Viðskipti erlent
207 208 209 210 211 212 213 214 215 … 334 ›
Google kynnir Gmail smáforrit fyrir iPad Google kynnti í dag sérstaka iPad útgáfu af Gmail tölvupóstþjónustu sinni. Smáforritið er nú þegar komið í verslun iTunes. Viðskipti erlent 2.11.2011 20:00
Vilja koma böndum á fjármálastarfsemi Leiðtogar helstu efnahagsvelda heims hittast í Cannes í Frakklandi á morgun og föstudag. Til stendur að samþykkja aðgerðir, sem eiga að halda aftur af bönkum og fjármálafyrirtækjum og draga verulega úr hættunni á að önnur eins kreppa endurtaki sig og sú sem hófst fyrir þremur árum og enn sér ekki fyrir endann á. Viðskipti erlent 2.11.2011 11:00
Óróleiki á mörkuðum heimsins Ákvörðun Georgs Papandreús, forsætisráðherra Grikklands, um að vísa björgunarpakka evrusvæðisins til þjóðaratkvæðagreiðslu olli mikilli ókyrrð á mörkuðum heimsins í gær. Viðskipti erlent 2.11.2011 11:00
Dýrasti iPad veraldar Gullsmiðurinn Stuart Hughes hefur að öllum líkindum framleitt dýrasta iPad í heimi. Spjaldtölva Hughes er þakin 12.5 karata demöntum og Apple merki tölvunnar er samansett úr 53 gimsteinum. Öll bakhlið tölvunnar er mynduð úr 24 karata gulli og er tvö kíló að þyngd. Viðskipti erlent 2.11.2011 10:59
Rússar og Kínverjar líklegastir til að bjóða mútugreiðslur Ný rannsókn á vegum Transparency Internaional, samtaka sem berjast gegn spillingu, sýnir að fyrirtæki í Rússlandi og Kína eru líklegust til að bjóða mútugreiðslur í viðskiptum sínum utan heimalandsins. Viðskipti erlent 2.11.2011 07:47
Segja Papandreú varpa frá sér ábyrgðinni Grikkir virðast margir líta svo á að Georg Papandreú forsætisráðherra ætli sér að kúga þjóðina til hlýðni með því að bera samkomulag stjórnarinnar við Evrópusambandið undir þjóðaratkvæðagreiðslu. Viðskipti erlent 2.11.2011 07:15
Neyðarfundur hjá ríkisstjórn Grikklands Ríkisstjórn George Papandreou forsætisráðherra Grikklands er nú á neyðarfundi vegna vaxandi pólitískrar óvissu í landinu í kjölfar tilkynningar um niðurskurðaráform stjórnvalda muni fara í þjóðaratkvæðagreiðslu. Frá þessu er greint á vefsíðu breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 1.11.2011 22:59
Grikkland á leið út úr evrusamstarfinu? Það er mat sérfræðinga á fjármálamarkaði að raunverulega hætta sé á því að Grikkir yfirgefi Evrópska myntbandalagið og þar með evrusamstarfið fari svo að björgunarpakki til handa Grikkjum verði felldur í þjóðaratkvæðagreiðslu. Viðskipti erlent 1.11.2011 18:45
Hrun á hlutabréfamörkuðum Mikil lækkun hefur einkennt alla hlutabréfamarkaði í Evrópu það sem af er degi. Samkvæmt markaðsvakt Wall Street Journal hefur DAX vísitalan lækkað umk 5,6% og Stoxx 600 Europe, samræmdri vísitölu hlutabréfamarkaða í Evrópu, lækkað um 4,6%. Viðskipti erlent 1.11.2011 13:15
Gefur lítið fyrir gagnrýni Steve Jobs Bill Gates, einn af stofnendum Microsoft, gefur lítið fyrir gagnrýni Steve Jobs í nýlegri ævisögu sem varpar ljósi á samstarf og samkeppni Gates og Jobs. Ævisagan var gefin út stuttu eftir að Jobs lést. Viðskipti erlent 1.11.2011 10:53
Pete Townshend ekki sáttur með iTunes Pete Townshend, gítarleikari The Who, biðlaði til Apple um að nota úrræði sín og fjármuni til að hjálpa nýjum hljómsveitum að komast á framfæri. Hann sagði að margmiðlunarforritið iTunes væri einungis til þess gert að blóðga listamenn eins og stafræn vampíra. Viðskipti erlent 1.11.2011 09:24
