Al-Kaída boðar árásir 28. júlí 2006 07:30 Í rústum heimilis Þessi maður í Líbanon notaði kodda til þess að slökkva eld eftir að flugskeyti féll á hús í bænum Zifta. MYND/AP
Ayman al-Zawahri, Egyptinn sem sagður er standa næst Osama bin Laden að völdum í al-Kaída, hótaði í árásum um heim allan í ávarpi á myndbandi, sem sýnt var í gær. „Við getum ekki bara horft á þessar sprengjur þegar þær brenna bræður okkar á Gaza og í Líbanon og setið hjá aðgerðarlausir og auðmýktir,“ sagði hann og hvatti alla múslima til þess að grípa til vopna. „Þetta er heilagt stríð í þágu guðs og það mun geisa þar til trú okkar ríkir allt frá Spáni til Íraks,“ sagði hann. „Við munum gera árásir alls staðar.“ Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði aftur á móti á ríkisstjórnarfundi í gær að markmið árásanna á Líbanon væru að nást og Amir Peretz varnarmálaráðherra sagði að Hizbollah-samtökin yrðu ekki svipur hjá sjón í framtíðinni. Ísraelsstjórn sagðist í gær hafa tekið þá ákvörðun að árásirnar yrðu ekki hertar frá því sem verið hefur, en að minnsta kosti 30 þúsund Ísraelar hafa verið kallaðir í herinn og eru að hefja þjálfun. Lítill árangur varð á alþjóðaráðstefnunni um Líbanon, sem haldin var í Róm á miðvikudag. Þar var þó ákveðið að senda alþjóðlegt friðargæslulið til Líbanons, en alls óvíst er hvernig það gæslulið verður samansett eða hvenær það fer.
Erlent Mest lesið „Sorglegt að sjá hversu gaman þetta var fyrir þá“ Innlent Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Erlent Kristrún og fleiri leiðtogar mæta til Kænugarðs Innlent Kafað eftir reiðhjóli í Reykjavíkurhöfn Innlent Hefur áhyggjur af mikilli notkun melatóníns hjá börnum Innlent Grét þegar hún kom á Ásbrú og hélt að lífið væri búið Innlent Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Erlent Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Erlent Afstýrði vopnuðu ráni í Kópavogi: „Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað“ Innlent Ökumaður með hníf og kylfu en farþegi með heimatilbúnar sprengjur Innlent Fleiri fréttir Væntanlegur kanslari segir Evrópu þurfa sjálfstæði frá Bandaríkjunum Formaður sænska Miðflokksins hættir Íhaldsmenn sigruðu en öfgahægrið náði sögulegum árangri Flestir starfsmenn USAid sendir í leyfi og 2.000 störf lögð niður Sendu skriðdreka inn á Vesturbakkann í fyrsta sinn í 23 ár Útgönguspár benda til sögulegra úrslita Tilbúinn að stíga til hliðar Páfinn sendir frá sér yfirlýsingu Þjóðverjar ganga að kjörborðinu: „Vinstrið er búið“ Hamas reiðubúin að láta af stjórn Gaza Segir Selenskí hugrakkan leiðtoga Kona sem sagðist vera Madeleine McCann handtekin Aftökur á stríðsföngum sagðar kerfisbundnar Þjóðverjar ganga til kosninga um helgina Farnir að safna matvælum vegna fyrirhugaðra tollahækkana Alríkisdómari neitar að stöðva fjöldauppsagnir Afhentu óþekkt lík í stað Shiri Bibas Dómari skaut eiginkonu sína vegna rifrildis Bandaríkjastjórn neitar að kalla Rússa „árásaraðila“ Trump fetar í fótspor Breivik Afhentu lík yngstu gíslanna sem teknir voru frá Ísrael Trump geti „algerlega“ fellt mál niður af pólitískum ástæðum Ætlar í stórfelldan niðurskurð hjá hernum Trump segir Rússa hafa öll spil á hendi Trump titlar sig konung Danir ausa milljörðum í varnarmál Kallar Selenskí einræðisherra og varpar fram lygum Ákærð fyrir að bana barni fyrir hálfri öld Biður Trump-liða um að virða sannleikann Vildi eitra fyrir forsetanum og skjóta forseta hæstaréttar Sjá meira