Nýjum söngleikjum farnast ekki vel á Broadway þessi dægrin. Raunar var rokksöngleik byggðum á leikverki Frank Wedekinds, Vorið vaknar, tekið vel á forsýningum og frumsýningu í vikunni, en söngleikur sem byggir á skáldsögu Nick Hornby, High Fidelity, lauk keppni á miðvikudag eftir aðeins fjórtán sýningar.
Sagan Hornby er kunn: ungur maður lokar sig frá heiminum í hljómplötuverslun og lisfir meira í heimi tónlistar sem hann ann en heimi fólks með mannlegar tilfinningar og þrár. Írski leikstjórinn Stephan Frears gerði úr þessu efni kvikmynd og flutti verkið til Chicago til að tryggja sér fjármagna og stjörnur. Þá gekk vel að tvinna saman stefnin sem þutu um hug unga mannsins og félagslegan vanda hans.
En á sviðinu varð að semja nýja tónlist, en ekki kyrja lög Kinks og Stiff Little Fingers, Arethu eða Stereolab. Gagnrýnendur tóku verkinu vægt satt illa, sögðu það leiðinlegt. Þó tók tíu miljónir dala að koma verkinu á svið. Miðaverð var hátt - nær átta þúsund kall á miða. Leikhúsið stórt - Imperial-leikhúsið tekur 1434 gesti í sæti.
High Fidelity slæst því í hóp fallstykkja úr rokkgeiranum: sýningin sem byggði á Dylan-lögum er búinn, söngleikur um John Lennon dó og annar um Presley sömuleiðis.
Menn vestanhafs leita skýringa í kjarnahóp rokkaðdáenda: það eru karlmenn og þeir hafa lengi verið lakasti hópurinn í aðsókn söngleikja.