Matur

Ítölsk jólakaka

Kakan er þétt og algert sælgæti fyrir þá sem kunna að meta hnetur á annað borð.

Panforte di Siena

Ítölsk jólakaka frá Siena

Aðferð:

200 g möndlur (hýðislausar) - gróft saxaðar

100 g macademiahnetur - gróft saxaðar

100 g valhnetur - gróft saxaðar 100 g pecanhnetur - gróft saxaðar

300 g sykraður appelsínu- og sítrónubörkur

50 g þurrkaðar gráfíkjur

200 g sykur

100 g hunang (t.d. Acacia)

1/2 tsk. kanill

1/2 tsk. negull

1/2 tsk. koríander

1/2 tsk. múskat

1/2 tsk. engifer

2 msk. hveiti

Flórsykur

Ofninn er hitaður í 160 °C.

Hnetur, möndlur og gráfíkjur eru saxaðar gróft. Allt sett í skál ásamt appelsínu- og sítrónuberki, kryddi og hveiti og blandað saman.

Sykur og hunang er brætt saman í vatnsbaði á meðalhita og hrært í allan tímann meðan sykurinn bráðnar.

Sykur- og hunangsblöndunni er hellt varlega út í hnetu- og ávaxtablönduna. Þessu öllu blandað vel saman.

Form (um 25 cm. í þvermál) smurt vel eða settur bökunarpappír.

Blöndunni er þjappað vel í formið. Deigið virðist vera óþétt og hrönglað en það á eftir að þéttast algjörlega í ofninum og bindast vel.

Kakan bökuð um 40 mínútur.

Gott er að taka kökuna fljótlega úr forminu.

(Ekki gefast upp þó að kakan virðist klessast við botninn -- þarf bara smá lagni og þolinmæði)

Það þarf að geyma kökuna í kæli lágmark nokkrar klukkustundir og helst sólarhring áður en hún er borin fram en þegar hún er tekin fram þá á að drussa vel af flórsykri yfir hana.

Þessi kaka geymist í álpappír eða í loftþéttu boxi í kæliskáp í mánuð og má geyma í frysti í þrjá mánuði.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.