Viðskipti erlent
Merkel: Vika til stefnu Viðskipti erlent 17.10.2011 17:36 Búa sig undir meiri afskriftir á skuldum Grikklands Óvíst er að áætlun sem takmarkar tjón af efnahagsvanda Grikklands verði samþykkt af leiðtogum Evrópuríkja. Stjórnendur banka sem eiga grísk skuldabréf er þegar farnir að búa sig undir að tjónið verði meira en þjóðarleiðtogar hafa gefið í skyn. Þetta segir Stephen Evans, viðskiptablaðamaður breska ríkisútvarpsins BBC, í pistli á vefsíðu BBC í dag. Viðskipti erlent 17.10.2011 14:36 ISS selt til bresks félags fyrir 950 milljarða Búið er að selja danska hreingerningarisann ISS fyrir 44,3 milljarða danskra kr. eða sem svarar til rúmlega 950 milljarða kr. Kaupandinn er breska öryggisfyrirtækið G4S. Viðskipti erlent 17.10.2011 09:34 Fyrstu tilboðin í Iceland opnuð á miðvikudag Reuters hefur það eftir ónafngreindum heimildarmönnum að fyrstu tilboðin í Iceland Foods verslunarkeðjuna verði opnuð á miðvikudaginn kemur. Viðskipti erlent 17.10.2011 09:10 « ‹ 209 210 211 212 213 214 215 216 217 … 334 ›
Norðmenn fara í umhverfimat vegna olíuvinnslu við Jan Mayen Orkumálaráðuneyti Noregs ætlar sér að vinna umhverfismat fyrir olíuvinnslu á hafsbotni undan ströndum Jan Mayen. Þetta kemur fram í frétt á Reuters. Viðskipti erlent 21.10.2011 09:30
Ekkert dregur úr straumi verkamanna til Danmerkur Ekkert hefur dregið úr straumi verkamanna frá Austur Evrópu til Danmerkur þrátt fyrir kreppuna þar. Viðskipti erlent 21.10.2011 07:45
Hagnaður Microsoft jókst Hagnaður Microsoft tölvufyrirtækisins jókst umtalsvert á þriðja fjórðungi ársins. Hagnaður fyrirtækisins á tímabilinu nam 5,74 milljörðum dala, sem nemur um 666 milljörðum króna, nú en var 5,41 milljarður dala á sama tímabili í fyrra. Ástæða tekjuaukningarinnar má rekja til þess að sala á Office hefur aukist og einnig hefur sala Windows aukist lítillega. Tekjur fyrirtækisins á tímabilinu námu 17,4 milljörðum dala. Það eru um 1900 milljarðar íslenskra króna. Viðskipti erlent 20.10.2011 23:52
Upp úr sauð á milli mótmælenda í Aþenu Slegið hefur í brýnu á milli óeirðaseggja og annarra mótmælenda í Aþenu höfuðborg Grikklands í dag. Þúsundir komu saman fyrir utan þinghúsið í borginni til þess að lýsa vanþóknun sinni á nýjum niðurskurðartillögum ríkisstjórnarinnar. Grjótkasti og bensínsprengjum var beitt í bardaga sem braust út á milli grímuklæddra ungmenna og liðsmanna verkalýðsfélaga sem njóta stuðnings kommúnista á Grikklandi. Viðskipti erlent 20.10.2011 15:14
Fyrstu tilboðin í Iceland 1,3 til 1,5 milljarðar punda Fyrstu tilboðin í Iceland Foods verslunarkeðjuna hljóða upp á 1,3 til 1,5 milljarða punda eða allt að 273 milljarða króna. Viðskipti erlent 20.10.2011 09:06
Danska stjórnin hættir við að einkavæða Dong Danska ríkisstjórnin hefur ákveðið að hætta við áformin um að einkavæða Dong hið opinbera olíu- og gasfélag landsins. Viðskipti erlent 20.10.2011 08:05
Hlutabréf lækkuðu í BNA Helstu hlutabréfavísitölur í Bandaríkjunum lækkuðu í dag. Nasdaq lækkaði um 2,01% og S&P 500 um 1,26%. Helstu vísitölur í Evrópu hækkuðu hins vegar lítillega. FTSE vísitalan í Bretlandi hækkaði um 0,74% og Dax hækkaði um 0,61% Viðskipti erlent 19.10.2011 20:45
