Valsinn hennar Matthildar var ástaróður -myndband Óli Tynes skrifar 20. maí 2008 16:04
Lagið fjöruga Waltzing Mathilda er oft kallað óopinber þjóðsöngur Ástrala. Ástralskur sagnfræðingur hefur komist að þeirri niðurstöðu að lagið hafi verið ástaróður en ekki sósíaliskur baráttusöngur. Árið 1891 fóru rúningarmenn í Ástralíu í verkfallið mikla sem kallað hefur verið, og ástralskar rollur gengu órúnar um akra. Hingaðtil hefur verið talið að ljóðskáldið „Banjo" Paterson hafi skrifað textann til stuðnings verkfallsmönnum. Hann fjallar um flakkara sem hirðir vænan sauð og stingur í mal sinn. Búgarðseigandinn kemur á vettvang með þrem löggum. Frekar en vera handtekinn stekkur flakkarinn út í tjörn og drekkir sér. Síðan má sjá draug hans vappa um í grennd við tjörnina. Auðvitað syngjandi um Matthildi sína. Höfundur lagsins var kona að nafni Christina Macpherson. Sagnfræðingurinn Peter Forest telur að Paterson hafi borið til hennar tilfinningar. Hann hafi skrifað textann til þess að sýna henni að hann gæti fundið tónum hennar orð. Þið getið hlustað á Matthildi hér.
Erlent Mest lesið Nafn mannsins sem lést í Garðabæ Innlent Hafþór keppir í Rússlandi: „Auðvitað veldur þessi ákvörðun ákveðnum vonbriðgum“ Innlent Einhleypir karlmenn standa verst Innlent Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Erlent Vantar sjálfboðaliða til að laga 500 hjól handa efnaminni fjölskyldum Innlent Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Erlent Geti haft í för með sér „ónæði, mengun og álag á fráveitu“ Innlent Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard Erlent „Þeir voru fullir af hatri á meðan þeir lömdu mig“ Innlent Bað lögreglu um að bjarga kettinum úr klóm nágrannans Innlent Fleiri fréttir Sterkar vísbendingar um líf á annarri plánetu Hótar að banna erlenda nemendur í Harvard „Þetta er pólitískt val og meðvituð árás á getu fólks til að lifa af“ Verkföll á Tenerife: „Það eru mikil læti sem fylgja þessu“ Hótelstarfsmenn á Tenerife í verkfalli Segir gögn fyrir hendi sem sanni glæpsamlegt athæfi Dómur um trans konur: „Aðeins konur, engir karlar“ Furðureikistjarna sem gengur hornrétt um tvístirni Telja ákvæði jafnréttislaga ekki ná yfir trans konur Fyrrverandi forseti Perú í fimmtán ára fangelsi fyrir peningaþvætti Hafa nú lýst yfir stofnun ríkisstjórnar í landinu Flóttafólki fækkar verulega við landamæri Evrópu Hótar að svipta Harvardháskóla skattfrelsi Blaðamenn fangelsaðir vegna samstarfs við Navalní Líkir viðurkenningu á Palestínu við „sigur fyrir hryðjuverk“ Kyrrsetja þyrlufyrirtækið eftir banaslysið í New York Kveikti í ríkisstjórasetrinu og ætlaði að berja ríkisstjórann með hamri Frysta milljarða fjárveitingar til að refsa Harvard-háskóla Segir Selenskí ábyrgan fyrir stríðsástandinu Tveir skotnir til bana í Gautaborg Sæðisgjafar hafi feðrað tugi barna í trássi við lög Harvard háskólinn neitar að fylgja skilyrðum Trumps Arkitekt guðs skrefi nær dýrðlingatölu Leiðtogar fordæma mannskæða árás Rússa Neita enn að hleypa AP fréttamönnunum að Breyta stjórnarskránni til að banna gleðigönguna Íslenskir feðgar flugu með þyrlunni nokkrum tímum fyrir slysið Fordæma harkalega árás Rússa á Sumy Yngsti lýðræðislega kjörni þjóðhöfðingi heims endurkjörinn Áfrýjar í von um að geta boðið sig fram til forseta Sjá meira