Viðskipti erlent
255 256 257 258 259 260 261 262 263 … 334 ›
Náði samkomulagi við konuna sem hann áreitti Fyrrum forstjóri Hewlett-Packard tölvuframleiðandans, Mark Hurd, hefur náð samkomulagi um greiðslu bóta til konu sem sakaði hann um kynferðislega áreitni. Ásökun konunnar varð til þess að Hurd lét af forstjórastarfi í fyrirtækinu eins og Vísir sagði frá í gær. Viðskipti erlent 8.8.2010 11:12
Sara stefnir i gjaldþrot Skuldir Söru Ferguson, greifynju af York, nema næstum fimm milljónum sterlingspunda. Breska konungsfjölskyldan óttast að hún stefni í gjaldþrot. Viðskipti erlent 8.8.2010 09:43
Hver farþegi skilar minni tekjum Tekjur SAS flugfélagsins af hverjum farþega lækkuðu um 9% í júlí, samkvæmt nýjum tölum frá SAS. Norski viðskiptavefurinn e24 segir að þetta sé umtalsvert meira tap en flugfélagið hafði gert ráð fyrir. Viðskipti erlent 7.8.2010 17:31
Forstjóri HP hættir vegna ásakana um áreitni Mark Hurd, forstjóri Hewlett-Packard tölvuframleiðandans, hefur sagt starfi sínu lausu eftir að hann var ásakaður um að hafa áreitt konu kynferðislega. Konan var viðskiptavinur fyrirtækisins. Talsmenn Hewlett-Packard segja að stefnumörkun fyrirtækisins gegn kynferðilegri áreitni hefði ekki verið brotin. Hins vegar hefðu reglur fyrirtækisins um viðskiptasiðferði verið brotnar. Cathie Lesjak hefur verið ráðin forstjóri Hewlett-Packard til bráðabirgða. Viðskipti erlent 7.8.2010 16:20
Miklar verðhækkanir á brauði framundan Hinar miklu verðhækkanir á hveiti undanfarnar vikur mun leiða til þess að matvælaverð hækkar töluvert á seinni hluta ársins. Viðskipti erlent 6.8.2010 07:56
Kornbann Rússa olli uppnámi á hrávörumörkuðum Mikið uppnám varð á hrávörumörkuðum síðdegis í gær eftir að rússnesk stjórnvöld tilkynntu um útflutningsbann á korni frá Rússlandi en bannið gildir til áramóta. Viðskipti erlent 6.8.2010 07:41
Dýrast að borga í stöðumæli í Kaupmannahöfn Kaupmannahöfn er orðin sú borg í heiminum þar sem dýrast er að borga bílastæðagjöld. Viðskipti erlent 6.8.2010 07:28
Bretar keyptu færri bíla Sala á nýjum bílum í Bretlandi dróst saman í júlí, í fyrsta sinn í heilt ár. Alls voru 136,446 bílar skráðir í síðasta mánuði. Það er samdráttur um 13,2% miðað við júlí í fyrra, eftir því sem fram kemur í frétt Daily Telegraph. Viðskipti erlent 5.8.2010 16:19
Grikkjum gengur vel að fást við fjárlagahallann Aðgerðir Grikkja til að fást við fjárlagahalla ríkissjóðs ganga vel að mati Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og Evrópusambandsins. Starfslið á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, Evrópusambandsins og Seðlabanka Evrópu var nýlega í Grikklandi til að kynna sér stöðu mála. Viðskipti erlent 5.8.2010 14:03
Störfum fjölgar að nýju í Danmörku Störfum fer nú fjölgandi að nýju í Danmörku. Samkvæmt upplýsingum sem Dansk Jobindex og Danske Bank hafa unnið í sameiningu voru 14.600 ný atvinnutilboð lögð fram á netið í júlímánuði. Er þetta 1.000 fleiri störf en mánuðinn áður og mesti fjöldi nýrra starfa síðan í janúar 2009. Viðskipti erlent 4.8.2010 09:58
Fjárfestingarsjóður hagnast vel á vínkaupum Fjárfestingarsjóður á Spáni hefur hagnast vel á því að fjárfesta í víni. Sjóðurinn, sem bankinn Banca March stofnaði í desember s.l. hefur sýnt mun meiri hagnað en verðbréfa- og vogunarsjóðir það sem af er árinu. Viðskipti erlent 4.8.2010 09:32
Bandaríkjadalur fellur Bandarískur dalur hefur veikst um 0,97% gagnvart íslensku krónunni það sem af er degi. Erlendir fjölmiðlar segja að hann sé í frjálsu falli þessa stundina. Til að mynda hefur breska pundið styrkst gagnvart bandaríkjadal og hefur ekki verið eins sterkt gagnvart honum síðan í febrúar. Viðskipti erlent 3.8.2010 13:32
Slæmi bankinn skilar hagnaði en sá góði er rekinn með tapi Slæmi hlutinn af breska bankanum Northern Rock hefur skilað töluverðum hagnaði á fyrrihluta ársins á meðan að góði hluti bankans hefur skilað tapi. Viðskipti erlent 3.8.2010 09:31
Miklar hækkanir á heimsmarkaðsverði á áli Miklar verðhækkanir hafa orðið á heimsmarkaðsverði á áli að undanförnu. Viðskipti erlent 3.8.2010 08:08
Olíuverðið aftur komið yfir 80 dollara á tunnuna Heimsmarkaðsverð á olíu er nú aftur komið yfir 80 dollara á tunnuna og hefur ekki verið hærra síðan í maí síðastliðnum. Viðskipti erlent 3.8.2010 07:45
