Í þrem flokkum sama kjörtímabilið 12. maí 2005 00:01
Allar götur frá því stjórnmálaflokkar urðu til á Íslandi í upphafi síðustu aldar hafa flokkar komið og farið, sameinast og sundrast. Sömu sögu er að segja af stjórnmálamönnunum sem mynda flokkana. Flokkakljúfur sjálfrar náttúrunnar Af víðförulum flokkaflökkurum skal fyrstan frægan telja Hannibal Valdimarsson, sem kom víða við á löngum póltískum ferli. Gárungar kölluðu hann meðal annars flokkakljúf sjálfrar náttúrunnar. Hannibal hóf ferilinn í Alþýðuflokknum á fjórða áratug síðustu aldar en eftir að hafa orðið undir í formannskjöri í flokknum 1954 skildu leiðir og 1956 stofnaði hann Alþýðubandalagið. Upp úr sauð á þeim bænum 1967 og fór Hannibal í sérframboð í þingkosningum það ár en starfaði þó áfram sem formaður Alþýðubandalagsins til 1968, er hann sagði sig úr flokknum. Hann stofnaði síðan Samtök frjálslyndra og vinstri manna 1969 og var formaður þess flokks til 1974, er hann hætti afskiptum af stjórnmálum. Hysjaði ekki upp um stjórnina Bjarni Guðnason prófessor var einn af félögum Hannibals í Samtökum frjálslyndra og vinstri manna og tók sem slíkur þátt í myndun vinstri stjórnarinnar sem sat frá 1971 til 1974. Hann yfirgaf reyndar skútuna 1973 og var utanflokka en átti síðan ekki hvað minnstan þátt í að stjórnin féll þegar hann hætti stuðningi við hana með þeim fleygu orðum að stjórnin væri með allt niðrum sig og hann ætlaði ekki að hysja upp um hana brækurnar. Bjarni gekk síðan til liðs við Alþýðuflokkinn og var varaþingmaður hans til 1986. Frá vinstri til hægri Bandalag jafnaðarmanna varð til í aðdraganda alþingiskosninga 1983 en forystumenn þess komu að mestu frá Alþýðuflokknum. Flokkurinn kom fjórum mönnum á þing en þraut örendi áður en kjörtímabilinu lauk. Gengu þrír þingmanna hans, þau Stefán Benediktsson, Kolbrún Jónsdóttir og Guðmundur Einarsson, til liðs við Alþýðuflokkinn en Kristín S. Kvaran gekk í raðir sjálfstæðismanna. Í þremur flokkum á fjórum árum Borgaraflokkurinn var stofnaður 1987 í kjölfar mikilla átaka innan Sjálfstæðisflokksins og kom sjö mönnum á þing sama ár. Albert Guðmundsson, formaður flokksins, hvarf af þingi ári síðar og varð sendiherra í Frakklandi. Árið eftir kvarnaðist enn úr flokknum þegar tveir þingmenn hans, þeir Ingi Björn Albertsson og Hreggviður Jónsson, stofnuðu Frjálslynda hægriflokkinn. Honum varð ekki langra lífdaga auðið því þeir Ingi Björn og Hreggviður gengu aftur í Sjálfstæðisflokkinn 1991. Þar með höfðu þeir afrekað að vera í þremur stjórnmálaflokkum á einu kjörtímabili. Úr og í Alþýðuflokkinn Jóhanna Sigurðardóttir var fyrst kjörin á Alþingi fyrir Alþýðuflokkinn 1978. Hún yfirgaf flokkinn eftir að hún tapaði formannskjöri fyrir Jóni Baldvini Hannibalssyni 1994 og var utanflokka á þingi um skeið. Fyrir kosningarnar 1995 stofnaði hún Þjóðvaka og komst á þing við þriðja mann. Þjóðvaki rann síðan saman við Alþýðuflokkinn á miðju kjörtímabilinu og flokkurinn rann síðan allur inn í Samfylkinguna í fyllingu tímans. Skjótur frami innan framsóknar Sá flokkaflakkari sem verið hefur hvað mest áberandi á síðari árum er tvímælalaust Kristinn H. Gunnarsson. Hann var fyrst kjörinn á Alþingi 1991 fyrir Alþýðubandalagið og starfaði