Apple hagnaðist um 3.000 milljarða Hagnaður Apple fyrir rekstrarárið sem lauk 24. september sl. nam 25,9 milljörðum dollara, eða sem nemur tæplega 3.000 milljörðum króna. Viðskipti erlent 19.10.2011 15:35
Lánshæfiseinkunn Spánar lækkuð Lánshæfismatsfyrirtækið Moody‘s lækkaði í morgun lánshæfiseinkunn Spánar. Í rökstuðningi fyrir ákvörðuninni segir að mesta áhyggjumálið sé mikið atvinnuleysi og hratt lækkandi húsnæðisverð, sem komi sér einkar illa fyrir veikburða fjármálakerfi landsins. Viðskipti erlent 19.10.2011 10:42
Olíuborpallur boðinn almenningi til sölu Norska olíufélagið Statoil hefur boðið almenningi til sölu einn af olíuborpöllum sínum. Borpallurinn er staðsettur á Huldra olíusvæðinu í Norðursjónum vestur af Bergen. Viðskipti erlent 19.10.2011 07:52
Nýjasta útgáfa Android kynnt í dag Nýjasta útgáfa Android stýrikerfisins verður kynnt í dag. Google, sem framleiðir Android, vonast til að stemma stigum við velgengni Apple á snjallsíma markaðinum. Viðskipti erlent 18.10.2011 23:25
Björgunarsjóður ESB stækkaður Frakkar og Þjóðverjar hafa náð samkomulagi um að björgunarsjóður fyrir evrusvæðið verði stækkaður upp í tvær trilljónir evra til að takast á við skuldakreppuna í Evrópu. Málið verður rætt á fundi leiðtoga Evrópuríkja um næstu helgi, eftir því sem fullyrt er á fréttavef Guardian. Viðskipti erlent 18.10.2011 22:05
Hækkanir vestanhafs en lækkanir í Evrópu Helstu hlutabréfavísitölur i Bandaríkjunum hækkuðu lítillega í dag. Dow Jones hækkaði um 1,58%, Nasdaq um 1,63% og S&P 500 um 2,04%. Viðskipti erlent 18.10.2011 21:05
Lækka lánshæfismat hjá 24 ítölskum bönkum Lánshæfismatsfyrirtækið Standard & Poor's lækkaði í dag lánshæfismat 24 banka og fjármálastofnana. „Markaðsaðstæður á evrusvæðinu, sérstaklega á Ítalíu og dökkar framtíðarhorfur um hagvöxt hefur leitt til verri horfa hjá ítölsku bönkunum" segir í yfirlýsingu S&P. Viðskipti erlent 18.10.2011 19:01
Coca-Cola hagnaðist um 250 milljarða króna Drykkjarvörurisinn Coca-Cola hagnaðist um 2,2 milljarða dollara, rúmlega 250 milljarða króna, á þriðja ársfjórðungi. Þetta er um 45% hagnaðaraukning frá ársfjórðunginum á undan, samkvæmt frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Viðskipti erlent 18.10.2011 17:44
Verðbólga mælist 5,2% í Bretlandi Verðbólga í Bretlandi mælist nú 5,2% samkvæmt tölum sem birtar voru í dag. Verðbólga hefur aukist mikið undanfarin misseri, en hún mældist 4,5% í mánuðinum á undan. Þetta er mesta verðbólga sem mælst hefur frá því árið 1997. Viðskipti erlent 18.10.2011 15:31
Völdu laxinn í staðinn fyrir gullið Íbúar í litlu sveitarfélagi í suðurhluta Alaska ákváðu að hafna gull- og koparnámuvinnslu við stöðuvatn í sveitarfélaginu og það þótt sú vinnsla hafi átt að skapa 1.000 ný störf fyrir íbúana sem glíma við töluvert atvinnuleysi. Viðskipti erlent 18.10.2011 10:54
Verðbólgan í Bretlandi ekki meiri síðan haustið 2008 Verðbólgan í Bretlandi mælist 5,2% og hefur ekki verið meiri síðan í hruninu haustið 2008. Viðskipti erlent 18.10.2011 09:39
Svíar mestu búðaþjófarnir á Norðurlöndunum Svíar eru mestu búðaþjófarnir á Norðurlöndunum. Þetta kemur fram í nýrri rannsókn sem unnin var á vegum öryggisþjónustunnar Checkpoint Systems. Viðskipti erlent 18.10.2011 09:17