Danske Bank ætlar að segja upp 2.000 starfsmönnum Danske Bank, stærsti banki Danmerkur ætlar að segja upp um 2.000 starfsmönnum á tímabilinu 2012 til 2014. Með þessu er ætlunin að spara um 2 milljarða danskra króna eða rúm 42 milljarða króna í rekstrarkostnaði. Viðskipti erlent 1.11.2011 08:14
Grikkir borguðu látnu fólki 1.300 milljarða í lífeyri Stærsti lífeyrissjóður Grikklands hefur viðurkennt að hafa á síðustu 10 árum greitt tugþúsundum af látnu fólki lífeyrir sem nemur allt að 8 milljörðum evra eða nær 1.300 milljörðum króna. Viðskipti erlent 1.11.2011 07:25
Þjóðaratkvæði um skuldamál Nýgert samkomulag um skuldavanda Grikklands verður sett í þjóðaratkvæðagreiðslu. Samkomulagið felur í sér skuldaafskrift og nýtt lán, en niðurskurðaraðgerðirnar sem því fylgja eru illa séðar meðal almennings. Papandreú forsætisráðherra segist fullviss um að þjóðin muni taka rétta ákvörðun um framtíð landsins. Ekki er vitað hvenær kosið verður en líklegt er talið að það verði í næstu viku. - þj Viðskipti erlent 1.11.2011 07:00
Samsung er stærsti snjallsímaframleiðandi í heimi Samkvæmt ársfjórðungstölum Samsung jukust vörusendingar um 44% og talið er að sala á fjórða ársfjórðungi verði mikil. Þetta þýðir að Samsung er nú stærsti snjallsímaframleiðandi veraldar og skákar jafnvel tölvurisanum Apple. Viðskipti erlent 31.10.2011 13:55
Vandamál með rafhlöðu iPhone 4S Þrátt fyrir að nýjasti snjallsími Apple sé afar vinsæll, bæði hjá gagnrýnendum og kaupendum, þá hafa margir lýst yfir vonbrigðum sínum með rafhlöðu símans. Viðskipti erlent 31.10.2011 11:45
Rússar vilja lána evruríkjum 10 milljarða dollara Rússnesk stjórnvöld eru reiðubúinn til að lána evruríkjunum allt að 10 milljarða dollara eða um 1.140 milljarða króna til að berjast gegn skuldakreppunni. Lánið myndi fara í gegnum Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. Viðskipti erlent 31.10.2011 09:36
Ekkert að því að leita til Kínverja Fráfarandi bankastjóri Seðlabanka Evrópu, Jean-Claude Trichet, segir það vera eðlilegt að leita til Kínverja um hjálp þegar kemur að fjármögnun björgunarsjóðs Evrópusambandsins. Viðskipti erlent 31.10.2011 09:04
Skipað að hefja flugferðir á ný Óháður dómstóll í Ástralíu kvað í gær upp þann úrskurð að ástralska flugfélagið Qantas verði að hefja flug að nýju. Stjórn flugfélagsins ákvað á laugardag að hætta öllu flugi vegna deilna við verkalýðsfélög, sem höfðu ekki viljað semja við félagið eftir að starfsemin var skorin niður í sparnaðarskyni. Úrskurðurinn felur í sér að deiluaðilum er skipað að hefja viðræður, sem í sjálfu sér er sigur fyrir flugfélagið.Alls urðu 70 þúsund manns í 22 löndum fyrir óþægindum vegna flugstöðvunarinnar. Viðskipti erlent 31.10.2011 06:00
Flóðin hafa veruleg áhrif á efnahag Tælands Flóðin í Tælandi, sem hafa nú þegar lagt þriðjung landsins undir vatn, eru farin að hafa veruleg áhrif á efnahag landsins. Viðskipti erlent 31.10.2011 00:23
