eða sem nemur um tæplega 4.500 milljörðum króna. Það jafngildir þremur íslenskum landsframleiðslum. Viðskipti erlent 12.11.2011 17:11
Ítalir undir miklum þrýstingi frá ESB Búist er við því að neðri deild ítalska þingsins afgreiði í dag frumvarp ríkisstjórnarinnar um tæplega sextíu milljarða evra niðurskurð í opinberum útgjöldum, eða sem um níu þúsund og fimm hundruð milljörðum króna. Ítalir eru undir miklum þrýstingi frá Evrópusambandinu til að klára málið en efri deild þingsins samþykkti frumvarpið í gær. Viðskipti erlent 12.11.2011 12:30