Janka heimsmeistari í stórsvigi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 13. febrúar 2009 13:22 Carlo Janka í brautinni í dag. Nordic Photos / Getty Images
Carlo Janka frá Sviss varði forskot sitt eftir fyrri ferðina í stórsvigi karla og fagnaði sigri í greininni á HM í alpagreinum í Val d'Isere í Frakklandi. Janka var með tæplega hálfrar sekúndu forskot á Benjamin Raich frá Austurríki eftir fyrri ferðina. En þó svo að Janka hafi gert slæm mistök ofarlega í brautinni tókst honum að auka þann mun og kom í mark 0,71 sekúndu á undan Raich. Raich varð því í öðru sæti en Bandaríkjamaðurinn Ted Ligety náði að vinna sig upp úr níunda sæti eftir fyrri ferðina í þriðja sætið. Hann var rétt tæpri sekúndu á eftir Janko. Þetta eru önnur verðlaun Janka á mótinu en hann fékk brons í brunkeppninni. Hann tileinkaði landa sínum, Daniel Albrecht, verðlaunin en hann slasaðist illa við æfingar fyrir brunmótið í Kitzbühel í síðasta mánuði. Honum hefur verið haldið sofandi síðan þá en vaknaði í gær. Læknar sögðu í dag að hann myndi ekki hljóta neinn varanlega skaða af meiðslum sínum. Þetta voru önnur gullverðlaun Sviss á mótinu en Bandaríkjamenn hafa einnig unnið tvenn gullverðlaun.
Erlendar Mest lesið Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Körfubolti Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Segjast ekki eiga pening og konunum fórnað Handbolti Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Enski boltinn Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Handbolti Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Enski boltinn „Við þurfum annan titil“ Enski boltinn Fyrsta íslenska tvennan í frönsku deildinni í meira en 42 ár Fótbolti Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Fótbolti Fleiri fréttir Dómara refsað vegna samskipta við Messi „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus Sigur Ungverja á Ítalíu dugði skammt Uppgjörið: Ísland - Tyrkland 83-71 | Ísland tryggði sér sæti á EM fyrir fullri höll Góður útisigur hjá lærisveinum Guðmundar „Við þurfum annan titil“ Átján íslensk mörk í stórsigri Kolstad Uppgjörið: Slavia Prag - Valur 22-22 | Valskonur í undanúrslit EHF-bikarsins Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum „Við vorum yfirspenntar“ Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Óðinn öflugur í sigri og Magdeburg með í toppbaráttunni Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Dana markahæst í tólfta sigrinum í röð Haukur markahæstur þegar Dinamo náði níu stiga forskoti Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Martin komst í hóp þeirra gömlu og mjög góðu Sjá meira