Núna Guðmundur Steingrímsson skrifar 15. nóvember 2008 06:00 Sá erkisnillingur Barack Obama fékk mig til þess að fá undarlegt ofnæmi í augun - vil ég meina - um miðja nótt nú í byrjun nóvember, þannig að ég táraðist óhóflega. Þetta gerðist rétt í þann mund þegar Obama gekk ásamt konu sinni og börnum inn á sviðið í Chicago, nýkjörinn forseti frammi fyrir tugþúsundum stuðningsmanna sinna. SVO byrjaði hann að tala. Og ég hugsaði: Þessi maður er fyrsti þjóðarleiðtoginn sem ég heyri segja eitthvað af viti í langan tíma. Mikið afskaplega var það kærkomið. Þarna stóð maður sem blés mér von í brjóst. Hann talaði skýrt. Hann sagði hluti. Á meðan Obama talar um "the urgency of now" eða mikilvægi þess að nýta augnablikið, gera mikilvæga hluti núna, ekki síðar - því það er engin stund eins og núna - hafa vissir íslenskir leiðtogar á lykilstöðum gert marga brjálaða á undanförnum vikum með eilífum yfirlýsingum um að þetta og hitt sé ekki „tímabært", að ekki eigi að þvæla umræðuna með „óskyldum málum", að ekki sé hægt að segja frá hlutum „að svo stöddu". Í kjölfarið á slíku tali skil ég vel að landsmenn horfi hugsandi á eggin í ísskápnum og íhugi notagildi þeirra í lýðræðislegu samhengi. ÉG skil illa hvernig sá flokkur í ríkisstjórn sem lagt hefur fram skýrar kröfur - um faglegan Seðlabanka, um nýjan gjaldmiðil og inngöngu í bandalag sjálfstæðra ríkja í Evrópu - getur unað við það stundinni lengur að þessi stefnumið og önnur (eins og afnám eftirlaunafrumvarpsins) séu sífellt afgreidd af samstarfsflokknum sem ótímabært hjal. Sjálfstæðisflokkurinn hefur stofnað nefnd og ætlar að ræða eitt af þessum málum í jan/feb. Gott og vel. Það er framför. En hér er ferðast á hraða skriðjökuls. ÁSTANDIÐ er krítískt. Krónan er dauð. Eggin smella á Alþingishúsinu. Það verður að hlusta á kall tímans. Kröfur núsins. Þá lexíu eigum við að hafa lært, eftir að endalaus frestun aðgerða setti heilt bankakerfi á hausinn. Við hlustuðum ekki. Og nú gerir núið kröfu um ákvarðanir, um stefnu, upplýsingar og síðast en ekki síst: Að stærsta hagsmunamál þjóðarinnar - framtíðargjaldmiðillinn og aðild að ESB - sé sett upp á borðið og um það kosið. NÚIÐ er ofsafengin skessa, algjör frekja, sem trompast ef maður hlustar ekki á hana. Þessa dagana sé ég ekki betur en að hún sé gjörsamlega snælduvitlaus. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Guðmundur Steingrímsson Mest lesið Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen Skoðun Heilbrigðisráðherra og stjórn VIRK hafa brugðist okkur Eden Frost Kjartansbur Skoðun Þegar ríkið fer á sjóinn Svanur Guðmundsson Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun
Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson Skoðun