Nú höfum við sett í loftið veiðivef inná Vísi.is sem ber nafnið Veiðivísir. Hér kemur þú til með að finna veiðifréttir úr öllum áttum, hvort sem um er að ræða lax- og silungsveiði, veiðar á sjóstöng eða skotveiðar.
Við viljum hvetja ykkur til að senda okkur veiðifréttir og myndir til að deila með lesendum okkar, og þegar aðeins verður liðið á veiðitímann komum við til með að fara í skemmtilega myndaleiki þar sem þið getið unnið til glæsilegra verðlauna. T.d. veiðileyfi o.fl.
Við óskum ykkur ánægjulegra stunda við vötnin og árnar, og minnum ykkur á að byrja veiðiferðina með veiðifréttunum á Veiðivísi.
Bestu kveðjur og góða skemmtun við bakkana í sumar!
