Sjálfhverfan 17. júní 2009 00:01 Fyrrverandi kennari minn í sagnfræði spurði eitt sinn að því hvað við nemendurnir myndum gera ef við fyndum óræka sönnun þess að Jón Sigurðsson hefði fæðst 16. júní. Uppfull sannleiksást, sem ekki enn var búið að berja úr okkur með fallvaltleika fræðanna, sögðumst við þegar í stað gera þetta opinbert. Gott ef einhverjir voru ekki farnir að baða sig í ljóma frægðarsólarinnar og einn og einn mátaði ímyndaðan hatt og lét smella í svipu eins og aðrir frægir grúskarar fornra fræða. Spurningunni hvað ætti þá að gera við þjóðhátíðardaginn var hins vegar erfiðara að svara. Líklega hefði ekki verið mikið mál að hliðra þjóðhátíðardeginum til, eða jafnvel halda bara upp á lýðveldisstofnun en ekki afmæli löngu látins manns. Þessi spurning fékk okkur hins vegar til að íhuga þá staðreynd að ansi fátt er staðreynd þegar kemur að sögunni. Jú, vissulega getur fundist skjalfest heimild fyrir því að Jón hafi fæðst ákveðinn dag; hvað gerir þann dag að þjóðhátíðardegi er hins vegar erfiðara að festa fingur á. því er þetta allt rifjað upp að það er öllum hollt að hafa það í huga að það er hlutverk atburða í skynjun fólks sem gerir þá merkilega. Og einmitt þess vegna höfum við haldið þjóðhátíðardaginn hátíðlegan til að halda á lofti því sem gerir okkur að þjóð. Eða öllu heldur því sem okkur finnst að eigi að gera okkur að þjóð. Furðu fátt hefur breyst í orðræðu þjóðhátíðanna frá seinni hluta 19. aldar. Á eftir munu landsmenn geta gengið að því vísu að talað verður um land, þjóð og tungu, menninguna og söguna. Þetta hafi mótað þjóðarþelið. þess vegna hefur mörgum nýjum íbúum þessa skers reynst erfitt að samsama sig þjóðhátíðarræðum. Þar er haldið á lofti veruleika sem á lítið skylt við nútímann. Í sjálfhverfu hafa ræðumenn rifjað upp glæsta fortíð til að undirstrika glæsta nútíð og enn glæstari framtíð. vonandi verður rof á þessari hefð í ár. Því hvað sem um innbyggjara þessa lands má segja þá hefur skortur á sjálfhverfu ekki plagað þá undanfarin ár. Og sú sjálfhverfa hefur fylgt okkur í ímynduðum sigrum okkar víða um lönd, leikið um tungu ráðamanna og viðskiptajöfra og fyllt samræður almennings. Við vorum öll æði. kannski auðmýktin banki upp á í hátíðarræðum dagsins. Hún verður þá boðin velkomin. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun Hugleiðing á konudag Sigurður Ingi Arnars Unuson Skoðun Áfram kennarar! Kristbjörg Þórisdóttir,Bragi Reynir Sæmundsson Skoðun Stétt með stétt? Helgi Áss Grétarsson Skoðun Viðbrögð barna við sorg Matthildur Bjarnadóttir Skoðun Áslaug Arna er leiðtoginn sem Sjálfstæðisflokkurinn þarf Hafrún Kristjánsdóttir Skoðun Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun Landshornalýðurinn á Hálsunum Hákon Gunnarsson Skoðun Opið bréf til bæjarstjóra Kópavogs Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun
Opið bréf til Einars Þorsteinssonar og Hildar Björnsdóttur - Hafið þið enga sómakennd? Linda Ósk Sigurðardóttir Skoðun
Hafnaðir þú Margrét Sanders? Páll Erlingsson,María Petrína Berg,Fjóla Ævarsdóttir,Sigrún Gróa Magnúsdóttir Skoðun
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir til formanns Sjálfstæðisflokksins -Kraftur nýrra tíma Svanur Guðmundsson Skoðun