Fá inngöngu á endanum Guðjón Helgason í Búkarest skrifar 3. apríl 2008 13:20 Frá fundinum í Búkarest fyrir stundu.
Skýrt er kveðið á um það í lokaplaggi leiðtogafundar Atlantshafsbandalagsins í Rúmeníu að Georgía og Úkraína fái aðild að bandalaginu. Viðræðuáætlun verður þó ekki samþykkt að sinni. Skýrt tekið fram í lokaplagginu að ríkin tvö verðir aðilar á endanum. Lokaplaggið verður formlega samþykkt á fundi leiðtoga allra 26 bandalagsríkja innan stundar. Rússar eru andvígir stækkun NATO í austur og hafa lagst harðlega gegn því að Georgía og Úkraína fái aðild. Mörg Evrópuríki, með Frakka og Þjóðverja í fararbroddi, voru með efasemdir á fundinum um að ríkin tvö væru tilbúin til að hefja viðræður um aðild. Hugmyndin var sú að viðræðuáætlun yrði samþykkt (MAP - Membership Action Plan) sem síðan myndi leiða til þess að ríkjunum yrði boðið til formlegra aðildarviðræðna á næsta leiðtogafundi. Ekkert verður af slíku í bili en utanríkisráðherra bandalagsríkjanna munu meta stöðuna á reglubundnum fundi sínum í desember. George Bush, Bandaríkjaforseti, lagði áherslu á að viðræðuáætlun yrði samþykkt þegar hann fór til fundar við ráðamenn í Kænugarði fyrr í vikunni. Í dag sagðist hann ætla að leggja áherslu á þetta mál áður en hann léti af embætti um næstu áramót.
Erlent Fréttir Mest lesið Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent Sakborningur í Elko-málinu líka grunaður um heimilisofbeldi Innlent Um 173 milljónir króna á hvern fanga í nýju fangelsi á Stóra-Hrauni Innlent Svona gullhnullungar finnast hvergi lengur nema í Grænlandi Innlent Ný kosningaspá: Sjö flokkar sem næðu inn manni Innlent Þessi mættu best og verst í þinginu Innlent „Talandi um að skila ekki til samfélagsins“ Innlent Erfiðara að manna í frístund í austurhluta borgarinnar Innlent Fleiri fréttir Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Kortleggja neðanjarðarbyrgi vegna hótana Rússa Ítrekar hótanir um að hækka tolla á Kína, Mexíkó og Kanada Saksóknarar vilja Pelicot í 20 ára fangelsi Annarri ákærunni formlega vísað frá Sjá meira