Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum er orðin fullskipuð þátttakendum eftir úrtöku í Ölfushöllinni í gær. Það má segja að landslið dómara hafi verið saman komið til að hita sig upp og stilla sig af fyrir átök nýs árs. Keppni að þessu tagi þar sem keppt er í fjórgangi og fimmgangi í janúar er nýbreytni og mjög krefjandi fyrir keppendur og hesta þeirra enda hvorki menn né hestar komnir í sitt besta form eins og gefur að skilja.
En allir sátu við sama borð á Ingólfshvoli á laugardag og þar mátti sjá prýðilegar sýningar enda þrír efstu knapar með yfir 6 í meðaltal úr báðum greinum. Sigurvegari í fjórgangi var hinn ungi og bráðefnilega knapi Teitur Árnason með Frosta frá Glæsibæ, móálóttan son Hegra frá Glæsibæ og hluti þeir einkunnina 6,33. Jafnir í öðru til þriðja sæti voru Sölvi Sigurðarson og Óði-Blesi frá Lundi og Eyjólfur Þorsteinsson og Hárekur frá Vindási með einkunnina 6,27.
Fimmganginn sigraði Eyjólfur Þorsteinsson og Eitill frá Vindási með einkunnina 6,17. Í öðru sæti varð Haukur Baldvinsson og Falur frá Þingeyrum með 6,13 og í þriðja sætinu hafnaði Ríkharður Flemming Jensen og Dynssonurinn Sölvi frá Tjarnarlandi með 5,90.
Úrslit (meðaleinkunn fjórgangs og fimmgangs)
1. Eyjólfur Þorsteinsson 6,22
2. Teitur Árnason 6,07
3. Ríkharður Flemming Jensen 6,02
4. Sölvi Sigurðarson 5,98
5. Haukur Baldvinsson 5,68
6. Hallgrímur Birkisson 5,53
7. Elsa Magnúsdóttir 5,50
8. Þórdís Erla Gunnarsdóttir 5,40
9. Vignir Siggeirsson 5,40
10. Hugrún Jóhannsdóttir 5,48
11. Ingunn Birna Ingólfsdóttir 5,45
12. Lúther Guðmundsson 5,37
13. Ragnar Tómasson 5,32
14. Guðmundur Baldvinsson 5,32
15. Magnús Jakobsson 5,25
16. Jón Ó. Guðmundsson 5,08
17. Steingrímur Jónsson 4,92
18. Áslaug Fjóla Guðmundsdóttir 4,70
19. Fjölnir Þorgeirsson 2,93
20. Erling Ó Sigurðsson 2,87
21. Jón Kristinn Hafsteinsson 1,40
Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum skipa því eftirfarandi 24 knapar:
Atli Guðmundsson
Elsa Magnúsdóttir
Eyjólfur Þorsteinsson
Hallgrímur Birkisson
Haukur Baldvinsson
Hinrik Bragason
Hugrún Jóhannsdóttir
Hulda Gústafsdóttir
Ingunn Birna Ingólfsdóttir
Jóhann G. Jóhannesson
Lúther Guðmundsson
Páll Bragi Hólmarsson
Ríkharður Flemming Jensen
Sigurbjörn Bárðarson
Sigurður V. Matthíasson
Sigurður Sigurðarson
Sævar Örn Sigurvinsson
Sölvi Sigurðarson
Teitur Árnason
Valdimar Bergstað
Viðar Ingólfsson
Vignir Siggeirsson
Þorvaldur Árni Þorvaldsson
Þórdís Erla Gunnarsdóttir
Meistaradeildin hefst fimmtudagskvöldið 1. febrúar klukkan 19.00 þar sem keppt verður í fjórgangi.