Gífurlegar verðhækkanir á hveiti, matvælaverð hækkar Gífurlegar verðhækkanir hafa orðið á hveiti síðasta mánuðinn, þær mestu á síðustu 30 árum. Viðskipti erlent 3.8.2010 07:39
Newsweek selt á einn dollara Hið þekkta fréttatímarit Newsweek hefur verið selt en það hefur verið í eigu stórblaðsins Washington Post undanfarin 50 ár. Viðskipti erlent 3.8.2010 07:23
Bretar vilja einna síst verja sumarfríi sínu á Íslandi Óvenjuhátt hlutfall Breta mun eyða sumarfríi sínu á heimaslóðum í ár. Ísland er meðal þeirra landa sem Breta vilja síst heimsækja í sumarfríi sínu. Viðskipti erlent 3.8.2010 07:16
HSBC hagnaðist um 2100 milljarða króna Hagnaður HSBC, stærsta banka í Evrópu, nam 11.1 milljarði sterlingspunda á fyrri helmingi ársins. Hagnaðurinn nemur um 2100 milljörðum íslenskra króna. Viðskipti erlent 2.8.2010 11:51
Metsala á Audi bifreiðum Audi bílaverksmiðjurnar seldu 554 939 bíla á fyrri helmingi ársins miðað við 465 804 á fyrri helmingi síðasta ár. Salan á fyrri helmingi ársins er meiri en á metárinu 2008, segir í frétt á norska viðskiptavefnum e24.no. Viðskipti erlent 2.8.2010 11:15
Heimsins versta starf er laust Olíufélagið BP auglýsir um þessar mundir starf talsmanns fyrirtækisins laust til umsóknar. Talsmaðurinn á að sjá um tengsl fyrirtækisins við fjölmiðla, en fyrirtækið varð fyrir miklum álitshnekki þegar að olíupallur í Mexíkóflóa gaf sig með þeim afleiðingum að úr varð gifurlegt umhverfisslys. CNN kallar starfið sem nú er verið að auglýsa, versta starf í heimi. Viðskipti erlent 1.8.2010 10:39
Eyjafjallajökull lék British Airways grátt Öskuskýið úr Eyjafjallajökli lék flugfélagið British Airways grátt, en félagið skilaði 164 milljóna punda tapi á öðrum ársfjórðungi, andvirði um 30 milljarða króna. Viðskipti erlent 31.7.2010 10:26
Big Mac dýrastur á Norðurlöndunum Það er dýrast að kaupa Big Mac hamborgara á Norðurlöndunum samkvæmt nýrri Big Mac vísitölu. Með vísitölunni er verð á Bic Mac hamborgurum borið saman þvert á landamæri. Samkvæmt henni kostar Bic Mac í Noregi 7,20 bandaríkjadali. Í Bandaríkjunum kostar samskonar borgari einungis 3,73 dali. Viðskipti erlent 30.7.2010 21:52
Disney seldi Miramax fyrir 79 milljarða Walt Disney hefur selt Miramax kvikmyndaverið fyrir 660 milljónir dala, eða sem nemur 79 milljörðum íslenskra króna. Salan hefur átt sér töluvert langan aðdraganda enda ljóst að um áhrifamikið fyrirtæki á þessu sviði er að ræða. Fjölmargir höfðu áhuga á að eignast fyrirtækið þar á meðal Harvey og Bob Weinstein en þeir stofnuðu það upphaflega fyrir 31 ári síðan. Viðskipti erlent 30.7.2010 20:49
Facebook fer senn á hlutabréfamarkað Til stendur að setja fyrirtækið sem rekur Facebook samskiptavefinn á markað fljótlega, en notendur vefjarins náðu á dögunum 500 milljóna markinu. Viðskipti erlent 30.7.2010 16:35
Microsoft leitar að svari við iPad Steve Balmer, forstjóri Microsoft, segir að það sé forgangsatriði hjá fyrirtækinu að hanna búnað sem geti verið svar framleiðandans við Apple iPad. Balmer sagði á ráðstefnu í Seattle á dögunum að Microsoft ynni að því með fyrirtækjum á borð við HP, Lenovo, Asus, Dell og Toshiba að hanna tölvu með sömu eiginleikum og iPad. Það var breska blaðið Telegraph sem greindi frá þessu. Viðskipti erlent 30.7.2010 13:48
Norrænir stórbankar eru þeir öruggustu í Evrópu Norrænu stórbankarnir Danske Bank, Handelsbanken, DnB NOR og Nordea eru þeir öruggustu í Evrópu. Þeir komu mjög vel út úr nýlegu álagsprófi ESB og skuldatryggingaálag þeirra endurspeglar trausta stöðu þeirra. Viðskipti erlent 30.7.2010 10:01
Nútíma Hrói höttur rænir spilavíti og gefur fátækum Maður sem kallar sig Hróa hött vinnur fyrir sér sem fjárhættuspilari í Las Vegas. Þar „rænir" hann spilavíti borgarinnar með kunnáttu sinni og gefur féið sem honum áskotnast til fátækra og nauðstaddra. Viðskipti erlent 29.7.2010 10:34
Íhuga að innkalla allar eins punds myntir í Bretlandi Konunglega myntsláttan í Bretlandi er nú alvarlega að íhuga að innkalla allar eins punds myntir í landinu sökum þess hve hátt hlutfall þeirra eru falsaðar. Viðskipti erlent 29.7.2010 07:53
Eyjafjallajökull var EasyJet dýr Gosið í Eyjafjallajökli kostaði breska lággjaldaflugfélagið EasyJet 65 milljónir sterlingspunda. Það gerir um 12.3 milljarða króna. Viðskipti erlent 28.7.2010 15:58