„Ég kemst ávallt snemma í jólaskap," svarar Sigga Lund útvarpskona þegar við spyrjum hvenær hún byrjaði að undirbúa jólin.
„Ég er yfirleitt byrjuð á því að setja eina og eina jólaplötu á fóninn um miðjan nóvember þegar ég hengi upp fyrsta skrautið."
„Jólaundirbúningur er bara hefðbundinn. Ég skipulegg jólagjafa- og jólakortalistann og byrja svo að versla gjafirnar og skrifa kortin í byrjun desember."
„Jólatréð skreyti ég svo alltaf snemma - svona uppúr miðjum des en það fer lítið fyrir bakstri á mínu heimili en ég baka alltaf eina sort bara til að fá lyktina í húsið."
„Þetta geri ég ávallt síðast þegar allur annar undibúningur er búinn. Þetta er svona punkturinn yfir i-ið," segir Sigga.

„Fyrsta jólasælu tilfinningin kemur yfir mig fyrsta í aðventu þegar allir byrja að skreyta og setja aðventu- og jólaljósin á sinn stað."
„Ég eiginlega get ekki líst þeirri tilfinningu sem ég upplifi þegar ég sé ljósin lýsa upp skammdegið," segir hún.
„Finnst ég upplifa einskonar frið og tilgang jólanna. Ég elska þennan tíma!" segir Sigga.
„Aðfangadagskvöldið hjá mér verður í faðmi fjölskyldunnar eins og undanfarin ár. Ég og sonurinn erum hjá mömmu minni."
„Við borðum klukkan sex og mamma leggur mikið í matinn og borðskreytingarnar. Við fáum dýrindis forrétt, hamborgarhrygg með öllu tilheyrandi í aðalrétt og svo rommfrómas í eftirrétt, og að sjálfsögðu er möndlugjöfin á sínum stað," útskýrir hún.
„Við systkinin vöskum svo upp og göngum frá og eftir það opnum við gjafirnar. Mamma reiðir svo fram hátíðarkaffi og konfekt þegar við opnum jólakortin og lesum jólakveðjur frá vinum og vandamönnum."
„Fljótlega upp úr því eru allir komnir á náttfötin og láta líða úr sér," segir Sigga.-elly@365.is