Atvinnuleysi í Danmörku vantalið um 100.000 manns Í ljós hefur komið að atvinnuleysi í Danmörku er vantalið um rúmlega 100.000 manns í opinberum gögnum þar í landi. Viðskipti erlent 18.10.2011 07:57
Efnahagskerfi Kína aðeins að kólna Rauðglóandi efnahagskerfi Kína er aðeins farið að kólna. Hagvöxtur á þriðja ársfjórðungi reyndist vera 9,1% en hann mældist 9,5% á öðrum ársfjórðungi ársins og 9,7% á þeim fyrsta. Viðskipti erlent 18.10.2011 07:51
Moody´s varar Frakkland við lækkun lánshæfiseinkunnar Matsfyrirtækið Moody's hefur varað frönsk stjórnvöld við því að lánshæfiseinkunn franska ríkisins gæti verið í hættu. Moody´s er að íhuga að setja einkunnina á neikvæðar horfur en Frakkland heldur enn toppeinkunn, það er AAA, hjá matsfyrirtækinu. Viðskipti erlent 18.10.2011 07:38
Gríðarlegur fjöldi starfa tapast Stjórnendur raftækjaframleiðandans Philips ætla að leggja niður 4500 stöðugildi á næstunni. Þetta var tilkynnt um leið og sagt var frá gríðarlegu tekjutapi félagsins á þriðja fjórðungi ársins. Ástæða tapsins er fyrst og fremst minni sala. Hagnaður fyrirtækisins á þriðja ársfjórðungi var 74 milljónir evra samanborið við 524 milljónir á sama tímabili í fyrra. Á síðustu sjö mánuðum hefur Phillips tvisvar gefið út afkomuviðvaranir. Hlutabréf í Phillips hafa fallið um 40% á síðasta ári vegna verri afkomu. Viðskipti erlent 17.10.2011 23:18
Vandi Evrópu hefur áhrif í Kína Þó hagvöxtur í Kína sé enn mikill eru ýmis merki um að hann sé að minnka, einkum vegna minnkandi eftirspurnar frá Evrópu. Þetta segir sérfræðingurinn Alistair Thornton, starfsmaður IHS Global, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC í kvöld. Viðskipti erlent 17.10.2011 23:05
Samsung og Apple etja kappi Samsung tilkynnti í dag að fyrirtækið hefði selt 30 milljón eintök af snjallsímum sínum, Galaxy S og Galaxy S II. Viðskipti erlent 17.10.2011 21:29
Kanslarinn skelfdi fjárfesta Hlutabréf á mörkuðum í Evrópu féllu í dag eftir að Angela Merkel, kanslari Þýskalands, hvatti til hóflegrar bjartsýni í ræðu í dag. Hlutabréfamarkaðir voru nokkuð háir í morgun eftir fögur fyrirheit sem voru gefin á laugardag. Þá var því heitið að leiðtogar Evrópuríkjanna myndu kynna aðgerðir á næsta sunnudag sem gætu haft mikil áhrif. Viðskipti erlent 17.10.2011 19:51
Búa sig undir meiri afskriftir á skuldum Grikklands Óvíst er að áætlun sem takmarkar tjón af efnahagsvanda Grikklands verði samþykkt af leiðtogum Evrópuríkja. Stjórnendur banka sem eiga grísk skuldabréf er þegar farnir að búa sig undir að tjónið verði meira en þjóðarleiðtogar hafa gefið í skyn. Þetta segir Stephen Evans, viðskiptablaðamaður breska ríkisútvarpsins BBC, í pistli á vefsíðu BBC í dag. Viðskipti erlent 17.10.2011 14:36
ISS selt til bresks félags fyrir 950 milljarða Búið er að selja danska hreingerningarisann ISS fyrir 44,3 milljarða danskra kr. eða sem svarar til rúmlega 950 milljarða kr. Kaupandinn er breska öryggisfyrirtækið G4S. Viðskipti erlent 17.10.2011 09:34
Fyrstu tilboðin í Iceland opnuð á miðvikudag Reuters hefur það eftir ónafngreindum heimildarmönnum að fyrstu tilboðin í Iceland Foods verslunarkeðjuna verði opnuð á miðvikudaginn kemur. Viðskipti erlent 17.10.2011 09:10