Kínverjar ekki tilbúnir að samþykkja þátttöku Kínverjar voru ekki tilbúnir til þess að taka þátt í fjármögnun á sérstökum björgunarsjóði Evrópusambandsins (ESB) að sinni, a.m.k. ekki fyrr en nákvæmari upplýsingar liggja fyrir um hvernig hann verður byggður og síðan notaður. Viðskipti erlent 30.10.2011 20:42
Seðlabankastjóri Evrópu hættir á morgun Jean-Claude Trichet, fráfarandi seðlabankastjóri Seðlabanka Evrópu, segir að efnahagskreppan á evrusvæðinu sé ekki á enda. Í dag hvatti hann leiðtoga ríkja innan Evrópusambandsins til þess að hrinda strax í framkvæmd þær aðgerðir sem samþykktar voru síðastliðinn miðvikudag. Viðskipti erlent 30.10.2011 17:37
Kínverjar taka yfir Saab Forsvarsmenn sænska bíla- og vélaframleiðandans Saab samþykktu í dag að selja fyrirtækið til tveggja kínverskra fyrirtækja fyrir 100 milljónir evra. Fyrirtækin heita Pang Da og Youngman. Viðskipti erlent 30.10.2011 00:13
Þjóðverjar 55 milljörðum evrum ríkari Þýski ríkissjóðurinn er 55 milljörðum evrum ríkari en talið var. Þetta uppgötvaðist þegar að í ljós kom að villa var gerð í bókhaldi Hypo Real Estate bankans sem var þjóðnýttur árið 2009. Þjóðverjar búast nú við því að skuldir ríkissjóðs verði 81,1% af landsframleiðslu í ár, sem er um 2,6% minna en fyrri spár gerðu ráð fyrir. Bókhaldsmistökin voru uppgötvuð fyrr í þessum mánuði en tilkynnt á föstudaginn. Viðskipti erlent 29.10.2011 10:58
Atvinnulausir á Spáni aldrei verið fleiri Tæplega fimm milljónir Spánverja eru nú atvinnulausir, eða 21,5 prósent af vinnubærum mönnum. Ástandið hefur aldrei verið verra í landinu en tölur fyrir þriðja ársfjórðung voru birtar þar í landi í dag. Efnahagslífið á Spáni hefur verið á brauðfótum undanfarin misseri eins og víðar í Evrópu en atvinnuleysi er hvergi meira í álfunni en á Spáni. Viðskipti erlent 28.10.2011 13:29
Norski olíusjóðurinn tapaði 5.900 milljörðum Norski olíusjóðurinn tapaði 284 milljörðum norskra króna eða rúmum 5.900 milljörðum króna á þriðja ársfjórðungi þessa árs. Þetta er næstmesta tapið á einum ársfjórðungi í sögu sjóðsins. Viðskipti erlent 28.10.2011 10:44
Veisla á hlutabréfamörkuðum heimsins Mikil veisla hefur verið í gangi á hlutabréfamörkuðum í Bandaríkjunum í gærkvöldi og á Asíu mörkuðum í nótt. Ástæðan er samkomulag leiðtoga Evrópusabandsins um frekari aðgerðir gegn skuldakreppunni. Viðskipti erlent 28.10.2011 07:23
Verulegar hækkanir í kauphöllum Evrópu Veruleg hækkun hefur orðið í kauphöllum Evrópu frá því að þær opnuðu í morgun. Ástæðan er greinileg ánægja með það samkomulag sem leiðtogar Evrópusambandins náðu í nótt um frekari aðgerðir gegn skuldakreppunni. Viðskipti erlent 27.10.2011 08:51
Björgunarsjóður ESB stækkaður í 1.000 milljarða evra Leiðtogar Evrópusambandsins komust að samkomulagi um aðgerðir gegn skuldakreppunni á fundi sínum í Brussel. Fundinum lauk ekki fyrr en í nótt. Viðskipti erlent 27.10.2011 07:28
Útlínur að samkomulagi sagðar liggja fyrir Þjóðarleiðtogar Evrópuríkja hafa komið sér saman um útlínur að samkomulagi um hvernig bregðast skuli við miklum þjóðarskuldum og slæmri stöðu banka í Evrópu. Frá þessu greindi breska ríkisútvarpið BBC í kvöld. Efnisatriði þess liggja þó ekki fyrir nema að litlu leyti. Fundað hefur verið í Brussell í dag með von um að ná samkomulagi um helstu aðgerðir sem grípa þarf til. Viðskipti erlent 26.10.2011 23:19