Helgina 11 til 13 júní verður haldið veiðikeppni í Hvammsvík í Kjós. Frábærir vinningar eru í boði fyrir stærstu fiskana. Það fer þannig fram að veiðimaður kaupir dagsleyfi fyrir 2.500,- krónur og má veiða allt að 5 fiska. Kaupa má fleiri en 1 dagsleyfi. Keppnin stendur á milli 10:00 og 22:00 dagana 3 sem keppnin stendur yfir og þar á loknu verður vinningshafar nefndir.
Reglur:
Ekki er hægt nota almenn veiðileyfi til þáttöku.
Bannað er að sleppa veiddum fiski, þátttökuréttur fellur úr gildi ef það er gert.
Aðeins má nota eina stöng á hvern þáttökuseðill.
Það lítur vel út með veður um helgina þannig að hér er kjörið tækifæri fyrir alla sem hafa gaman af því að veiða í taka smá bíltúr út úr bænum og veiða saman.
Veiðikeppni um helgina í Hvammsvík í Kjós