óslitið innan raða flokksins til ársins 1998, er hann gekk skyndilega til liðs við Framsóknarflokkinn. Þetta gerðist í kjölfar þess að Alþýðubandalagið ákvað að ganga til sameiginlegs framboðs með Alþýðuflokki og Kvennalista fyrir kosningarnar 1999. Fleiri Alþýðubandalagsmenn undu þessu ekki heldur og þannig gengu þeir Steingrímur J. Sigfússon og Hjörleifur Guttormsson úr flokknum á sama tíma og lögðu þar með drög að stofnun Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs. Kristinn H. náði skjótum frama innan Framsóknar og varð þingflokksformaður eftir kosningarnar 1999 en heldur hefur andað köldu milli Kristins og forystu flokksins síðustu misserin. Í Sjálfstæðisflokkinn Gunnar Örlygsson er svo nefndur til sögunnar síðastur í röð flokkaflakkara en margir liggja þó óbættir hjá garði. Hann fór í framboð fyrir Frjálslynda flokkinn við alþingiskosningarnar 2003 og entist því ekki nema tvö ár í flokknum. Flokkurinn var reyndar upphaflega stofnaður af óánægðum sjálfstæðismönnum, Sverri Hermannssyni og Guðjóni Arnari Kristjánssyni, þannig að leiðin yfir í Sjálfstæðisflokkinn er kannski ekki svo ýkja löng þegar allt kemur til alls. Enda var Gunnar í Sjálfstæðisflokknum áður en hann gekk í Frjálslynda flokkinn.
Fréttir Innlent Stj.mál Mest lesið „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Innlent Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Innlent Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Innlent Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Innlent Engin röð á Læknavaktinni Innlent Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu Innlent Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Innlent Ógeðslega stoltur af kennurum Innlent Kjarasamningur kennara í höfn Innlent Leggjast aftur yfir myndefnið Innlent Fleiri fréttir Jakob Reynir Aftur reyndi aftur og fær að reyna aftur Ráðist í skipulagsbreytingar og þremur sagt upp Hugsi yfir ríflegum launahækkunum kennara Kátt á hjalla í Karphúsinu í gærkvöldi Leggjast aftur yfir myndefnið Leggur til íslenskan her, leyniþjónustu og herskyldu Vilja hvalkjöt af matseðlinum Lítil huggun í svörum sendiráðsins og íþróttafólki hótað lífstíðarbanni Handtökur vegna nágrannaerja og slagsmála í miðbænum Nágranni vill banna kylfingum að nota veginn að Bakkakotsvelli Vilja að RÚV feti í fótspor Slóveníu „Þetta er bara það sem aðrir hópar hjá okkur hafa fengið í gegnum tíðina“ Ógeðslega stoltur af kennurum Einróma samþykki og borgarstjóri í skýjunum Kjarasamningur kennara í höfn Engin röð á Læknavaktinni Segir lífeyrisgreiðslur skertar á fölskum forsendum Reykjavík ekki ljót borg Hefur enga skoðun á máli Ragnars Þórs Ókunnugir og fyrrverandi meðal þeirra sem gætu verið að fylgjast með Segir upp eftir rúma tvo áratugi í starfi: „Það virðist enginn hlusta“ Bylgjan og FM957 liggja niðri Skjálftavirkni fer vaxandi Kjaftshögg, falin hætta og deila um íslenska atriðið Vilja styrkja viðgerðir á sögufrægum byggingum Kjarnorkukafbátur í Eyjafirði Konur á miðjum aldri þær sem helst áreita karlkyns lögregluþjóna Verði gott fyrir lögreglu að vita hvar mörkin liggja Atburðir helgarinnar kjaftshögg fyrir kennara Buguðu foreldrarnir mæti þegar þeir sjá birta til Sjá meira